Fréttablaðið - 20.07.2005, Qupperneq 18
Flugþreyta
Margir eiga erfitt með að snúa sólarhringnum við eftir langt ferðalag milli
tímabelta. Haltu þér vakandi, daginn sem þú lendir og farðu að sofa á
sama tíma og innfæddir, þannig geturðu aðlagast tímanum fljótt. [ ]
AQUIS handklæði
í ferðalagið
Í bakpokann, ferðatöskuna, sundið,
líkamsræktina ofl.
Taka lítið pláss, létt, þurrka vel,
þorna fljótt, alltaf mjúk.
Dreifing: Daggir s: 462-6640
www.daggir.is
Menningarlíf á
bökkum Grímsár
Steinar Berg útgefandi fléttar
saman menningartengdri
ferðaþjónustu og tónlistarút-
gáfu á nýjum áningarstað,
Tímanum og vatninu, í Borg-
arfirði.
„Þetta er rétt að skríða úr egginu,“
segir Steinar. „Við opnuðum í júní
og erum nú óðum að komast í fullan
gang. Meiningin er að búa til nýtt
ferðaþjónustusvæði hér við ána og
byrjunin var að opna veitingastað-
inn, sem hefur hlotið nafnið Tíminn
og vatnið. Þá bjóðum við líka upp á
aðstöðu fyrir tjöld og húsvagna en í
framtíðinni stendur til að bæta við
gistimöguleikum ásamt ýmsu
fleiru. Draumurinn er að gera þetta
svæði að eftirsóknarverðri stoppi-
stöð fyrir ferðalanga og slagorðið
er „Góð aðstaða fyrir gott fólk.“
Steinar segir með tilkomu Borg-
arfjarðarbrúarinnar hafi þetta
svæði orðið útundan. „Þetta varð úr
leið og fólk heimsótti ekki lengur
innsveitir Borgarfjarðar. Fyrir
þremur árum var hins vegar lokið
við að tengja Borgarfjarðarbraut-
ina Þjóðvegi 1, malbika og gera all-
ar brýr á veginum tvíbreiðar. Ég
býst alveg eins við að einhver tími
líði áður en fólk áttar sig á hvað
þetta er skemmtileg tilbreyting við
hringveginn, bæði er þetta falleg
leið og tekur ekki mikið lengri tíma.
Ég vona að með aðstöðunni hérna
hafi sveitin breyst úr því að vera
eingöngu landbúnaðarhérað í
skemmtilegan valkost fyrir ferða-
menn.“
Steinar hafði lengi gengið með
það í maganum að breyta til. „Ég er
að nýta áralanga starfsreynslu sem
hefur falist í að skapa og vinna með
fólki. Héðan rek ég áfram útgáfu-
fyrirtækið Steinsnar, en hugmynda-
fræðin á bak við þetta er að bjóða
upp á góða þjónustu ásamt virku
tónlistar- og menningarlífi. Húsið er
rúmgott og við erum með fína sali
ásamt inni- og útisviði. Þá eru í hús-
inu góð hljómflutningstæki og
skjávarpi.
Við ætlum að halda úti fjöl-
breyttri dagskrá í sumar og um
verslunarmannahelgina stendur til
að halda tónlistarhátíðina Heims-
borg. Það er allt í bígerð og ýmis-
legt sem mun koma á óvart,“ segir
Steinar.
Tíminn og vatnið býður upp á
mat fyrir einstaklinga og hópa, en
matseðillinn tekur að sjálfsögðu
mið af umhverfinu. „Uppistaðan er
lamb og lax og svo leggjum við mik-
ið upp úr grænmetinu sem við kaup-
um af garðyrkjubændum í sveit-
inni. Kokkurinn okkar, sem er
danskur, er snillingur í að nýta sér
þetta hráefni svo úr verða himnesk-
ar máltíðir.“ edda@frettabladid.is
www.hertz.is
14.300
Vika á Ítalíu
*
Opel Corsa eða sambærilegur
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
*Verð á viku miðað við 14 daga leigu.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
2
89
09
06
/2
00
5
50 50 600
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
Skátar landsins halda nú
landsmót þar sem mikið verð-
ur um dýrðir að vanda. Af því
tilefni tóku þrír skátar í Hraun-
búum í Hafnarfirði sig saman
og smíðuðu fimm metra háan
vita. Því liggur við að byrja á
því að spyrja af hverju. „Vitinn
er tákn Hafnarfjarðar, og upp-
haflega hugmyndin okkar var
að hafa tvo litla vita sitthvoru
megin við hliðið okkar á
landsmótinu,“ segja þeir
Jakob Guðnason, Kristinn
Bernhard og Ólafur Sigurgeirs-
son. „En það endaði með því
að við smíðuðum einn risa-
stóran sem mun gnæfa yfir
allt tjaldsvæðið, þetta verður
leynivopn Hraunbúa,“ segja
þeir með stolti.
Þegar blaðamaður hitti á þá félaga voru þeir að leggja lokahönd á smíðina og áttu
enn eftir að setja toppinn á vitann. „Við verðum með ljós efst í vitanum, þetta verð-
ur rosalega flott,“ segja þeir. Og aðspurðir um hvort það sé flott að vera skáti segja
þeir já allir í kór. „Það er töff að vera skáti,“ segja þeir og vilja meina að vinsældir
skátana séu að aukast. Að lokum vilja þeir benda á að hægt sé að fylgjast með
starfi þeirra á vefsíðunni www.hraunbuar.is, og taka svo til við að ljúka við verkið.
Mun gnæfa yfir tjaldstæðið
ÞRÍR HRAUNBÚAR TÓKU SIG SAMAN OG SMÍÐUÐU HIMINHÁAN VITA FYRIR
LANDSMÓT SKÁTA.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Jakob Guðnason, Kristinn Bernhard og Ólafur Sig-
urgeirsson standa við vitann góða sem er tákn
Hafnarfjarðar.
Steinar Berg hefur opnað menningartengdan veitingastað í Borgarfirði sem heitir Tíminn
og vatnið.
Náttúrufegurðin er mikil í Fossatúni, þar
sem nú er þjónusta fyrir ferðamenn. Veitingastaðurinn Tíminn og vatnið.
Nýr gistiskáli við
Drekagil
Á DÖGUNUM VAR VÍGÐUR NÝR
SKÁLI FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR.
Drekagil er á krossgötum í Ódáða-
hrauni og þaðan er stutt að fara upp í
Öskju í Dyngjufjöllum. Um árabil hefur
Ferðafélag Akureyrar átt skálann Dreka
við Drekagil en síðasta sumar var haf-
ist handa við byggingu nýs skála á
svæðinu. Hann er nú tilbúinn. Nýja
húsið er timburhús á tveimur hæðum.
Á neðri hæðinni eru tvö fimm manna
svefnherbergi og rúmgóð borstofa
með eldhúskrók. Á efri hæðinni er
svefnpláss í tveimur rýmum fyrir 30
manns. Í eldhúsi er rennandi vatn í
krönum og húsið er lýst upp með raf-
nmagni frá sólsellum. Þá er einnig ol-
íukabyssa með miðstöðvarkerfi í borð-
stofunni.
Heiðdís Gunnarsdóttir hjá Ferðafélagi
Akureyrar segir að skálinn hafi verið
byggður til að anna eftirspurn eftir
gistirými á hálendinu. „Það er mikil
umferð þarna á sumrin og Dreki var
orðinn of lítill. Þess vegna var ráðist í
að byggja nýjan skála. Gamli Dreki
stendur þó enn fyrir sínu og þar er
gistipláss fyrir um 20 manns.“
Tíminn og vatnið á bökkum Grímsár.
18-19 (02-03) Allt-Ferðir 19.7.2005 19:38 Page 2