Fréttablaðið - 20.07.2005, Qupperneq 29
BERNARD EBBERS Í RÉTTARSAL Þrjú ár eru síðan WorldCom var lýst gjaldþrota. Bern-
ard Ebbers stjórnarformaður var nýlega dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir sinn þátt í málinu.
Bandaríska fjarskiptafyrirtæk-
ið WorldCom lýsti sig gjaldþrota
21. júlí árið 2002. 20 þúsund
manns misstu vinnuna og hlut-
hafar í félaginu töpuðu 11.700
milljörðum króna við gjald-
þrotið. Er gjaldþrot fyrirtæk-
isins hið stærsta í sögunni.
WorldCom var reist á grunni
Long Distance Discount Serv-
ices símafyrirtækisins (LDDS)
sem stofnað var í Mississippi-
fylki í Bandaríkjunum. Bernard
Ebbers varð stjórnarformaður
þess árið 1985 og fjórum árum
seinna sameinaðist LDDS öðru
fjarskiptafyrirtæki, Advantage,
og var í kjölfarið skráð á hluta-
bréfamarkað.
Árið 1995 var nafni fyrirtæk-
isins breytt í WorldCom.
WorldCom sótti hratt í sig veðrið
og var um tíma næststærsta
fjarskiptafyrirtæki Banda-
ríkjanna. Rétt fyrir aldamótin
2000 ruku bréf í félaginu upp úr
öllu valdi, Ebbers stjórnarfor-
manni var hampað sem við-
skiptasnillingi og kallaði Clinton
forseti hann; „fyrirmynd ann-
arra Bandaríkjamanna“.
Fljótlega kom þó í ljós að ekki
var allt með felldu hjá World-
Com. Skattayfirvöld komust að
því að háum fjárhæðum hafði
verið skotið undan og hófst um-
fangsmikil rannsókn á fyrir-
tækinu sem leiddi í ljós gríðar-
leg bókhalds- og skattsvik.
WorldCom lýsti sig í kjölfarið
gjaldþrota og voru sex yfirmenn
fyrirtækisins ákærðir.
Réttarhöld standa nú yfir og
var Bernard Ebbers nýlega
dæmdur í 25 ára fangelsi og gert
að greiða hluthöfum í WorldCom
háar skaðabætur. -jsk
S Ö G U H O R N I Ð
WorldCom gjaldþrota
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 20. júlí 2005 7
Ú T L Ö N D
Nú styttist í að knattspyrnuvertíðin hefjist að nýju
á meginlandi Evrópu. Liðin eru í óðaönn að styrkja
sig fyrir komandi leiktíð og víla ekki fyrir sér að
borga svimandi upphæðir fyrir leikmenn í fremstu
röð.
Leikmenn spila heldur ekki einungis ánægjunnar
vegna og eru fæstir á sultarlaunum. Hér fylgir listi
Forbes viðskiptatímaritsins um tekjuhæstu leik-
menn heims.
Athygli vekur að fimm efstu spila á Spáni og þar
af fjórir með Real Madrid. Aðeins einn á topp tíu
listanum spilar á Englandi, Thierry Henry hjá
Arsenal. Þá kemst enginn leikmaður Chelsea á list-
ann, en þeir hafa verið duglegir að sanka að sér
leikmönnum undanfarin ár.
Þess ber þó að geta að hér er ekki einungis verið
að tala um launagreiðslur, heldur heildartekjur.
David Beckham, sem er langefstur á listanum, hef-
ur til að mynda stærstan hluta tekna sinna af aug-
lýsingasamningum við stórfyrirtæki á borð við
Adidas og Pepsi. -jsk
EIGA FYRIR SALTI ÚT Á GRAUTINN Beckham og Ronaldinho
eru báðir á lista Forbes yfir tekjuhæstu knattspyrnumenn veraldar.
Milljarðamæringar í fótbolta
Knattspyrnumenn fá svimandi háar tekjur. Efstur á lista Forbes er metróm-
aðurinn David Beckham.
L I S T I F O R B E S Y F I R
Á R S T E K J U R K N A T T S P Y R N U M A N N A :
1. David Beckham (ENG) , Real Madrid 2.100
2. Zinedine Zidane (FRA), Real Madrid 1.300
3. Ronaldo (BRA), Real Madrid 1.170
4. Raúl Gonzalez Blanco (SPÁ), Real Madrid 780
5. Ronaldinho (BRA), Barcelona 780
6. Oliver Kahn (ÞÝS), Bayern Munchen 750
7. Michael Owen (ENG), Real Madrid 715
8. Alessandro Del Piero (ÍTA), Juventus 650
9. Christian Vieri (ÍTA), AC Milan 585
10. Thierry Henry (FRA), Arsenal 520
*Upphæðir í milljónum króna
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
06_07_Markadur lesið 19.7.2005 16:06 Page 3