Fréttablaðið - 20.07.2005, Qupperneq 20
Hjátrú
Ýmis hjátrú tengist brúðkaupum. Á Viktoríutímanum þótti til að
mynda mikil gæfa að giftast í afmælisviku brúðgumans. Best var
ef brúðkaupið fór fram á afmælisdaginn sjálfan. [ ]
BLÓMÁLFURINN
Vesturgötu 4 sími 562 2707
Íslandsmeistari í blómaskreytingum
í i
Brúðargjafir
Hringarnir með
stóra H-inu
Hefðbundnir giftingarhringar
kostuðu þriggja mánaða laun
um 1960 og vetrarlaun verka-
manns um aldamótin 1900.
Nú eru þeir til í gríðarlegu úr-
vali, bæði hefðbundnir og
óhefðbundnir, og eru miklu
ódýrari.
Sjö af hverjum tíu hringum eru
þessir kúptu klassísku,“ segir Sig-
urður G. Steinþórsson, gullsmiður
og eigandi Gulls og silfurs. Það
virðast vera hringarnir með stóra
H-inu. En hvítagullið er að koma
sterkt inn og fólk kaupir klassísku
hringana í hvítagulli og þá jafnvel
með demanti fyrir brúðina.“
Sigurður segir að hvítagullið
hafi nánast horfið á tímabilum en
sé greinilega á leið inn aftur og
hringarnir séu heldur að breikka.
„4-6 mm er vinsælasta breiddin. Á
tímabili voru hamraðir hringar og
hringar með rúnaletri nokkuð vin-
sælir og það er alltaf eitthvað um
að fólk taki þá. Nöfn brúðhjón-
anna eru þá grafin með rúnaletri
utan á hringana.“
Sigurður hefur verið í gull-
smíðinni í tæp 40 ár og séð ýmis-
legt þegar kemur að því að grafa
inn í giftingarhringa. „Oftast er
þetta hefðbundið en ég hef líka
grafið epli og appelsínur, gælu-
nöfn fólks úr tilhugalífinu og ým-
islegt sem er þá einskonar „lókal-
húmor“ brúðhjónanna. Pör koma í
níutíu prósentum tilfella saman til
að velja, hin tíu prósentin eru
mest karlmenn sem ætla að koma
kærustunni á óvart með bónorði.
Það hefur þó aukist að konur komi
einar, sem er hið besta mál,“ segir
Sigurður.
Meðalverð á hringum hjá Gulli
og silfri er á bilinu 35-50 þúsund
krónur, en hægt er að fá þá bæði
dýrari og ódýrari. „Þegar ég var
að byrja árið 1963 var viðmiðið að
verkamaður þyrfti að borga mán-
aðarlaun fyrir hringana. Það hef-
ur aldeilis breyst og nú eru hring-
ar miklu ódýrari,“ segir Sigurður.
Stálhringar með demöntum
Lára gullsmiður segir heilmikla
breidd í giftingarhringjum en nýj-
ungar séu helstar þær að stál-
hringir verði sífellt vinsælli.
„Þetta var til langs tíma óskap-
lega einfalt, staðlaðir kúptir
hringar, þriggja til fjögurra milli-
metra. Þannig var það um síðustu
aldamót og aldamótin þar á und-
an. Frávikin voru ekki mikil nema
„sixtees“-hringarnir, sem voru 8-
10 mm. Það tímabil stóð í um það
bil tíu ár. Fólk soðnaði undan þess-
um hringum og hætti að ganga
með þá og lét yfirleitt smíða úr
þeim nýja hringa eða mjókka þá.“
Nú eru stál- og silfurhringar
vinsælastir að sögn Láru, og
hvítagull, gjarnan í bland við
rauðagull, eða eitt sér með dem-
anti. „Stálhringarnir eru voðalega
spennandi, þetta er eðalstál, svo-
kallað skartgripastál, og mjög fal-
lega grátt. Stálið er oft skreytt
með gulli og svo er steinninn sett-
ur í og oft eru smíðuð gullstykki í
herrahringana.“
Láru finnst tilhneigingin núna
vera skrautlegir hringar, jafnvel
þannig að kvenhringurinn sé tveir
hringar samanlagt jafn breiðir og
herrahringurinn Annar dömu-
hringruinn er þá með skreyttur
demöntum.
Fólk er líka frjórra nú en áður
og kemur með eigin hugmyndir
og teikningar. Við getum svo út-
fært hugmyndina. Meðalverð á
venjulegum hringunum er í kring-
um 50.000 krónur en þeir sem eru
sérstakari geta auðveldlega farið
í 70 þúsund. „Mér skilst að um
aldamótin 1900 hafi giftingar-
hringar kostað vetrarlaun vinnu-
manns, það hefur aldeilis breyst
og í dag fást hringarnir miklu
ódýrari.“ ■
Hringar með rúnaletri eru alltaf vinsælir.
Þessir fást hjá Gulli og silfri.
Sigruður G. Steinþórsson gullsmiður smíð-
ar giftingarhringa eftir pöntunum fyrir fólk.
Þessir fallegu hringar eru frá Láru.
Hringar úr stáli verða sífellt vinsælli. Lára
smíðar þá eftir óskum kaupenda..
14 karata gullhringar.
Bæði slétt áferð og
hrjúf. Fást hjá Jens.
14 karata hvíta-
gullshringar frá Jens.
14 karata gullhringar
með hvítagullsrönd
frá Jens.
„Þetta var ekta frönsk súkkulaði-
kaka, silkimjúk og fín. Stór konfekt-
moli.“ Þannig lýsir Þorvaldur Borg-
ar brúðkaupstertunni sem hann og
Jói Fel bjuggu til í sameiningu og
segir engan sérstakan leyndardóm
hafa falist í þeirri köku nema ef
vera kynni einfaldleikinn. „Skreyt-
ingin var að minnsta kosti ein sú
einfaldasta sem ég hef búið til. Að-
allega rósablöð og grænt brúð-
arslör,“ segir hann brosandi.
Fanney er frá Norðfirði og Þor-
valdur Borgar frá Hornafirði. Í
heimabæ sínum gengur hann enn
undir nafninu Valdi Hauks og þar
er hann þekktur bæði sem bakari
og stuðbolti. Giftingin fór fram í
Garðakirkju og veislan var haldin í
Garðaholti í Garðabæ. Þar mættu
um hundrað manns. Tveir kokkar
að austan lögðu meðal annars sam-
an krafta sína þegar kom að matar-
gerðinni, Stefán Stefánsson og Stef-
án Þór Arnarson. Hvað skyldu þeir
svo hafa eldað? „Það var humar-
súpa í forrétt og lambafille í aðal-
rétt,“ segir Valdi og framkallar ör-
ugglega vatn í munn margra sem
lesa. Á eftir var ball með fullskip-
aðri hljómsveit vina og ættingja og
dansað fram á fjögur. „Rokna fjör
og við Fanney fórum síðust heim,“
segir Valdi. Þegar hann er minntur
á að venjan sé að brúðhjón stingi
snemma af úr veislunni svarar
hann hlæjandi. „Ég hef nú aldrei
verið eins og fólk er flest!“ ■
Við gómsæta brúðartertuna sem er súkkulaðiterta þó að útlitið bendi til annars.
Fanney Sjöfn og Þorvaldur Borgar með dótturina Andreu Rún fimm ára sem fann sig vel í
brúðarmeyjarhlutverkinu.
Fóru síðust úr veislunni
Þorvaldur Borgar Hauksson, bakari hjá Jóa Fel, gekk í hnapp-
helduna nýlega og kvæntist sambýliskonu sinni til margra ára,
Fanneyju Sjöfn Sveinbjörnsdóttur. Hann bjó til brúðkaupstert-
una sjálfur með smá aðstoð frá meistaranum.
Það er hefð á Íslandi að bjóða upp á fordrykk í brúðkaupum til að brúðkaups-
gestir fái að væta kverkarnar eftir giftingarathöfnina og skála fyrir nýbökuðum
brúðhjónunum.
Oft er kampavín í boði en sniðugt er að bjóða upp á óvenjulega og skemmti-
lega drykki – bæði áfenga og óáfenga.
Fallegir fordrykkir
ÞAÐ ER VOÐALEGA GAMAN AÐ HAFA ÓVENJULEGA
OG GÓÐA FORDRYKKI Í BRÚÐKAUPSVEISLUNNI.
ÓÁFENGUR DRYKKUR
1 ferna ananassafi
1 ferna appelsínusafi
1/2 ferna frosið límónaði
Grenadine eftir smekk
3 bollar sykur
Engiferöl eftir smekk
Vatn
SUMARSJEIK
1 flaska kampavín
16 hlutar ananassafi
1 bolli mulinn ananas
Hrærið vökvanum
saman. Fyllið kampa-
vínsglös með muldum
ananas. Berið fram.
Saga brúðarslörsins
BRÚÐARSLÖRIÐ VAR NOTAÐ TIL AÐ FELA ANDLIT BRÚÐARINNAR FYRIR VERÐ-
ANDI EIGINMANNI HENNAR.
Upphaflega átti brúðarslörið að merkja hreinleika brúðarinnar, sakleysi hennar
og hógværð. Slörið átti þannig að fela ógiftar konur fyrir mönnum sem ekki
voru verðugir þangað til réttur maður fengi loksins að sjá hana og meta fegurð
hennar.
Saga brúðarslörsins getur verið rekin aftur til Rómverja þar sem venjan var að
brúðir væru kappklæddar frá toppi til táar. Á miðöldum tíðkaðist í Evrópu að
brúðir bæru slör sem var svo þykkt að ekki sæist í gegn um það. Helgaðist það
af því að eiginmaðurinn mátti ekki sjá andlit brúðarinnar fyrr en þau væru gift.
Á þeim tíma tíðkaðist að foreldrar brúðhjón-
anna skipulögðu brúðkaupið og má finna svip-
aða siði í þeim löndum sem það tíðkast enn,
eins og til dæmis í Mið-Austurlöndum og víða
í Asíu. Hápunktur brúðkaupsins var þá eftir að
giftingunni sjálfri var lokið, þegar eiginmaður-
inn mátti lyfta brúðarslörinu og sjá andlit eig-
inkonu sinnar í fyrsta sinn.
Saga brúðarslörsins er rekin aftur til Rómverja.
20 (04) Allt brúðkaup 19.7.2005 19:19 Page 2