Fréttablaðið - 20.07.2005, Blaðsíða 54
20. júlí 2005 MIÐVIKUDAGUR
Strætóskýli hafa
tekið upp á því að
fuðra upp án
nokkurs fyrir-
vara. Einhver
hefur tekið sig
til og stráfellt
þau í stóru lagi.
Getur verið að
um hryðjuverk
sé að ræða? Í
mínu hverfi hafa að minnsta
kosti fimm strætóskýli fallið á síð-
ustu dögum. Aaaaa nýja leiðarkerf-
ið. Það á að fara „að efla almenn-
ingssamgöngur þannig að þær verði
raunhæfur valkostur og fleiri taki
strætó“ segir á heimasíðu Strætó
bs.
Efla almenningssamgöngur með
því að fækka strætóskýlum. Þetta
fær mig til að velta fyrir mér hvort
ég viti raunverulega hvað orðið al-
menningssamgöngur þýðir. Getur
verið að ég hafi verið að misskilja
orðið allan þennan tíma og að það
þýði í rauninni að „almenningur eigi
að ganga saman“.....nú getum við
„gengið saman“ í heljarinnar „sam-
göngu“ alla leiðina að eina strætó-
skýlinu sem er eftir í hverfinu okk-
ar. Er verið að efla samhug fólks?
Er þetta aðferð til þess að láta fólk
kynnast? Hrista saman hópinn?
Svona eins og þegar farið er í leiki
fyrsta daginn í nýjum skóla? Ef-
laust á ég eftir að kynnast fleirum
þar sem heilt hverfi er saman kom-
ið í einu strætóskýli í stað þess að
fólkið dreifist á fimm skýli.
Nei, mér finnst þetta skíta að-
ferð til þess að bæta almennings-
samgöngur. Sama er mér þótt
strætóarnir komi oftar. Betra þykir
mér að það taki mig eina mínútu að
ganga út í skýli í stað tíu mínútna og
ég geti setið inni í hlýjunni lengur.
Núna á sumrin er auðvelt að
segja að maður geti bara hunskast
til þess að labba þetta en það er
hægara sagt en gert í kulda og
strekkingi sem óhjákvæmilega læt-
ur sjá sig í vetur. Hvað með gamla
fólkið? Ætli það sé ánægt með að
þurfa að ganga lengri leið í
hálkunni? Ég efast stórlega um að
fleira fólk ákveði að taka strætó eft-
ir þessar furðulegu breytingar sem
virðast miðaðar við eitthvað allt
annað en þarfir viðskiptavina. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
BORGHILDUR GUNNARSDÓTTIR VELTIR FYRIR SÉR ALMENNINGSSAMGÖNGUM.
Strætóskýli stráfelld
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Varstu ekki
brjáluð?
Nei, reyndar ekki
svo. Hann er svo
lélegur karlinn að
hann handleggs-
brotnaði!
Það getur vel verið að þér finnist tímasóun að
reyna að handsama flugu með berum höndum,
mamma, en ég sé það sem áskorun.
Þetta krefst þolinmæði og
mjög fljóts viðbragðs.
... en aðallega
er þetta huglæg
keppni á milli
mín og flug-
unnar.
Fyrstu lotuna
vann flugan.
Hvorki snjór,
rigning, hiti né
næturmyrkur...
...getur haldið hinum
dugmikla hundi frá
sínum fyrirskipuðu
skyldum.
VOFF VOFF
VOFF VOFF
Víííí!!
Haa-ííí-jaaa!!
Ha! Ha!
Hey!
Aaaahh!
Allt í lagi krakk-
ar! Komið nóg af
hamagangi í
kvöld!
Tími til að fara í náttföt
og bursta tennur.
Koma
svo!
Ég kem svo og hjálpa þér
að standa upp.
Komdu
með verkja-
lyf!
Ooohhhh...
.
Ooo.
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
54-55 (22-23) Skrípó 19.7.2005 19:39 Page 2