Fréttablaðið - 20.07.2005, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
5 DAGAR
eftir af útsölunni
Enn meiri
verðlækkun
Rýmum fyrir
nýjum vörum
23. júní - 24. júlí
Allt til
heimilisins
undir
einu þaki!
Sumarið á Íslandi er 184 dagar.Sem leiðir hugann að því að
Íslendingum tekst einhvern veg-
inn að ýkja allt. Þeir halda því
með öðrum orðum fram að meg-
inhluti ársins hafi eitthvað með
hlýindi að gera, en minnihlutinn,
þessi 181 dagur sem stendur út
af, eigi að heita vetur. Hver fann
eiginlega upp á þessari skipt-
ingu? Hvaða bjartsýnismanni
tókst að koma því til leiðar að
sumarið á Íslandi væri lengra en
veturinn?
LÍKLEGA ER ÞAÐ SVO að
engin önnur þjóð hefur búið sér
til hátíðisdag til þess eins að
fagna sumri. Og þrammar svo
niður breiðgötur sínar með
lúðrablæstri og blöðrum þegar
allra veðra er von; einhvern tíma
í apríl þegar fólk er annað hvort
á skíðum eða í fermingarveisl-
um. Samt skal sumarið vera
komið, kannski svolítið svalt og
snjóþungt, en sumar samt. Og
það sem er náttúrlega meira; svo
lýkur þessum hlýindakafla ekki
fyrr en seint í október. Ekki í
september, nei – í október.
AUÐVITAÐ VITA ÞAÐ ALLIR
eyjaskeggjar á þessari túndru
sem sogar að sér helstu lægða-
kerfi við norðanvert Atlantshaf-
ið að íslenskt sumar er ekki ein-
hverjir 184 dagar. Varla að það
sé teljandi í mánuðum; miklu
fremur nokkrum vikum. Jafnvel
bara degi og degi. Stundum bara
dagsparti. Þannig fór vinur minn
í svokallað sumarfrí á dögunum
og eltist við þetta bláa gat sem
stundum er á himnum. Hann fór
rangsælis um landið en hreppti
ýmist þoku, norðanbál og í besta
falli rigningu. Hann var samt í
sumarfríi. Og þegar hann kom til
baka með skælt og skrámað hús-
tjaldið sitt hafði hann á orði að
líklega yrði það Benidorm næst.
MERKILEGAST AF ÖLLU er
að fáar þjóðir fara í jafn mikinn
sumarham og Íslendingar. Svo
virðist sem hægt sé að selja
þeim nokkurn veginn allt sem
tengist sól og sumri. Það þarf
ekki einu sinni að nota höfðatöl-
una til að fá það út að óvíða á
norðurhveli jarðar eru reistir
jafn margir sólpallar eða sól-
skálar og á Íslandi. Að ekki sé
talað um alla þá ofboðslegu fjöl-
breytni sem til er af alls konar
græjum sem hægt er að nota við
matseld og borðhald undir beru
lofti. Ekki þarf náttúrlega að
minnast á sumarhúsin, eða hjól-
hýsin, fellihýsin, tjaldvagnana.
Bara að skeyta forliðnum „sum-
ar-“ framan við varninginn – og
þá er hann keyptur. Enda er ís-
lenska sumarið langt, líklega
lengra en þekkist í öðrum lönd-
um. ■
BAKÞANKAR
SIGMUNDAR ERNIS
RÚNARSSONAR
Sumar
64 (32) Bak 19.7.2005 18:34 Page 2