Fréttablaðið - 18.08.2005, Qupperneq 59
hansjónsm
íns
Hinn knái saxófónleikari Sálar-
innar, Jens H. Hansson, opnar sig
í Mannlífs-viðtali á næstunni.
Jens segir að það hafi tekið hann
árartug að jafna sig eftir að
honum mistókst að feta sig á hálli
braut viðskiptanna fyrir 15 árum,
er hann stofnaði kjötbollugerðina
„Kraftaverk“, sem fór í þrot á
fimm vikum.
Jens kenndi lengi Baugsfeðg-
um um hrakfarirnar, en þeir hófu
að flytja inn billegar kjötbollur
frá Kóreu um svipað leyti.
„Saxófónninn hjálpaði mér að
komast yfir áfallið“, segir Jens,
en hann ákvað að blása sem mest
og fastast, til að gleyma óförun-
um. Í dag er Jens sáttur og hefur
aldrei liðið betur.
Blés til að gleyma
JENS H. HANSSON: Slappar af á
snekkju sinni „Thee Why King“
Kjötbolludraumur breyttist í martröð
Faðir hinnar
myrtu af
Vellinum
„Heimilið undir-
lagt af sorg.”
Madonna slasaðist nokkuð illaþegar hún féll af hestbaki í
fyrradag, daginn sem hún varð 47
ára. Talsmaður söng-
konunnar staðfesti
að hún hefði lent á
spítala og að hún
hefði rifbeinsbrotn-
að á þremur stöð-
um, viðbeinsbrotnað
og handarbrotnað. At-
vikið átti sér stað á
sveitasetri hennar rétt
fyrir utan London, en
poppdrottningin er á
batavegi.
Rapparinn P. Diddy hefur breyttnafni sínu eina
ferðina enn og nú
vill hann aðeins láta
kalla sig Diddy.
Áður hefur kappinn
gengið undir
nöfnunum, Sean
Combs, Puffy, Puff
Daddy
og síð-
ast P.
Diddy. Á
þriðjudag kynnti
hann þessar nýj-
ustu breytingar og
segir ástæðuna
hafa verið endalaus-
an nafnarugling. „Mér fannst 'P'-ið
standa á milli mín og aðdáenda
minna svo nú get ég átt í nánara
sambandi við þá. Á tónleikum
sönglaði hálfur salurinn 'P. Diddy' en
hinn helmingurinn 'Diddy', svo nú
geta allir hrópað saman í kór
'Diddy',“ sagði hinn umhyggjusami
Diddy.
Aðeins tvær vikur eru í komu
breska söngvarans Joe Cocker til
Íslands. Hann mun halda tónleika í
Laugardalshöll 1. september og er
þegar uppselt í stúku.
Joe Cocker hefur verið einn vin-
sælasti söngvari heims allt frá því
að hann sló í gegn á Woodstock árið
1969. Hann kemur hingað með glæ-
nýja plötu í farteskinu sem nefnist
Heart & Soul. Þar tekur hann sígild
lög og gerir að sínum, m.a. One eftir
U2 og Everybody Hurts með R.E.M.
Miðasala á tónleikana fer fram í
verslunum Skífunnar, BT á Akur-
eyri og Selfossi, Pennanum Akra-
nesi og á concert.is. ■
Þrátt fyrir góða dóma víðast hvar
hefur kvikmyndin The Island ekki
náð að standa undir þeim vænt-
ingum sem gerðar voru til hennar
í miðasölu í Bandaríkjunum. Nú
hafa framleiðendur myndarinnar,
Walter Parkes og Laurie MacDon-
ald, skellt skuldinni á aðalleikar-
ana Scarlett Johansson og Ewan
McGregor.
„Sjónvarpsleikkona gæti náð
betra sambandi við áhorfendur en
Scarlett gerði í The Island,“ létu
framleiðendurnir hafa eftir sér.
Scarlett lét þó ekki bjóða sér
svona ummæli heldur svaraði um
hæl. „Það er ekki mér að kenna að
framleiðendurnir misreiknuðu
markaðssetninguna,“ sagði hún
og bætti við að hún væri stolt af
frammistöðu sinni og myndinni.
Það verður eflaust langt þang-
að til að þau þrjú vinni saman að
kvikmynd aftur. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Scarlett svarar fullum hálsi
SCARLETT JOHANSSON Er heldur fúl
yfir því að þurfa að hlusta á framleiðendur
The Island hrauna yfir frammistöðu hennar
á hvíta tjaldinu.
Tvær vikur í Cocker
JOE COCKER Cocker sló í gegn á Wood-
stock-tónleikunum árið 1969.