Tíminn - 28.09.1975, Side 3
SttnnUdágtlh^S. freþteintter;t975
TÍMINN
■
BIIBIB
Pétur
Friðrik:
Ofhlaðið skip
KJARVALSSTAÐIR halda
áfram sýningum þdtt borgar-
yfirvöldin éti þaö sem liti frýs
hjá Félagi islenzkra mynd-
listarmanna.
Hafa sumar þessar sýningar
verið vondar, aðrar upp og ofan,
þvf nú er svo komið að fasismi
rikir, mönnum er meinað með
bannfæringum að sýna að Kjar-
valsstöðum og dugar nú vart
minna en útskúfun úr samfélagi
heilagra ef menn sýna sig á
Klömbrum.
Pétur Friðrik mun nú njóta
þessa, þvi enga málara sá ég
þegar ég kom á sýningu Péturs
Friðriks á Kjarvalsstöðum og
svo er hann ofani kaupin með
heldur slappa og þunglamalega
sýningu, miðað við það bezta
sem hann hefur látið frá sér
fara. Pétur Friðrik hefur sumsé
lagt höfuðið á stokkinn.
Þetta er skrifað hálfpartinn
upp I sveit, i Stafnsréítum, þar
sem dregið er i dilka og svo mun
dregið á ný mjög fljötlega og þá
um ilmandi töðu innan um jafn-
aldra i þurru vistlegu fjárhúsi,
þar sem skjól er fyrir grenjandi
stórhrið unz vorið kemur enn á
ný. Aðrir annað fé bænda fer I
bankaklefann og fær lifsgátuna
sjálfa i þóknun. Yfir þessu öllu
tárast bóndinn svo i réttunum
og býður snaps.
Pétur Friðrik leggur upp i
nokkurs konar orustu við sam-
tiðarmenn sina þegar hann tek-
ur Kjarvalsstaði undir. Hann er
lang þekktasti málarinn, ef
Eyjólfur Eyfells er kannske
undanskilinn, sem brotið hefur
bannhefðina um Kjarvalsstaði.
Hann er lika sjóaður vel i list-
inni og nýtur álits meðal al-
mennings, ef það siðasttalda
segir þá nokkuð.
Gdð og vel keppnuð sýning,
hefði þvf verið umtalsvert inn-
legg i málið. Pétur Friðrik er
með ofhlaðið skip á Kjarvals-
stöðum núna. Myndirnar eru of
margar, eða of stórar og þær
gleypa, hver aðra og maður
hefur á tilfinningunni að málar-
inn hafi kastað til höndunum.
Sýningin er fyrir neðan hans
klassa og vel það.
Auðvitað eru góðar myndir á
sýningu Péturs Friðriks. Hon-
um er ekki alls varnað, en vel
hefði átt við að hann hefði safn-
að saman ýmsu af þvi bezta,
sem eftir hann liggur og sýnt
það með þvi bezta, sem núna er
i sölum Kjarvals. Það hefði
þjónað þeim málstað betur, sem
eigi vill sortéra menn i helga og
vanhelga, ef á annað borð er
pláss undir sýningar.
— Pétur Friðrik var undra-
barn i listinni á sinum tíma.
Þjóðin hefur kunnað að meta
hann, ekki einasta að verðleik-
um, heldur jafnvel umfram það.
Eftir hann liggja hundruð
verka, sem bera langt af þvi
sem nú eru sýnd og öllum er það
fyrir beztu, mér og þér og hon-
um sjálfum, að.það sé viður-
kennt, því úrræði eru mörg,
þegar miklir hæfileikar eru
annarsvegar.
Það er dapurlegt hlutskipti oft
að segja meiningu sina á prenti,
hálfu verra þó að tala þvert um
geð. Ég óska málaranum vel-
farnaðar og bið nýrra tiðinda af
fjölhæfum listamanni.
25. sept1974
Jdnas Guömundsson
80—100% kvenna virðast
ætla að leggja niður vinnu
24. okt.
Fulltrúar frá u.þ.b. 50 félögum
og samtökum i Reykjavik og ná-
grenni stofnuðu 11. sept. s.l.
samstarfsnefnd um framkvæmd
kvennafris þ. 24. okt. n.k., á degi
Sameinuðu þjóðanna. Aðild að
nefndinni eiga stéttarfélög,
stjórnmálafélög, kvenfélög og
aðrir áhuga- og hagsmunahópar
kvenna.
15. sept. var siðan stofnuð tiu
manná framkvæmdanefnd og 5
starfshópar, sem vinna að undir-
búningi. Hóparnir eru opnir öll-
um, sem taka vilja þátt i starfinu
og má tilkynna þátttöku i húsa-
kynnum Kvenréttindafélags Is-
lands að Hallveigarstöðum við
Túngötu (efstu hæð) kl. 2-4 og 9-
10 siðdegis til 3. okt., sími 18156.
Kannanir hafa verið gerðar á
ýmsum vinnustöðum og hefur
niðurstaða þeirra verið, að 80-
100% kvennanna styðja nú þegar
aðgerð þessa. Verkalýðs-
hreyfingin hefur veitt málinu
sterkan stuðning, t.d. samþykkti
stjórn Sóknar einróma að styðja
framkvæmdina fjárhagslega og
von er á framlögum frá fleiri
félögum.
Framkvæmdanefndin mun
leita eftir samvinnu við samtök
kvenna viðs vegar um land og
hafa einstaklingar og félög úti á
landi þegar sýnt áhuga á, að sam-
staða náist um allt land.
Áætlað er, að útifundur verði
hámark dagskrárinnar i Reykja-
vik og opið hús verði á fleiri en
einum stað i borginni.
Dreifibréf verður sent út til
kvenna næstu daga. Birtist það
hér með.
Framkvæmdanefnd um
kvennafri:
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir,
Asthildur Ölafsdóttir, Eliasbet
Gunnarsdóttir, Gerður Steinþórs-
dóttir, Stella Stefánsdóttir, Asdis
Guðmundsdóttir, Björk Thomsen,
Erna Ragnarsdóttir, Margrét
Einarsdóttir, Valborg Bentsdótt-
ir.
Hvers vegna kvennafrí?
„Kvennaráðstefnan, haldin
dagana 20. og 21. júni 1975, I
Reykjavik, skorar á konur að
taka sér fri frá störfum á degi
Sameinuðu þjóðanna 24. október
nk, til að sýna fram á mikilvægi
vinnuframlags si'ns.”
Hvers vegna var tillaga sem
þessi borin fram og samþykkt á
ráðstefnu, þarsemsaman voru
komnar konur á öllum aldri, úr
öllum landsfjórðungum, úr öll-
um starfsstéttum og úr öllum
stjórnmálaflokkum?
Astæðurnar eru margar, en
hér eru nokkrar:
Vegna þess, að vanti starfs-
menn til illa launaðra og litils-
metinna starfa, er auglýst eftir
konu.
— Vegna þess, að meðallaun
kvenna við verzlunar- og skrif-
stofustörf eru aðeins 73% af
meðallaunum karla við sömu
störf.
— Vegna þess, að engjn kona
á sæti I aðalsamninganefnd
Alþýðusambands íslands.
— Vegna þess, að mismunur
á meðaltekjum verkakvenna og
verkakarla er kr. 30.000 á
mánuði.
— Vegna þess, að bændakon-
ur eru ekki fullgildir aðilar að
samtökum stéttar sinnar.
— Vegna þess, að algengt
svar er, þegar spurt er um starf
konu, sem gegnir húsmóður-
starfi: „Hún gerir ekki neitt,
hún er bara heima”.
— Vegna þess, að til eru
menn með ákvörðunarvald um
stofnun dagvistarheimila fyrir
börn, sem telja þau aðeins til að
auka á leti kvenna.
— Vegna þess, að vinnufram-
lag bændakvenna i' búrekstri er
metið til'kr. 175.000 á ári.
— Vegna þess, að kynferði
umsækjanda ræðuroft meiri um
stöðuveitingu en menntun og
hæfni.
— Vegna þess, að fordómar
og I sumum tilvikum sjálft
menntakerfið lokar ýmsum
menntaleiðum fyrir stúlkum.
— Vegna þess, aö starfs-
reynsla húsmóður er einskis
metin á vinnumarkaði.
Sameiginleg niðurstaða er sú,
að framlag kvenna til sam-
félagsins sé litils virt.
Sýnum okkur sjálfum og öðr-
um, hve mikilvægt framlag
okkar er, með þvi að leggja nið-
ur vinnu 24. október.
Sameinumstum að gera dag-
inn að eftirminnilegum baráttu
og sameiningardegi undir kjör-
oröum kvennaárs Sameinuðu
þjóðanna:
JAFNRÉTTI — FRAMÞRÓUM
— FRIÐUR
Framkvæmdanefndin um
kvennafri
fimm hefti
ÓKEYPIS
Samvinnan hefur löngum verið með ódýrustu blöðum,
og er svo enn.
Árgangurinn kostar aðeins 1500 krónur.
Samvinnan kemur nú út tíu sinnum á ári, og er hvert
hefti minnst 28 blaðsíður.
Árgangurinn er því um 300 síður að stærð.
Samvinnan er vönduð að allri ytri gerð; hún er prentuð
á góðan pappír, með litprentaðri forsíðu — og flytur
fjölbreytt efni við ailra hæfi.
.£
2
| Nýir áskrifendur Samvinnunnar fá hálfan árgang, fimm
| hefti, ÓKEYPIS um leið og þeir gerast áskrifendur.
$ Samvinnan
------------------------------------------^
Undirritaður óskar að gerast áskrifandi að Samvinnunni
Nafn ------------------------------------------
Heimili _______________________________________
SAMVINNAN _____________________________
Suðurlandsbraut 32
Reykjavík--------------------------------------
Dieselrafstöð
Viljum kaupa
dieselrafstöð, 50-70 kilówatta i góðu
ástandi.
Hrafnagilsskóli.
NU ER ÞAÐ
ÚTSÖLU-
AAARKAÐURINN
í NÝJU HÚSNÆÐI síA
A Ð • ■ ' ■
LAUGAVEGI 66 S
verzlun okkar Jli|ppl^|S§i m
Ótrúíegt l
vörúúrval
. -> ; ,o . ,•»
á frábærlega góðu
verði!!!!
[H Terelyne & ullarbuxur í miklu úrvali
□ Föt með vesti Pils og kjólar
|~~1 Bolir [ j Stakir kvenjakkar
[ ] UFO flauelisbuxur.
Nú er hægt að gera
reyfarakaup
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
Utsölumarkaöurinn,
Laugavegi 66, sími 28155