Fréttablaðið - 08.12.2005, Side 6
6 8. desember 2005 FIMMTUDAGUR
Heppnir fá þá eitthvað fallegt...
VINNUMARKAÐUR Jón Helgi
Guðmunds son, stjórnarformað-
ur Byko, hafnar samstarfi við
íslensku verkalýðshreyfinguna í
Eystrasaltslöndunum. Hann segir
að íslensku fyrirtækin Byko Lat
og CED séu þekkt fyrir að búa vel
að sínum starfsmönnum og hafi
ekkert með samstarf við íslensku
verkalýðshreyfinguna að gera.
„Þetta er gersamlega út í hött.
Við erum að vinna í allt öðru
umhverfi en verkalýðshreyfingin
er í og mér finnst umræðan um
þetta alveg fáránleg. Ég lít á þetta
sem samsæri gagnvart útrás
íslensku fyrirtækjanna. Þeir eru
bara að reyna að búa sér til stöðu
gagnvart okkur,“ segir Jón Helgi.
„Verkalýðshreyfingin hefur
engan skilning á þessu umhverfi
sem þarna er. Mér finnst að starfs-
menn í Eystrasaltslöndunum eigi
að fá að ráða sínum málum sjálfir
án afskipta íslenskrar verkalýðs-
hreyfingar. Við erum fullfær um
að passa okkar fólk og semja við
það eftir þeim grundvallarreglum
sem við förum eftir,“ segir hann.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að þrjú sambönd innan ASÍ
myndu eftir áramót óska eftir
samstarfi við eigendur íslensku
fyrirtækjanna tólf í Eystrasalts-
löndunum um kjarasamninga og
aðild starfsfólks að stéttarfélög-
um. Fáir starfsmenn í bygginga-
geiranum eru í stéttarfélögum.
- ghs
Jón Helgi Guðmundsson, stjórnarformaður Byko, um verkalýðshreyfinguna:
Samsæri gagnvart útrásinni
JÓN HELGI GUÐMUNDSSON „Við erum full-
fær um að passa okkar fólk og semja við
það eftir þeim grundvallarreglum sem við
förum eftir,“ segir Jón Helgi Guðmundsson,
stjórnarformaður Byko, um þá fyrirætlan
verkalýðshreyfingarinnar að óska eftir sam-
starfi við íslensku fyrirtækin í Eystrasaltsríkj-
unum eftir áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
KRISTJÁN LOFTSSON
DÓMSMÁL Meiðyrðamál Páls Þórs
Magnússonar í Sundi ehf. á hend-
ur Krist jáni Lofts syni í Hval hefur
ver ið látið nið ur falla. Frá þessu
var geng ið í fyrir töku í málinu í
Hér aðs dómi Reykja vík ur fyrr í
vik unni.
„Þeir náðu sátt um málið utan
réttar,“ segir Ástráður Haraldsson,
lög mað ur Páls, sem kærði Kristján
fyrir um mæli í útvarpi um átök um
Fest ingu, félags í eigu Kers, sem
meðal annars hélt utan um eign ir
olíu félags ins.
„Þeir hafa síðan selt okkur sinn
hlut og vildu ekki halda áfram með
þetta,“ segir Krist ján, sem einnig er
stjórn ar for mað ur Kers. Hann sagði
í útvarpi að minni hlut inn í Fest ingu
hefði reynt að stela félag inu með
kol ólög legri hluta fjár aukn ingu og
kærði til Ríkis lög reglu stjóra.
„Við erum nú búnir að senda
lög regl unni bréf um að þeir hefðu
selt okkur hlut sinn, en veit ekkert
frekar hvað þeirri rann sókn líður,“
segir Kristján. - óká
Meiðyrðamál vegna viðskipta:
Látið niður
falla eftir sölu
Forsetinn býður barónessu á
tónleika Frú Valerie Amos barónessa,
talsmaður bresku ríkisstjórnarinnar í
lávarðadeildinni, verður heiðursgestur
Ólafs Ragnars Grímssonar forseta á
hátíðartónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í kvöld. Barón essan varð fyrst
blökkukvenna til að taka sæti í bresku
ríkisstjórninni þegar hún varð ráðherra
árið 2001.
HEIÐURSGESTUR
SPENNA Á SRÍ LANKA Stjórnarhermenn í
Colombo. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SRÍ LANKA, AP Forseti Srí Lanka sem
nýlega tók við embætti, Mahinda
Rajapakse, æskti þess í gær að
Norðmenn héldu áfram sátta-
semjarahlutverki sínu í friðar-
umleitunum við aðskilnaðarsinna
tamíla tígranna á eynni.
Norræna friðareftirlitsnefndin,
sem Norðmenn fara fyrir, varaði
við því að víxlverkandi ofbeld-
isverk sem átt hefðu sér stað að
undanförnu stefndu vopnahléinu í
borgarastríðinu í hættu.
Rajapakse hitti norska sendi-
herrann, Hans Brattskär, í gær í
kjölfar tveggja jarðsprengjuárása
fyrr í vikunni sem urðu fimmtán
stjórnarhermönnum að bana, en
tamílatígrarnir eru sakaðir um að
standa að baki þeim. ■
Friðarumleitanir á Srí Lanka:
Norðmenn
beiti sér áfram
LÖGREGLA Um sex grömm af hassi
fundust við leit í bifreið manns
í Keflavík eftir að lögregla þar
handtók hann vegna gruns um
fíkniefnamisferli skömmu fyrir
klukkan ellefu á þriðjudagskvöld.
Maðurinn var látinn laus að lok-
inni yfirheyrslu.
Fyrr um kvöldið barst lögreglu
tilkynning um þjófnað úr bíl sem
stóð við smurstöðina í Hafnar-
götu, en úr honum hafði verið
stolið geislaspilara, hátölurum og
geisladiskum. Þá voru á þriðjudag
átta ökumenn í Grindavík kærðir
fyrir að hafa ekki bílbelti spennt
og tveir fyrir að hafa börn sín laus
í bílnum. - óká
Fíkniefnamisferli í Keflavík:
Sex grömm af
hassi fundust
KJÖRKASSINN
Telurðu að utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna hafi gefið fullnægjandi
skýringar á meintu fangaflugi?
Já 16,3%
Nei 83,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er Alfreð Þorsteinssyni treystandi
til að hafa yfirumsjón með bygg-
ingu hátæknisjúkrahúss?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
DEILUR Jóhann Tómasson heilsu-
gæslulæknir segir Læknablaðið
hafa neitað sér um birtingu á grein
í síðasta tölublaði þar sem hann
færir frekari sönnur á mál sitt
varðandi lækningaleyfi Kára
Stefánssonar. Vildi hann þar
svara landlækni sem hafði
sagt leyfi Kára vera fullt og
ótakmarkað. Í sama tölublaði
og greinin átti að birtast er
Kári beðinn afsökunar á því
að Læknablaðið hafi birt fyrri
grein Jóhanns, Nýi sloppur
keisarans. Fréttablaðið birtir
hér grein Jóhanns.
„Í yfirlýsingu Sigurðar
Guðmundssonar, landlæknis,
sem birt var í Læknablaðinu,
segir að Kári Stefánsson hafi
fengið fullt og ótakmarkað
lækningaleyfi þann 10. júní
1977 og sérfræðileyfi í tauga-
lækningum þann 14. desember
1984. „Aðrar upplýsingar eru
ekki hjá Landlæknisembættinu
um leyfisveitingar Kára Stef-
ánssonar. Hann hefur því fullt
og ótakmarkað lækningaleyfi.“
Framangreind fullyrðing land-
læknis er því miður röng. Hið rétta
er að Kára Stefánssyni var veitt
lækningaleyfi þrátt fyrir að hann
væri enn á kandidatsári og ætti að
auki ólokinni héraðsskyldu. Þessi
undanþága þótti með ólíkindum
og olli mikilli gremju, enda gríð-
arlegir hagsmunir í húfi sem Kára
hlotnuðust einum manna. Þann
1. júlí 1977 gekk í gildi strangt
inntökupróf sem hefti för allra
skólafélaga Kára til Bandaríkj-
anna í a.m.k. eitt ár. Auk þess
þurftu menn að fara til London
til að taka prófið með tilheyrandi
undirbúningi og kostnaði. Skóla-
félagar Kára gátu því fyrst hafið
nám í Bandaríkjunum um mitt
ár 1978, ári á eftir
Kára Stefánssyni. Löngu síðar,
eða við útkomu bókarinnar „Kári
í jötunmóð“ árið 1999, kom í ljós
að Kári hafði fengið lækningaleyf-
ið út á eið sem hann gaf fyrrver-
andi landlækni. Er í skjalasafni
Landlæknis að finna svohljóðandi
skjal, sem Kára hafði verið gert
að skrifa og undirrita vegna leyf-
isveitingarinnar:
Reykjavík, 31/5 1977
Hér með heiti ég því að vinna 3ja
mánuði í héraði að lokinni náms-
dvöl í Ameríku.
Kári Stefánsson
Vitundarvottar:
Gunn Guðmunds.
Ásta Gunnarsdóttir.
Það er því ljóst að lækn-
ingaleyfi Kára Stefáns-
sonar var þeim takmörk-
unum háð að hann þurfti
seinna að ljúka héraðs-
kyldunni og það hefur
hann ekki enn gert. Bók
Guðna Th. Jóhannesson-
ar, eins efnilegasta sagn-
fræðings landsins, „Kári
í jötunmóð“, vakti mikla
athygli á sínum tíma og
mun gera um ókomin ár.
Ofangreind tilvitnun úr
bókinni hefur til dæmis
margoft verið til umfjöll-
unar í ræðu og riti.
Landlæknir hefur
gefið út ritið „Góðir
starfshættir lækna“. Það
er væntanlega öllum
læknum kunnugt en
rétt er engu að síður að
hvetja menn að kynna
sér það vel. Landlæknir hefur
margsinnis bent á nauðsyn vísinda
og þekkingar. Hann hefur beitt sér
af alefli fyrir gerð miðlægs gagna-
grunns á heilbrigðissviði sem sér-
staks tækis til að afla þekkingar.
Það vekur því athygli að hann
skuli bregða fyrir sig þekking-
ar- og heimildaleysi til að taka að
sér lykilhlutverk í hringleik sem
sanna á að undirritaður læknir sé
ómerkingur. Hvað finnst honum
þá um eiða Kára Stefánssonar?“
spyr Jóhann Tómasson læknir.
jse@frettabladid.is
Segir landlækni
fara með rangt mál
Læknafélag Íslands hefur kært Jóhann Tómasson lækni til siðanefndarinnar
fyrir grein sem birtist í Læknablaðinu um Kára Stefánsson, forstjóra Erfðagrein-
ingar. Jóhann segir yfirlýsingu landlæknis um að leyfi Kára sé fullgilt rangt.
BANDARÍKIN Lögregla skaut mann
til bana á alþjóðaflugvellinum í
Miami í gærkvöldi eftir að mað-
urinn hótaði að grípa til sprengju
í tösku sinni.
Hafði maðurinn haft að engu
tilmæli lögreglu um að sleppa
töskunni sem varð til þess að lög-
reglumaður hleypti af byssu sinni
og lést maðurinn af sárum sínum
skömmu síðar. Ekki var ljóst hvort
raunverulega var sprengja í tösku
mannsins þegar Fréttablaðið fór í
prentun. ■
Sprengjuhótun í Miami:
Maður skotinn
til bana
Reykjavík, 31/5 1977
Hér með heiti ég því að vinna
3já mánuði í héraði að lokinni
námsdvöl í Ameríku.
Kári Stefánsson
Vitundarvottar:
Gunn Guðmunds.
Ásta Gunnarsdóttir.
DEILUR „Verknaðurinn sem er
brotlegur var að birta þetta, ekki
að skrifa þetta,“ segir Kári Stef-
ánsson aðspurður af hverju hann
hafi ekki sjálfur kært Jóhann
Tómasson fyrir greinaskrif hans
í Læknablaðinu.
„Jóhann er búinn að skrifa um
mig tugi greina í Morgunblaðið
sem brjóta allflestar í bága við
bókstaf í siðareglum lækna en
mér finnst hins vegar eðlilegt að
menn fái að hafa sitt ritfrelsi án
tillits til svona siðareglna ef menn
birta það í dagblöðum. Hins vegar
finnst mér að birta svona úrdrátt
úr þessum greinum hans Jóhanns
í Læknablaðinu vera allt annar
verknaður,“ segir Kári.
Hann segist ekki hafa krafist
þess beint að Vilhjálmi Rafnssyni
yrði vikið úr starfi sem ritstjóra
blaðsins. „Mér sýnist hins vegar
á verkum hans að hann hafi verið
orðinn þreyttur á að vera rit-
stjóri,“ segir hann.
Kári segist þó sammála Vil-
hjálmi um það að óeðlilegt sé að
fjarlægja tvær setningar úr grein
Jóhanns. Kári segist hafa viljað
að greinin yrði fjarlægð öll. - jse
Viðbrögð Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar:
Í lagi að skrifa en ekki að birta
KÁRI STEFÁNSSON Kári segir brotið felast í
því að birta greinina en ekki að skrifa hana.
Því kærði hann Vilhjálm en ekki Jóhann.