Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 16
16 8. desember 2005 FIMMTUDAGUR
Geislaplatan kemur í verslanir 13. desember
„Hjálpum þeim” er söfnunarátak fyrir Hjálparstarf kirkjunnar vegna hamfaranna
í Pakistan. Ný útgáfa af laginu er flutt af landsliði íslenskra tónlistarmanna.
Söluandvirði þessarar geislaplötu, utan við virðisaukaskatt, rennur óskipt til
söfnunarátaksins.
DÓMSMÁL 22 ára manni var ekki
gerð sérstök refsing fyrir innbrot
í leikskóla í Hafnarfirði í marslok
og fyrir að hafa verið með tæpt
gramm af kókaíni í bíl sínum, þar
sem hann hafði eftir brotið verið
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir
önnur brot.
Hann fékk hins vegar 50.000
króna sekt fyrir að hafa verið með
á sér 2,5 grömm af amfetamíni sem
lögregla fann á honum í júlílok,
eftir að tveggja ára dómurinn var
kveðinn upp.
32 ára félagi mannsins sem tók
þátt í innbrotinu var hins vegar
dæmdur í tveggja mánaða fangelsi,
skilorðsbundið í tvö ár, en dómurinn
var upp kveðinn í Héraðsdómi
Reykjaness á mánudag.
Verðmæti þýfisins úr leikskól-
anum var talið nema rúmum
400.000 krónum. - óká
Tveir menn hlutu dóma:
Refsilaust inn-
brot í leikskóla
AKUREYRI Forseti Íslands, herra
Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti
síðastliðinn laugardag 26 ein-
staklingum og fulltrúum félaga-
samtaka styrki úr Menningar- og
viðurkenningarsjóði Kaupfélags
Eyfirðinga en alls bárust 128
umsóknir. Afhendingin fór fram
í Listasafninu á Akureyri en sam-
tals nam úthlutunin úr sjóðnum
að þessu sinni rúmum 4,2 millj-
ónum króna.
Alls hefur um átján milljón-
um króna verið veitt til styrkja
úr Menningar- og viðurkenn-
ingarsjóðnum á yfirstandandi
ári og eru þá ótaldir styrkir við
önnur tilfallandi verkefni sem
nema samtals um tólf milljónum
króna. - kk
Forsetinn afhenti styrki Kaupfélags Eyfirðinga:
Hafa úthlutað átján
milljónum á árinu
FORSETI ÍSLANDS Forseti Íslands óskar
Maríu Vilborgu Guðbergsdóttur til ham-
ingju með styrk að fjárhæð 150 þúsund
króna sem Tónlistarfélagi Akureyrar var
úthlutað.
FORVARNIR Hjá Slysavarnafélaginu
Landsbjörg er hafinn undirbúning-
ur að ráðstefnunni Björgun 2006,
en hana á að halda dagana 20. til
22. október á næsta ári.
Talsmenn Landsbjargar segja
ráðstefnuna nú í fyrsta skipti
alþjóðlega. Vegna þessa verða
þau nýmæli að boðið verður upp
á túlkaþjónustu bæði á ensku og
íslensku, auk þess sem fyrirlestr-
ar verða á báðum tungumálunum.
„Einnig verður boðið upp á nám-
skeið í ýmsum greinum á undan
ráðstefnunni sem ættu að henta
fyrir íslenska björgunarmenn
jafnt sem erlenda gesti,“ segir í
tilkynningu Landsbjargar. - óká
Ráðstefnan Björgun 2006:
Alþjóðleg í
fyrsta sinn
BYGGÐASTOFNUN „Stofnunin er í
mjög erfiðri stöðu og nauðsynlegt
er að gera róttækar breytingar á
skipulagi byggðamála eigi þau að
skila tilætluðum árangri.“ Þetta
segir í tilkynningu frá Sigurði H.
Helgasyni, framkvæmdastjóra
ráðgjafafyrirtækisins Stjórn-
hátta ehf. Í tilkynningunni leitast
Stjórnhættir við að svara gagnrýni
frá stjórnendum Byggðastofnun-
ar sem stjórnendur telja að „hafi
þann tilgang að sá efasemdum um
hæfni fyrirtækisins til að leggja
mat á stöðu Byggðastofnunar“.
Forráðamenn Stjórnhátta furða
sig á því að stjórn Byggðastofnun-
ar gagnrýni úttekt sem fyrirtækið
vann um stöðu stofnunarinnar og
benda á að það hrökkvi skammt til
að bæta vanda stofnunarinnar „að
skjóta boðbera vondra tíðinda“.
Samkvæmt mati Stjórnhátta
ehf. má rekja fjárhagsvanda
Byggðastofnunar að mestu leyti til
of áhættusamra útlána og bendir
Sigurður á að til dæmis hafi verið
haldið áfram að lána til uppbygg-
ingar á gistiaðstöðu, löngu eftir að
ljóst hafi verið verulegt offramboð
á slíkri aðstöðu á landsbyggðinni.
- saj
Stjórnhættir ehf. svara gagnrýni forráðamanna Byggðastofnunar:
Gagnrýni leysir ekki vandann
BYGGÐASTOFNUN Forráðamenn Stjórnhátta
ehf. benda á að efasemdafræin lagi ekki
slæma fjárhagsstöðu Byggðastofnunar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í LOFTKÖSTUM Félagar í bifhjólaklúbbnum
Crusty Demons frá Ástralíu brugðu á leik
fyrir íbúa Bangalore á Indlandi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STARFSMANNALEIGUR „Okkur þykir
frumvarpið vera illa unnið og
ekki taka almennilega á þessum
málum,“ segir Halldór Þ. Sigurðs-
son, formaður Félags íslenskra
atvinnuflugmanna, og á þar við
frumvarp um starfsmannaleigur
sem nú bíður afgreiðslu Alþing-
is.
„Við höfum verið að kvarta
yfir því að samkeppnisstaða
flugfélaga sé ekki jöfn í ljósi
þess að sumir geta ráðið fólk í
gegnum áhafnaleigur þar sem
þeir skila ekki sköttum af þess-
ari starfssemi til landsins eins
og ríkisskattstjóri telur að eigi að
gera,“ segir Halldór. Hann bend-
ir á að leitað hafi verið umsagn-
ar FÍA um frumvarpið en þegar
á hólminn var komið hafi þeim
verið tilkynnt að of seint væri að
gera breytingar á frumvarpinu.
„Þetta fær gífurlega flýtimeð-
ferð í gegnum þingið.“
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Íslands,
kveðst geta tekið undir áhyggj-
ur atvinnuflugmanna af þess-
um málum og að ósekju hefðu
línurnar í frumvarpinu mátt
vera skýrari. „Þetta varð lend-
ingin. Lengra varð ekki kom-
ist í þessari sátt sem reynt var
að ná um að keyra þetta í gegn
núna,“ segir Sævar og bætir við:
„Aftur á móti eru sjómenn mun
betur settir að því leyti að það
eru alveg skýrar línur um það
hvenær þeir vinna samkvæmt
íslensku kjarasamningum. Ef
þeir eru um borð í íslensku skipi
þá eru þeir á íslenskum kjara-
samningum,“ segir Sævar.
Öðru máli gegnir um sjómenn
sem sigla á íslenskum leiguskip-
um sem ekki eru í reglulegum
siglingum til og frá landinu, en
yfir þá starfsemi ná ekki íslensk-
ir kjarasamningar, segir Sævar.
Þar gildi svipað og um flugá-
hafnir íslenskra fyrirtækja sem
nýti sér starfsmannaleigur.
saj@frettabladid.is
Frumvarp í
flýtimeðferð
Atvinnuflugmenn telja frumvarp um starfsmanna-
leigur vera illa unnið í óvenjulegri flýtimeðferð. Sjó-
mannasambandið segir þetta vera þrautalendingu.
HALLDÓR Þ. SIGURÐSSON Félag íslenskra
atvinnuflugmanna telur að frumvarp um
starfsmannaleigur nái ekki sem skyldi til
flugáhafna og segir frumvarpið illa unnið.
FRAGTFLUGVÉL AIR ATLANTA Áhyggjur FÍA beinast einnig að því að samkeppnisstaða
íslenskra flugfélaga sé ójöfn vegna þess að sum flugfélög eigi þess kost að nýta sér starfs-
mannaleigur. Þessi umsvif skili sér ekki í sköttum.
VIÐSKIPTALÍF „Sé ætlunin að koma
á fót alþjóðlegri fjármálamiðstöð
hér á Íslandi er fyrsta skrefið að
fjölga tvísköttunarsamningum sem
fyrst,“ segir Halldór Benjamín Þor-
bergsson hjá Viðskiptaráði.
Ráðið hefur bent á að Ísland er
eftirbátur nágrannalanda þegar
kemur að slíkum samningum.
Aðeins hafa 24 slíkir verið gerð-
ir hérlendis miðað við rúmlega
90 hjá Dönum. Slíkir samningar
tryggja að fyrirtæki og einstakl-
ingar eru ekki skattlögð í báðum
löndum sé um starfsemi erlendis
að ræða. - aöe
Viðskiptaráð vill fleiri tvísköttunarsamninga:
Grunnurinn að
fjármálamiðstöð