Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 20
8. desember 2005 FIMMTUDAGUR
BANDARÍKIN Ný skýrsla um auglýs-
ingar á matar- og drykkjarvörum
fyrir bandarísk börn þykir marka
tímamót þar í landi. Í skýrsl-
unni, sem kom út í fyrradag og
er unnin af viðurkenndri banda-
rískri stofnun í læknavísindum
(Institute of Medicine), er kall-
að eftir róttækum breytingum í
markaðssetningu og framleiðslu
á matvælum fyrir börn.
Samkvæmt nýlegum rann-
sóknum þjáist um 31 prósent
bandarískra barna af offitu.
Þessi staðreynd er meginástæða
þess að stofnunin gerði ítarleg-
ar rannsóknir á því hvort tengsl
væru á milli markaðssetningar
á óhollum mat og drykk og offitu
barna.
„Það eru sterkar vísbending-
ar um að sjónvarpsauglýsingar
á mat og drykk hafi áhrif á það
hvað börn kjósi að borða,“ segir
J. Michael McGinnis í viðtali við
bandaríska dagblaðið USA Today.
McGinnis er formaður nefndar
sem hafði umsjón með rannsókn-
inni. Nefndin fór gaumgæfilega
yfir hundruð rannsókna á áhrif-
um markaðssetningar, sérstak-
lega auglýsinga í sjónvarpi, á
mataræði barna.
Í skýrslunni kemur fram að
bandarísk fyrirtæki eyði árlega
um 600 milljörðum króna í mark-
aðssetningu á matvörum ætluð-
um börnum. Enn fremur kemur
fram að meirihluti þessara mat-
vara sé ekki hollur eða næring-
arríkur. Þar sem börn greina oft
ekki á milli hefðbundins sjón-
varpsefnis og auglýsinga leggur
stofnunin meðal annars til að
þekktar teiknimyndapersónur
eins og Scooby-Doo og fleiri séu
ekki notaðar til að auglýsa óholla
matvöru.
Höfundar skýrslunnar, sem
eru meðal annarra prófessorar í
virtum háskólum eins og Prince-
ton, Cornell og Stanford, ganga
samt enn lengra. Þess er beinlín-
is krafist að bandarísk matvæla-
fyrirtæki breyti um stefnu og
hefji framleiðslu á hollari mat-
vöru fyrir börn og markaðssetji
hana. Þó stofnunin hafi ekkert
raunverulegt vald vinnur hún í
nánum tengslum við bandaríska
þingið og hefur mikil áhrif á
þingmenn. Í skýrslunni er lagt
til að ef matvælafyrirtæki breyti
ekki sjálfviljug um stefnu innan
tveggja ára verði sett lög sem
banni auglýsingar á óhollustu
í sjónvarpi á þeim tímum sem
barnaefni er sýnt.
trausti@frettabladid.is
Scooby-Doo auglýsi
ekki óhollan mat
Um 31 prósent bandarískra barna þjáist af offitu. Virt bandarísk stofnun krefst
þess að fyrirtæki breyti um stefnu. Í nýrri skýrslu er lagt til að hætt verði að
auglýsa óhollar matar- og drykkjarvörur í barnatímum í sjónvarpi.
OFFITA MEÐAL BARNA ER MIKIÐ VANDAMÁL Bandarískum börnum sem þjást af offitu fer
fjölgandi ár frá ári. Drengurinn á myndinni er á heilsuhæli fyrir of feit börn í Miami í Flór-
ída. Slíkum heilsuhælum hefur fjölgað mikið vestanhafs enda offituvandinn mikill.
NORDIC PHOTO/GETTY IMAGES
UMBOÐSMAÐUR Umboðsmaður
Alþingis hefur beint þeim tilmæl-
um til Háskóla Íslands að fjallað
verði á nýjan leik um mál sérfræð-
ings, sem starfar hjá Háskólanum,
vegna einhliða ákvörðunar stofn-
unarinnar um að fella niður fasta
yfirvinnu hjá honum.
Háskólinn skuli bregðast við með
þessum hætti óski sérfræðingurinn
þess. Ella geti það orðið hlutverk
dómstóla að leysa endanlega úr
þeim ágreiningi sem uppi sé. Regl-
urnar sem hafi leitt til niðurfelling-
ar yfirvinnunnar séu óskýrar.
Málið er þannig til komið að
sérfræðingur hjá einni af stofnun-
um Háskólans kvartaði yfir því að
ráðningarkjörum hans hefði heim-
ildarlaust verið breytt með einhliða
niðurfellingu fastrar yfirvinnu sem
samið hefði verið um þegar hann
var ráðinn til stofnunarinnar. Hafði
hluti þeirrar yfirvinnu verið felldur
inn í dagvinnulaun í kjölfar kjara-
samninga milli ríkisins og Félags
háskólakennara árið 1997 og hafði
maðurinn ritaði undir yfirlýsingu
til samþykkis þess 22. júlí 1998.
Maðurinn hafði hins vegar
áfram fengið greiddar ellefu yfir-
vinnustundir á mánuði og voru
gerðir samningar við hann um slík-
ar greiðslur á árunum 2002 og 2003.
Á árinu 2004 leitaði hann eftir því
að yfirvinnusamningur hans yrði
endurnýjaður. Hafnaði stofnunin
því á þeirri forsendu að slíka yfir-
vinnusamninga yrði að fjármagna
með sértekjum einstakra verkefna-
stjóra og yrðu þeir ekki greiddir
af almennu rekstrarfé stofnunar-
innar eins og gert hafði verið í til-
viki hans. Var það afstaða Háskóla
Íslands í málinu að réttur sérfræð-
ingsins samkvæmt upphaflegu
samkomulagi um yfirvinnugreiðsl-
ur hefði fallið niður. ■
Umboðsmaður Alþingis um niðurfellingu fastrar yfirvinnu sérfræðings:
Háskólinn fær skammir
TRYGGVI GUNNARSSON Umboðsmaður
Alþingis vill að Háskólinn endurskoði niður-
fellingu fastrar yfirvinnu sérfræðings.
VERALDARVEFURINN Nýr vefur
Tryggingamiðstöðvarinnar hlaut
í gær gæðavottun vegna góðs
aðgengis fatlaðra að honum. Það
voru Öryrkjabandalag Íslands og
ráðgjafafyrirtækið Sjá ehf. sem
veittu Tryggingamiðstöðinni vott-
un þess efnis að vefur fyrirtæk-
isins stæðist kröfur um aðgengi
fyrir fatlaða.
Vefur Tryggingamiðstöðvar-
innar er fyrsti vefur einkafyrir-
tækis á Íslandi sem fær vottun
fyrir svokallaðan forgang 1 og 2.
Forgangur eitt er lágmarkskrafa
um aðgengi fatlaðra að vef, en til
að fá forgang 2 þarf að uppfylla
mun fleiri skilyrði.
Meðal breytinga á vef Trygg-
ingamiðstöðvarinnar er að nú
geta blindir og sjónskertir notað
talgervla og sérhönnuð lyklaborð
með síðunni eða stækkað letrið,
lesblindir geta breytt um bak-
grunnslit og hreyfihamlaðir geta
vafrað um á vefnum án þess að
nota músina.
Þess má geta að engar reglur
eru í gildi hér á landi um aðgengi
að heimasíðum. - sk
Blindir, sjónskertir og hreyfihamlaðir geta notað vef Tryggingamiðstöðvarinnar:
Vefur aðgengilegur fötluðum
ARNÞÓR HELGASON Framkvæmdastjóri
Öryrkjabandalags Íslands prófaði vef Trygg-
ingamiðstöðvarinnar í gær.