Fréttablaðið - 08.12.2005, Side 30
8. desember 2005 FIMMTUDAGUR30
fréttir og fróðleikur
Ú
TL
EN
D
IN
G
A
R
12.524
ÍS
LE
N
D
-
IN
G
A
R
26.085
Kennaraháskólinn hefur
minnstar tekjur á hvern
skráðan nemanda, en Há-
skólinn á Akureyri hefur
næstminnstar tekjur. Rekt-
or Háskólans á Akureyri
segir ekki aðrar leiðir færar
en að óska eftir heimild til
að innheimta skólagjöld ef
fram heldur sem horfir.
„Staðan er sú að við sjáum okkur
vart fært neitt annað en að óska
eftir heimild til að innheimta
skólagjöld ef fram heldur sem
horfir,“ segir Þorsteinn Gunn-
arsson, rektor Háskólans á Akur-
eyri. Samkvæmt samanburði sem
Ríkisendurskoðun tók saman í síð-
ustu viku um tekjur níu íslenskra
háskóla kom Háskólinn á Akureyri
verst út þegar litið er til heildar-
tekna á hvern ársnema árið 2004.
Slíkar tekjur háskólans eru um 846
þúsund sem er um 490 þúsundum
lægra á hvern nemanda en til að
mynda í Háskóla Íslands á sama
ári.
Ef hins vegar er litið til
heildartekna skólanna á hvern
skráðan nema, þ.e. alla þá sem
skrá sig í nám það árið, kemur
Kennaraháskólinn verr út en
Háskólinn á Akureyri, þar sem
Kennaraháskólinn fær 602 þúsund
á hvern skráðan nema, Háskólinn
á Akureyri hefur 651 þúsund í
tekjur á hvern nema, en Háskóli
Íslands 856 þúsund. Hólaskóli
er með hæstu tekjurnar á hvern
skráðan nema, eða tæpar þrjár
milljónir. Landbúnaðarháskólinn
hefur 1.651 þúsund í heildartekjur
á hvern skráðan nema og Listahá-
skóli Íslands hefur 1.308 þúsund á
hvern skráðan nema.
Þar sem ákveðinn fjöldi er
ekki í fullu námi, er eðlilegra að
bera saman heildartekjur skól-
anna á hvern ársnema, en þar sem
ekki er vitað um fjölda nemenda
í Landbúnaðarháskólanum og í
Hólaskóla er slíkur samanburð-
ur erfiður. Þar sem fjármögnun
þessara tveggja skóla byggir ekki
á nemendaígildum samkvæmt
kennslulíkani, líkt og fjármögnun
allra hinna skólanna, liggja þessar
upplýsingar ekki fyrir. Landbún-
aðarskólinn og Hólaskóli heyra
undir landbúnaðarráðuneytið, en
ekki undir menntamálaráðuneytið
eins og aðrir háskólar.
Úttektin leiðir í ljós að heildar-
tekjur Háskólans á Akureyri eru
lítið hærri en tekjur Háskólans í
Reykjavík þrátt fyrir að rúmlega
hundrað fleiri ársnemar stundi
nám á Akureyri og starfsmanna-
fjöldi þar sé tæplega tvöfaldur á við
Háskólann í Reykjavík. Háskólinn
í Reykjavík getur innheimt skóla-
gjöld af nemendum sínum og voru
tekjur vegna skóla- og skráning-
argjalda um þriðjungur af tekjum
skólans á síðasta ári, eða tæplega
336 milljónir. Tekjur af skóla- og
skráningargjöldum voru um 42
milljónir í Háskólanum á Akur-
eyri á sama tíma og rúmlega 151
milljón í Viðskiptaháskólanum á
Bifröst. Háskólinn í Reykjavík
hefur 424 skráða nemendur, en
Háskólinn í Reykjavík 1.361. Á
móti háu hlutfalli skóla- og skrán-
ingargjalda í tekjum Háskólans í
Reykjavík og Viðskiptaháskólann
á Bifröst fá þessir tveir háskólar
minnst framlag ríkisins á hvern
skráðan nemanda. Háskólinn í
Reykjavík fékk 337 þúsund frá rík-
inu á hvern skráðan nemanda árið
2004, en Bifröst 380 þúsund. Hóla-
skóli fékk hæsta framlagið frá rík-
inu á hvern skráðan nemanda eða
1.661 þúsund og landbúnaðarhá-
skólinn fékk 1.179 þúsund. Háskóli
Íslands fékk á sama tíma 549 þús-
und á hvern skráðan nemanda.
Þorsteinn segir úttektina sýna að
þörf sé á hærri fjárframlögum frá
ríkinu ellegar verði þrautalend-
ingin sú að lokum að óskað verður
eftir að skólagjöld verði innheimt.
„Við jukum fjölda nýnema við skól-
ann samkvæmt óskum mennta-
málaráðuneytisins á sínum tíma.
Sú fjölgun var það mikil að ákveð-
ið var að setja aftur takmarkanir
en það sem verður að hafa í huga
er að þeir nemendur sem hingað
koma eru hér að meðaltali í þrjú
ár og það tekur ákveðinn tíma að
ná jafnvægi á ný.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, menntamálaráðherra, hefur
látið hafa eftir sér að ekki verði
um aukafjárveitingu að ræða í
fjárlögum til handa Háskólanum á
Akureyri en farið verði yfir fjár-
hagsstöðu hans fljótlega með það
í huga að finna lausn á bágri stöðu
hans.
Skólagjöld eru næsta skref
NEMAR VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI Tekjur Háskólans á Akureyri námu 651 þúsund krón-
um á hvern skráðan nema árið 2004. LJÓSMYNDIR MYNDRÚN EHF / RÚNAR ÞÓR
Í þessari viku var opnuð að nýju bráðamóttaka við Sjúkrahúsið Vog. Við
það tilefni sagði Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, að móttakan
hefði gífurlega mikla þýðingu í bar-
áttunni við áfengis- og fíkniefnabölið.
Bráðamóttakan var starfrækt frá því árið
2003 og þar til í byrjun þessa árs en þá
varð að loka henni vegna fjárskorts.
Hvernig verður bráðamóttakan
rekin?
Bráðamóttakan verður rekin þannig að
fyrirtæki og einstaklingar verða fengin til
að skuldbinda sig til að greiða ákveðna
upphæð á mánuði í tvö til þrjú ár til
rekstursins. Nú þegar hafa sjö fyrirtæki
fengist til þess. Reksturinn kostar um 45
milljónir á ári. Björgólfur Guðmundsson,
Jóhannes Jónsson og Hendrik Berndsen
hafa beitt sér mjög til að fá rekstrarfé.
Hversu mörg pláss verða eftir opnunina?
Með opnuninni fjölgar sjúkrarýmum um 250 á ári. Það þýðir að bráða-
innlagnir geta orðið á bilinu fimm til
sjö hundruð á ári á sjúkrahúsinu.
Hvaða þýðingu hefur þetta
fyrir sjúklingana?
Með opnun bráðamóttökunnar
getur fólk sem á við vímuefnavanda
að etja og vill gera eitthvað í sínum
málum fengið meðhöndlun strax.
Áður gat það þurft að bíða jafnvel
mánuðum saman. Á þeim tíma sem
leið meðan fólk í slíkum vanda beið
eftir plássi gat hins vegar ýmislegt
gerst, segir Þórarinn Tyrfingsson, og
telur að best sé bæði fyrir einstakl-
inginn og þjóðfélagið að hægt sé að
sporna við sem fyrst.
FBL GREINING: BRÁÐAMÓTTAKAN Á VOGI
Sjúkrarýmum fjölgar um 250 á ári
> Gestakomur á hótel í október
Svona erum við
Þjófnaður í verslunum á Íslandi nemur
þremur til fjórum milljörðum króna
á ári, þar af er stór hluti í desember.
Sigurður Þ. Jónsson, framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu, segist
ekki vita hversu hátt hlutfallið er en
nógu mikið til þess að verslunum þyki
ástæða til að auka öryggisviðbúnað
fyrir jólin. Eigendur og starfsmenn í
verslanamiðstöðvum og verslunum
séu meira á tánum því að aukinni
umferð fylgi aukin hætta á hnupli.
Í hverju er öryggisvarslan falin?
Þetta fer fram með vélbúnaði og
mannlegri vöktun, það er jafnvel bætt
við mannskap eða búnaði fyrir jólin.
Í verslanamiðstöðvum eru merktir
öryggisverðir allt árið, lögreglumenn
og öryggisverðir, en annars staðar
ekki. Það þykir ekki ástæða til að
merkja öryggisverði þó að í því felist
einhver fælingarmáttur. Það eru bara
einhverjir fengnir til að fylgjast með.
Annars eru menn á varðbergi og nota
tæknina, myndavélar og annað.
Eru þetta einstaklingar eða hópar
sem stela?
Kannanir frá Bretlandi sýna að
atvinnuþjófar láta lítið fyrir sér fara í
desember því þá er aukin gæsla. Þeir
eru meira á ferðinni á öðrum árstím-
um, bæði einstaklingar og gengi. Hér
hafa þjófagengi verið upplýst en ég
veit ekki hversu mikið er hægt að tala
um atvinnuþjófa. Það er þó ljóst að
sumir eru meiri „fagmenn“ í þessu en
aðrir. Í hópnum eru bæði áhugamenn
og fagmenn.
SPURT & SVARAÐ
ÖRYGGISMÁL VERSLANA
Mest stolið í
desember
SIGURÐUR Þ. JÓNSSON
Framkvæmdastjóri SVÞ.
Heimild: Hagstofa Íslands
FRÉTTASKÝRING
ALBERT ÖRN EYÞÓRSSON
albert@frettabladid.is
Nemendur:
8.932
Starfsmenn:
985
Ríkisframlag:
4,9 milljarðar kr.
Aðrar tekjur: 2,7 milljarðar kr.
Tekjur á hvern skráðan nemanda:
856 þúsund kr.
Háskóli Íslands
Nemendur: 1.361
Starfsmenn: 94
Ríkisframlag: 458
milljónir kr.
Aðrar tekjur: 520
milljónir kr.
Tekjur á hvern skráðan nemanda:
720 þúsund kr.
Háskólinn í Reykjavík
Nemendur: 105
Starfsmenn: 56
Ríkisframlag: 174.4
milljónir kr.
Aðrar tekjur: 134
milljónir kr.
Tekjur á hvern skráðan nemanda:
2,9 milljónir kr.
Hólaskóli
Nemendur: 424
Starfsmenn: 33
Ríkisframlag: 161
milljón kr.
Aðrar tekjur: 220
milljónir kr.
Tekjur á hvern skráðan nemanda:
899 þúsund kr.
Viðskiptaháskólinn á
Bifröst
Nemendur:
1.512
Starfsmenn:
177
Ríkisframlag:
727 milljónir kr.
Aðrar tekjur: 256 milljónir kr.
Tekjur á hvern skráðan nemanda:
651 þúsund kr.
Háskólinn á Akureyri
Nemendur: 164
Starfsmenn: 49
Ríkisframlag: 193
milljónir kr.
Aðrar tekjur: 77
milljónir kr.
Tekjur á hvern skráðan nemanda:
1,65 milljón kr.
Landbúnaðarháskóli
Íslands
Nemendur:
371
Starfsmenn:
80
Ríkisframlag:
427 milljónir kr.
Aðrar tekjur: 58 milljónir kr.
Tekjur á hvern skráðan nemanda:
1,3 milljónir kr.
Listaháskóli Íslands
Nemendur: 2.302
Starfsmenn: 180
Ríkisframlag: 1.2
milljarður kr.
Aðrar tekjur: 200
milljónir kr.
Tekjur á hvern skráðan nemanda:
602 þúsund kr.
Kennaraháskóli
Íslands
TEKJUR HÁSKÓLANNA
Töflurnar sýna tekjur háskólanna. Rauður litur sýnir að skóli sé undir meðaltekjum en
grænn sýnir að skólinn sé með meira en meðaltalstekjur á hvern skráðan nemanda. Meðal-
tekjur skólanna á hvern skráðan nemanda eru 813 þúsund krónur.
Allar tölur miðast við árið 2004.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
Mest lesna
vi›skiptabla›i›
G
al
lu
p
kö
nn
un
f
yr
ir
36
5
pr
en
tm
i›
la
m
aí
2
00
5.