Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 34

Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 34
 8. desember 2005 FIMMTUDAGUR34 hagur heimilanna > Meðalverð á einum lítra af rjóma í ágúst. Miðað við verðlag á öllu landinu. Útgjöldin Reykvíkingum býðst nú að fá sérmerkta endurvinnslutunnu frá Gámaþjónustunni við heimili sín, sem losuð verður á fjögurra vikna fresti og kostar þjónustuna 990 krónur á mánuði. Í tunnuna er hægt að setja allan pappír sem til fellur á heimilum, svo sem dagblöð, tímarit, umslög, skrifstofupappír og pappa. Einnig verður hægt að setja fernur, plastumbúðir og málma í endurvinnslutunnuna. Allan pappír og pappa á að setja beint í tunnuna, en annað á að flokka eftir tegund úrgangs og setja í plastpoka. Starfsfólk Gámaþjón- ustunnar mun svo flokka innihald tunnunnar þegar söfnunarbíllinn er losaður. ■ Verslun og þjónusta Endurvinnslutunnur heimila Umhverfisráðuneytið hefur gefið út reglugerð, þar sem bannað er að selja og dreifa málningu og lakk sem inniheldur ákveðið magn af rokgjörnum lífrænum leysiefnum. Leyfilegt leysiefnainnihald verður breytilegt eftir gerð vörunnar og verður reglugerðin virk í tveimur áföngum. fyrst frá og með 1. janúar 2007 og síðan frá og með 1. janúar 2010. Umbúðir fyrir málningu og lakk skulu merktar með inni- haldslýsingu, sem sýna fram á að vörurnar uppfylli þau skilyrði sem reglugerðin kveður á um. Tilgangur með reglugerðinni er að draga úr loftmengun af völdum uppgufunnar frá lífrænum efnasamböndum. ■ Verslun og þjónusta Bann við sölu á málningu og lakki Friðrik Friðriksson arkitekt rifjar upp verstu kaup lífs síns. Kaupin áttu sér stað í fyrravor þegar hann fjárfesti í forritunarpakka hjá verkfræðistofu fyrir 250 þúsund krónur. Forritunarpakkinn virkaði aldrei. „Þeir seldu mér ákveðinn pakka sem aldrei virkaði og þeir vildu ekki viðurkenna það, sögðu alltaf að ég yrði að læra á pakkann og breyta því sem þeir höfðu gert. Ég sagði á móti að ég ætti ekki að þurfa að breyta neinu eða laga neitt því að pakkinn átti að vera þannig uppsettur. En Þessi forritunarpakki hefur aldrei virkað og er þau alverstu kaup sem ég hef nokkru sinni gert,“ segir hann. Bestu kaup Friðriks eru lítil fartölva, Fujitsu Siemens, sem hann keypti fyrir fjórum til fimm árum. „Sölumaðurinn vildi ekki selja mér hana. Hann vildi frekar selja mér stærri og dýrari tölvu en ég vildi þessa litlu tölvu og ég hef ekki enn í dag séð neina vél sem slær hana út þó að hún sé orðin þetta gömul. Tölvan er lítil og nett og hentar mér afskaplega vel sem aukavél, hún hefur í rauninni nýst mér miklu betur en ég átti von á í upphafi og samt kostaði hún aðeins helming af því sem stóra og dýra vélin átti að kosta sem sölumaðurinn vildi selja mér. Friðrik notar fartölvuna til að vinna heima, fara í gegnum tölvu- póstinn, færa bókhaldið og svo hefur hann í henni teikniforrit til að vinna smærri verk. Þetta getur hann þó að tölvan hafi bara tíu tommu skjá. NEYTANDINN: FRIÐRIK FRIÐRIKSSON ARKITEKT Tölva og forritunarpakki ■ Sigmar Vilhjálmsson, betur þekkt- ur sem Simmi Idol-stjórnandi, notar dagblöð til að fægja spegla og rúður. „Þú heldur að ég sé að djóka, en það hélt ég líka þegar ég heyrði þetta fyrst,“ segir Simmi og leggur áherslu á að þetta sé gott húsráð. „Þetta er besta leiðin til að fægja rúður og spegla, þetta skilur ekki eftir sig tusku- far,“ segir hann, og leggur til að þeir sem ekki trúi honum nái sér í dagblað og prófi að fægja klósettspegilinn. „Það er líka gott að pússa svarta skó með dagblaði, skósvertan skilur þá eftir sig gljáa á skónum. Þetta er húsráð sem virkar,“ segi Simmi. GÓÐ HÚSRÁÐ DAGBLÖÐ GÓÐ Á GLER Fjölmargir hafa kosið að merkja bílnúmer bifreiða sinna með einkanúmeri. Hægt er þá að velja um tvo til sex tölustafi eða bókstafi sem mynda bílnúmer sem er ekki í notkun. Fyrir réttinn til slíks einkamerkis eru greiddar 25.000 krónur. Þegar sótt er um einkamerki er einnig greitt fyrir framleiðslu númeraspjaldanna, það kostar 5.200 krónur eða 2.600 krónur fyrir hvort spjald, og 500 krónur fyrir skráningu einkamerkja á ökutæki. Upphafsgjaldið er því 30.700 krónur. Rétturinn gildir í átta ár og er þá hægt að endurnýja hann í önnur átta ár gegn greiðslu réttindagjaldsins, 25.000 krónur. Ef flytja á einkamerki á milli bifreiða í eigu rétthafa, kostar það 2.300 krónur og 500 krónur fyrir skráningu á flutningi merkja á milli ökutækja. ■ Hvað kostar... einkamerking bílnúmera Upphafsgjald er 30.700 Tónlistarhátí ð á jólaföstu í Hallgrímskirkju 2005 Tónlistarhátí ð á jólaföstu í Hallgrímskirkju 2005Tónlistarhátí ð á jólaföstu í Hallgrímskirkju 2005 Tónlistarhátí ð á jólaföstu í Hallgrímskirkju 2005 � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �������������������������������� ���������������������������� ������������������������� ������ ������������� ��������������� ������������������������� �������� ������ ������� ������������ ���������������� �������� ����������������� �������������� �������� ������������������ �������������� �������� ����������������� �������������� �������������������������������������������������������������������������������������������������������� ������������������������������������������� ������������������������������������������������������� �������������������� ��������������������� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � ������� Á fyrsta sunnudegi í aðventu birt- ust kertaskreyttir aðventukransar á flestum heimilum og jólaljós út í glugga. Margir hafa tekið skref- ið lengra og skreytt heimili sín að utan með útiljósum. Það er margs að gæta þegar kemur að slíkum skreytingum, ef við vilj- um halda brunalaus og örugg jól. Flestar nýjar jólaseríur sem nota á innandyra eru þannig að þegar deyr á einni ljósaperu, loga hinar áfram. En eftir því sem slokknar á fleiri perum eykst ljósstyrkur hverrar þeirrar peru sem eftir lifir og þar með hiti þeirra. Það sama getur gerst ef notuð er pera af rangri stærð eða gerð. Ef ljósaperur ofhitna getur það skapað brunahættu og því er mikilvægt að skipta strax um bil- aðar perur í seríum. Vegna þess að ljósaseríur gefa frá sér hita er mikilvægt að þær séu hafðar í nægja n- legri fjar- lægð frá brennanlegu efni. Því er mjög varasamt að hylja seríur með pappírsskrauti eða öðru eldfimu efni. Þá er ekki rétt að hafa jóla- seríur of nálægt gluggatjöldum. Það eru þó ekki allir sem kaupa ný ljós fyrir hver jól. Margir eiga gamlar og fallegar seríur. Reglu- lega þarf að láta að líta á þessi ljós því leiðslur vilja trosna og klærn- ar brotna. Oft má gera þessi ljós sem ný, og því er óþarfi að henda þeim þó svo að þau bili eitthvað, en þau geta verið varasöm ef þau fá ekki nauðsynlegt viðhald. Þegar jólaljósin eru keypt má finna skýrar merkingar sem segja til um hvort ljósin séu til notkunar inni eða úti. Útiljós má nota inni, en það getur verið stórhættulegt að nota inniljósin úti. Þegar útiljósin eru sett upp þarf að gæta þess að perurnar vísi alltaf niður, svo að vatn geti ekki safnast í perustæðunum. Þá er mikilvægt að festa útiljósin vand- lega, þannig að perurnar geti ekki slegist utan í eitthvað og brotnað. Ljósum prýdd heimili fyrir jólin: Eldri ljós geta verið hættuleg Starfsfólkið á Póstmiðstöð- inni sér eitt og annað undar- legt í sinni vinnu. Eins og bréf til Sveinka og böggul fyrir Jón Jónsson í Ósló. Vinnslustjórinn á nokkur hollráð fyrir þá sem ætla að senda flugböggul til útlanda fyrir þessi jól. „Það eru Íslendingar úti um allan heim svo við látum okkur ekki bregða þó við sjáum böggla merkta hinum fjarlægustu löndum,“ segir Sveinbjörn Svavarsson, vinnslu- stjóri á Póstmiðstöðinni. Hann lætur sér líka fátt fyrir brjósti brenna enda séð margt undarlegt í sinni vinnu. „Ég veit það að einhvers staðar getur það gengið að merkja böggulinn aðeins nafni og svo þorpi ef hann er send- ur innanlands. Það væri eflaust ekki erfitt að finna Jón Jónsson í Búðardal til dæmis. Hins vegar eru afar litlar líkur á því að bögg- ullinn komist til skila ef hann er merktur Jóni Jónssyni í Ósló en það vill brenna við að sumir merki bögglana með slíkum hætti,“ segir Sveinbjörn og brosir við. Hann segir að menn verði að huga vel að síðustu skiladögum fyrir flugböggla en skiladagarnir eru misjafnir eftir svæðum, eðli málsins samkvæmt. „Til dæmis eru þeir sem ætla að senda böggul með flugpósti til Bandaríkjanna helst til seinir. En seinasti skiladagur fyrir Evrópu er 13. desember,“ útskýrir vinnslustjórinn. Hann bendir á að þeir sem eru seinir geti alltaf sent með TNT hraðpósti sem Pósturinn hefur upp á að bjóða. Margt bera að íhuga varðandi innihaldið að sögn Sveinbjarnar. „Við gefum okkur ekki út fyrir að senda matvæli en menn eru samt að senda þetta og það er allt í lagi að gera það til vissra landa, í öðrum þarf vottorð frá dýralækni. Hins vegar verður maður var við það að það fólk er að senda malt og appels- ín til ættingja sinna í útlöndum en það þarf þá að búa þannig um það að það geti ekki lekið á annan póst,“ segir Sveinbjörn. „Svo koma hingað nokkuð mörg bréf að utan til jólasveinsins. Það er reyndar einhver sem tekur við þeim pósti en ég hef ekki ráðið þá ráðgátu frekar,“ segir Sveinbjörn. jse@frettabladid.is Til Jóns Jónssonar í Ósló ALLT Á FULLU Á PÓSTMIÐSTÖÐINNI Starfsfólkið á Póstmiðstöðinni lætur sér fátt fyrir brjósti brenna í annríkinu þó ýmislegt undarlegt reki á fjörur þess. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI SÍÐUSTU ÖRUGGU SKILADAG- ARNIR FYRIR JÓLABÖGGLA TIL ÚTLANDA Utan Evópu 5. des. Til Evrópu 13. des. Utan Evrópu með TNT hraðpósti 20. des. Til Evrópu með TNT hraðpósti 21. des. 30 prósenta afsláttur er á TNT hraðsend- ingum í desember. VERÐ FYRIR BÖGGLA Í FLUGPÓSTI Grunnverð Hvert kíló Danmörk 1.050 kr. 285 kr. Finnland, Svíþjóð 1.560 kr. 285 kr. Noregur, Færeyjar, Grænland 1.365 kr. 285 kr. Evrópa 1.555 kr. 370 kr. Norður-Ameríka 1.440 kr. 670 kr. Afríka og Mið-Austurlönd 1.440 kr. 670 kr. Asía 1.735 kr. 790 kr. Eyjaálfa 1.795 kr. 1.020 kr. Heimild: www.postur.is 71 2 69 9 71 4 65 7 45 3 20042003 2001 2002 2005

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.