Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 38

Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 38
 8. desember 2005 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Ég sat við vinnu mína, þegar sím- inn hringdi: það var lögreglan. Ég sperrti eyrun. Erindi hringjarans var að bjóða mér góðfúslega á lögreglustöðina til léttrar yfir- heyrslu að ósk ríkissaksóknara. Tilefnið var, að ég hafði nokkru áður skýrt frá því hér í blaðinu, að ónafngreindur sessunautur minn í flugvél, einn af virðingarmönn- um íslenzks atvinnulífs, hefði sagt mér nöfn sakborninganna sex í Baugsmálinu, áður en ákæran var birt. Mér var ljúft að þekkjast boð lögreglunnar, sagðist reyndar vera nýfluttur í hverfið, stutt að fara. Yfirheyrslan hófst á því, að fulltrúi lögreglunnar sýndi mér ljósrit af greininni, sem var til- efni heimsóknarinnar („Kannski tuttugu manns“ heitir hún og er endurprentuð í glænýju greinasafni mínu, Tveir heim- ar, Háskólaútgáfan, 2005). Hann spurði: Skrifaðir þú þessa grein? Ég játti því. Síðan reyndi ég, eið- svarinn, að greiða eftir beztu getu úr spurningum lögreglumannsins, nema ég hlaut sem blaðamaður og pistlahöfundur að áskilja mér rétt til þess að greina ekki frá nafni viðmælanda míns í vélinni. Ríkis- saksóknari virti þessa afstöðu og lét málið falla niður og sendi frá sér bréf þess efnis. Og hvað gerist? Mogginn fer af stað. Hinn 30. september birtir Morgunblaðið mér svohljóðandi orðsendingu í ritstjórnargrein: „Er Þorvaldur Gylfason búinn að upplýsa lögregluna um hver þessi „ónefndi maður“ er? Það er alvar- legt mál, ef einhver „innvígður“, sem búið hefur yfir vitneskju um hverjir yrðu ákærðir af eðlilegum ástæðum, segir samferðamanni frá því fyrir birtingu ákæru. Það er líka alvörumál, ef einhver, sem ekki átti að búa yfir vitneskjunni hefur haft hana undir höndum. Í báðum tilvikum er ljóst, að nauð- synlegt er að opinber rannsókn ... nái til þessarar frásagnar Þor- valdar Gylfasonar. Prófessorinn er því kominn í hóp þeirra, sem rannsóknin hlýtur að ná til.“ Hér er Morgunblaðið að hvetja til þess berum orðum, að ég sé knú- inn til að rjúfa þá höfuðskyldu sérhvers blaðamanns að vernda heimildarmenn sína - og það eftir að fram kom í fréttum, að rann- sókn málsins væri lokið. Ætla mætti, að Siðanefnd blaðamanna léti slíka aðför Morgunblaðsins að réttindum og skyldum dálkahöf- undar til sín taka, en reglur nefnd- arinnar leyfa henni ekki að taka slíkt frumkvæði. Þær leyfa þeim einum, sem eiga hagsmuna að gæta, að leggja fram kæru innan tveggja mánaða. Vonsviknir les- endur, sem bera hag og virðingu Morgunblaðsins fyrir brjósti, telj- ast ekki eiga hagsmuna að gæta og geta því ekki kært. Ég kærði mig kollóttan. Viku áður, 23. september, hafði Morgunblaðið birt heilsíðuviðtal við Harald Johannessen ríkislög- reglustjóra, þar sem hann byrjar svar sitt við spurningu blaða- manns um frásögn mína í Frétta- blaðinu á þessa leið: „Ég veit ekki hver þessi huldumaður er eða hvort hann er í raun og veru til.“ (Leturbreyting mín, ÞG.) Síðari hluti setningarinnar jafngildir ásökun um meinsæri, sýnist mér, þar eð lögreglustjóranum bar skylda til að vita um eiðsvarinn vitnisburð minn um samtalið í flugvélinni. Lögmenn tjá mér, að líklega hafi Haraldur Johannes- sen með þessu tali gerzt brotlegur gegn 236. grein hegningarlaga. Hvers vegna fer ég ekki í mál? Því er fljótsvarað: málshöfðun er ekki minn stíll. Hvers vegna rýf ég ekki regluna? - ef það mætti verða til þess, að ríkislögreglustjórinn segði af sér. Ég hef ekki trú á því, að lögreglustjórinn sæi ástæðu til að segja af sér, þótt hann fengi sektardóm. Þessir menn segja aldrei af sér: það er ekki þeirra stíll. Seðlabanki Íslands er eini seðlabankinn norðan (og sunn- an!) Miðjarðarhafs, þar sem aðal- bankastjórinn hefur fengið dóm fyrir meiðyrði - og menn virðast gera sér það að góðu; Seðlabank- inn nýtur ekki meiri virðingar en svo. Í Hæstarétti Íslands situr nú dómari, sem skilur eftir sig slóða af bréfum með ávörpum eins og: „Þú ert einhver ömurlegasta persóna sem ég... Framkoma þín bendir til þess að þú sért ekki heill heilsu.“ (úr bréfi dómarans til Þorvarðs Elíassonar skólastjóra, bréfið var birt í blöðunum). Annað sýnishorn: „Ég ... legg til að þú kannir betur heimildir þínar næst ... Hef ég þar í huga þína hags- muni en ekki mína“ (úr bréfi til læknis, sem hafði farið með rétt mál í aðsendri Morgunblaðsgrein og dómarinn, þáverandi lögmaður Morgunblaðsins, þekkti ekki neitt). Svona bréf senda menn ekki einu sinni frá sér á Sikiley - einmitt til að eiga það ekki á hættu, að þau birtist í blöðunum. ■ Mogginn sýnir gómana Í DAG BLÖÐ, BLAÐA- MENN OG MANNASIÐIR ÞORVALDUR GYLFASON Í Hæstarétti Íslands situr nú dómari, sem skilur eftir sig slóða af bréfum með ávörp- um eins og: „Þú ert einhver ömurlegasta persóna sem ég... Framkoma þín bendir til þess að þú sért ekki heill heilsu.“ AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Mest lesna vi›skiptabla›i› G al lu p kö nn un fy rir 3 65 p re nt m i› la m aí 2 00 5. Einokunin Höfundur Staksteina Morgunblaðsins spyr í blaðinu í gær hver eigi að gæta almannahagsmuna og hvers vegna þingnefndir geti ekki tekið upp rann- sókn mála á borð við markaðsráðandi stöðu Baugs á íslenskum matvöru- markaði. Tilefnið er fyrirspurn Ástu Möller, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, til viðskiptaráðherra um markaðsráðandi stöðu Baugs á íslenska matvörumark- aðnum. Ásta sagði að verslunarkeðjan Tesco hefði 30 prósenta markaðs- hlutdeild á breska matvöru- markaðnum og fjórar keðj- ur hefðu alls 74 prósenta hlutdeild. Þetta hefði orðið tilefni til rannsókna af hálfu þingnefndar þar í landi. „Á síðustu fjórum árum hafa 20 prósent sjálf- stæðra verslana lagt þar upp laupana... Yfirburðastaða keðjunnar gerir henni kleift að standa undir undirboðum og óheilbrigðum verslunarháttum,“ sagði Ásta. Því vildi Ásta vita hvað menn segðu um 60 prósenta hlutdeild Baugs hér á landi þegar 30 prósenta hlutdeild Tesco væri kölluð einokun í breskum fjölmiðlum? Böl kapítalsimans Staksteinahöfundur gat að vísu ekki um að Ásta hafi lesið upp úr nýlegri Morg- unblaðsgrein Jónasar Haralz og Jóhanns J. Ólafssonar um „ribbaldaskeið ungs kapítalisma“ þar sem einmitt var varað við áhrifum manna eins og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Hannesar Smárasonar, Björgólfs Thors Björgólfssonar og annarra stórkapítalista sem hneigðust til þess að fylgja þeim leikreglum einum sem hentuðu hverju sinni. Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráð- herra kvaðst ekki hlutast til um störf Samkeppniseftirlitsins og virtist sem það kæmi flatt upp á hana að Ásta og samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn vildu hafa eftirlit með eftirlitsstofnun sem vinnur beinlínis við að vernda almanna- hagsmuni. „Ég er hissa á að heyra þessar áherslur hjá háttvirtum þingmanni með tilliti til þess að við gengum í gegn um heilmikla vinnu hér á síðasta þingi, fyrst í nefnd sem ég skipaði og þar voru full- trúar samstarfsflokksins... Ég gerði mér ekki grein fyrir á þeim tíma að það væru uppi aðrar hugmyndir í Sjálfstæðisflokknum í sambandi við þetta mál,“ sagði Valgerður. johannh@frettabladid.is Á sama tíma og utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, undirritaði samkomulag við varnarmálaráðherra Rúmena um afnot Bandaríkjamnana af herstöðvum þar í landi, birtu alþjóðlegar fréttastofur og fjölmiðlar víða um heim stöðugt fleiri fréttir af leynifangelsum Bandaríkjamanna í Aust- ur-Evrópu, einkum Póllandi og Rúmeníu. Stjórnvöld í báðum þess- um löndum hafa neitað tilvist slíkra fangelsa en samt heldur orðr- ómurinn áfram. Lýsingar á meðferð meintra hryðjuverkamanna í fangelsum utan Bandaríkjanna eru ótrúlegar og minna helst á meðferð manna á miðöldum eða á tímum nasista í Evrópu. Bæði Pólverjar og Rúmenar hafa verið með hermenn í Írak til stuðnings Bandaríkjamönnum og við undirskrift herstöðvasamn- ingsins í Rúmeníu í vikunni staðfestu þarlend yfirvöld að hermenn þeirra myndu áfram verða þar. Pólverjar hafa verið þar með mun fleiri hermenn og þeir hafa lagt sig í líma við að þvo af sér komm- astimpilinn, ef svo má að orði komast, og vingast við Bandaríkja- menn á margvíslegan hátt. Rúmenar eru fátæk þjóð, sem berst nú fyrir því að komast í Evrópusambandið. Þeir hafa líklega talið herstöðvasamninginn heppilegan í ljósi þess, þótt ekkert samband eigi þó að vera á milli hans og aðildarinnar að ESB. Í fyrra hafði varnarmálaráðherra Bandaríkjanna viðkomu á herflugvelli í Rúmeníu og er það líklega sá sami og á að hýsa aðalstöðvar Bandaríkjamanna þar í landi, samkvæmt hinum nýgerða samningi. Ef lýsingar alþjóðlegra fréttastofa af yfirheyrsluaðferðum CIA utan Bandaríkjanna eru réttar ættu þeir að skammast sín. Þær samrýmast ekki siðuðum þjóðum, þó svo að um meinta hryðju- verkamenn sé að ræða. Þessar upplýsingar eru hafðar eftir fyrr- verandi og núverandi starfsmönnum CIA og á meðan annað hefur ekki komið fram verður að telja þær réttar. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefður reyndar verið á stöð- ugu undanhaldi í þessu máli allt frá því hún lagði upp í Evrópu- ferðina frá Bandaríkjunum. Í upphafi ferðar viðurkenndi hún að borgaralegar flugvélar hefðu verið notaðar til að flytja meinta hryðjuverkamenn milli landa, en gat þess jafnframt að þar væri við erfið mál að eiga. Nokkrar þessara flugvéla hafa sem kunnugt er haft viðkomu hér á landi en ekki er vitað til þess að um borð í þeim hafi verið fangar. Nýjustu fréttir herma að Bandaríkjastjórn hafi látið undan þrýstingi varðandi yfirheyrsluaðfeðir, því utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði þegar hún kom til Úkraínu að hér eftir giltu sömu aðferðir varðandi yfirheyrslur yfir mönnum innan Banda- ríkjanna og utan þeirra. Vitnaði hún í samþykkt Sameinuðu þjóð- anna varðandi þessi mál, en þar eru ákvæði sem banna pyntingar við yfirheyrslur. Bandaríkjamenn verða að leggja öll spilin á borð- ið í þessu máli. Það er þeim sjálfum fyrir bestu. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Condoleezza Rice ver gerðir stjórnarinnar. Undanhald í málum CIA Ef lýsingar alþjóðlegra fréttastofa af yfirheyrslu- aðferðum CIA utan Bandaríkjanna eru réttar ættu þeir að skammast sín. Þær samrýmast ekki siðuðum þjóðum, þó svo að um meinta hryðjuverkamenn sé að ræða.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.