Fréttablaðið - 08.12.2005, Qupperneq 39
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Heimild: Almanak Háskólans
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagurinn 8. desember,
342. dagur ársins 2005.
Besta flíkin í fataskáp
Sólveigar Samúelsdótt-
ur söngkonu er forláta
leðurkápa sem kölluð er
Kusa.
„Skinnkápan sem ég keypti í
Svíþjóð fyrir um það bil átta
árum á 120 íslenskar krónur
er í miklu uppáhaldi,“ segir
Sólveig Samúelsdóttir, söng-
kona og verðandi þriggja
barna móðir.
„Á þessum tíma vorum
við hjónin fátækir náms-
menn í Trollhättan og það
voru miklar vangaveltur um
það hvort ég ætti að splæsa í
kápuna góðu eða hvort ætti
að spara fyrir mjólkinni
næstu vikuna! Kápan varð
ofan á, við létum vatnið
duga í nokkra daga og varð
ekki meint af.“
Solla segist reglulega
fara í kápuna Kusu en hún
hlaut það nafn sökum þess
að skinnið líkist svo belju-
skinni. „Ég veit samt ekki
hvaða skinn þetta er, gæti
verið belja en gæti líka
verið eitthvert hjartardýr,
skiptir svo sem engu máli.
Kápan er jafn góð og ég hef
notað hana reglulega í öll
þessi ár, sannarlega bestu
kaupin sem ég hef gert!“
Um þessar mundir stend-
ur Solla í ströngu við útgáfu
og kynningu á fyrstu sóló-
plötu sinni sem hún vinnur
í samvinnu við bróður sinn
Samúel, sem er betur þekkt-
ur sem Sammi í Jagúar.
Diskurinn hefur hlotið
nafnið Melodia og inniheld-
ur hann blandaða djass-
kennda poppmúsík frá
sjöunda áratugnum ásamt
frumsömdum lögum eftir
Samma. Tilvalin tónlistar-
blanda til að njóta yfir
rauðvínsglasi í húminu.
Það eru eðaltónlistar-
menn sem sjá um undirleik
á disknum, engir aðrir en
liðsmenn bæði Jagúars og
Hjálma og svo kemur Páll
Óskar og syngur dúett með
Sollu í laginu We Have All
the Time in the World sem
Louis Armstrong gerði
frægt á sínum tíma.
Diskurinn kom út í vik-
unni og útgáfutónleikar
verða þann 13. desember í
Iðnó.
Þeim sem vilja vita meira
um þessi músíkölsku systkini
er bent á að kíkja á www.solla.
is og www.sjsmusic.com.
Kusan í
uppáhaldi
Kápan hennar Sólveigar eru bestu kaup sem hún hefur gert. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Reykjavík 11.03 13.20 15.36
Akureyri 11.15 13.04 14.54
Jólavörurnar streyma inn í
allar helstu tískuvöruverslan-
irnar þessa dagana. Þeir sem
eru ekki ennþá búnir að kaupa
jólafötin hafa úr ýmsu að velja
og ættu að fara og kynna sér
úrvalið í verslununum. Það
skemmtilega er að það
er nánast allt í tísku
svo allir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Húsgagnahöllin býður
upp á ýmsar vörur á heimilið
sem henta vel til jólagjafa. Á
www.husgagnahollin.is má
skoða myndir af vörum og
verð. Svo er náttúrlega bara
skemmtilegast að fara og
skoða í versluninni sjálfri.
Nýtt frumvarp heilbrigð-
isráðherra sem lagt var
fram á Alþingi í síðustu viku
gerir ráð fyrir að reykingar verði
bannaðar á veitingahús-
um og skemmtistöð-
um frá og með 1. júní
2007.
Jólaböll leikskóla,
skóla og vinnu-
staða verða mörg
haldin næstu daga
og vikur. Foreldrar
sem ekki eru búnir
að kaupa jólafötin
á börnin ættu að
gera það fljótlega
svo þau geti verið fín
á jólaböllunum. Jóla-
sveinahúfur eru líka
alltaf vinsælar hjá yngri
kynslóðinni á jólaböll-
um svo það er ágætt
að eiga eina slíka á
hvert barn.
LIGGUR Í LOFTINU
TÍSKA - HEIMILI - HEILSA - JÓL
KRÍLIN
Í skólanum lærum
við um hluti sem
hafa gerst en höf-
um ekki hugmynd
um á meðan þeir
eru að gerast!
SEYMA
Silki, ull og taft seljast
vel bls. 2
NÝ VERSLUN
Söstrene Grene í
Smáralind bls. 8
HEILSUPÚÐAR
Fyrir kyrrsetufólk
bls. 13
JÓLAVEÐRIÐ
Rauð jól og hvít
bls. 10