Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 49

Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 49
FIMMTUDAGUR 8. desember 2005 11 Allar dúnsængur og dúnkoddar frá Gæði & Mýkt eru merktar og viðurkenndar af danska astma og ofnæmisfélaginu. Flestar dúnsængur frá Gæði & Mýkt eru með 15 ára ábyrgð. Dúnsængur og dúnkoddar frá Gæði & Mýkt má þvo., Allar dúnsængur og dúnkoddar frá Gæði & Mýkt eru með dún og fiðurheldu bómullaráklæði. Aloe Vera gæsdúnsæng 135x205 kr. 18.900- Aloe Vera gæsdúnkoddi 50x70 kr. 7.900- Frábært jólatilboð Opnunartími: Virka daga 11-18 • Fimmtudaga 11-21 • Laugardaga 13-16 - í svefninn þinn G r e n s á s v e g u r 1 2 , s í m i 5 6 8 1 9 1 9 Húsgögn og gjafavara Skeifan 3A við hlið Atlantsolíu 108 Reykjavík Sími: 517 3600 • Fax: 517 3604 mylogo@mmedia.is www.local1.is Tilboð á völdum vörum Skólavörðustíg 21 • Sími 551 4050 • Reykjavík Fyrir alla fjöldskylduna Bómullasatin silkidamask Góð gjöf gleymist ei verið velkomin Vandaður sængurfatnaður KRINGLAN Frá og með 8. desember er Kringlan komin á jólaopnunartímana. 8. til 10. desember verður opið frá klukk- an tíu á morgnana til tíu á kvöldin. Sunnudaginn 11. desember verður opið frá klukkan eitt eftir hádegi til klukkan tíu um kvöldið. Mánudag- inn 12. desember til fimmtudags- ins 22. desember er opið frá tíu á morgnana til tíu á kvöldin. Á Þor- láksmessu eru verslanir Kringlunnar opnaðar klukkan tíu og verður opið til klukkan ellefu á Þorláksmessu- kvöld. Á aðfangadag verður opið frá tíu til klukkan 13. Lokað verður á jóladag og annan í jólum en frjáls afgreiðslutími er 27. desember. SMÁRALIND Smáralindin verður opin frá tíu á morgnana til tíu á kvöldin frá 8. desember til 16. desember. Laug- ardaginn 11. desember verður Smáralindin opnuð klukkan ellefu, á sunnudaginn 12. desember klukkan eitt og báða dagana er opið til tíu um kvöldið. Opið er frá tíu á morgnana til tíu á kvöldin 14. til 16. desember og 19. til 22. desember. Síðustu helgina fyrir jól er opið frá tíu til tíu á laugardeginum og frá ellefu til tíu á sunnudeginum. Á Þorláksmessu verður opið frá ellefu til ellefu og á aðfangadag er opnað klukkan tíu og lokað klukkan eitt. MIÐBÆR Laugardaginn 10. desember verða búðir opnaðar klukkan tíu en sunnudaginn 11. desember þær klukkan eitt og eru verslanir opnar báða dagana til klukkan 18. Frá 15. desember til 22. desember eru búðir opnar frá tíu á morgnana til tíu á kvöldin nema sunnudaginn 18. desember en þá er opnað klukkan 13. Á Þorláksmessu verður opið frá tíu til ellefu um kvöldið og á aðfangadag verður opið frá níu til tólf. Opnanir verslana um jólin Góð stemning ríkti í Breið- holtslaug þegar einn gesturinn bauð óvænt upp á rjúkandi glögg og annað góðgæti. Vatnsleikfimitími hjá Brynjólfi Björnssyni kennara breyttist í veislu eitt kvöld í liðinni viku. Kristjana Hávarðardóttir, einn af fastagestunum, dró upp úr pússi sínu dýrindis ávexti og ber, piparkökur og fleira góð- gæti og breytti einni dýnunni í gnægtaborð við sundlaugar- bakkann. Mikla lukku vakti líka hin vermandi jólaglögg sem dúkkaði upp á bakkanum og gerð voru góð skil. Ekki lét Kristjana þar við sitja heldur kom líka með skemmtilegt upplestrarefni. Jafnan er góður andi í vatnsleik- fiminni hjá Brynjólfi og í þetta sinn var það jólaandinn. Glögg og gleði í sundlauginni Brynjólfur sundkennari var grallaralegur á bakkanum. MYND/KRISTJANA Kristjana eys af örlæti úr pottinum og gestirnir skála í glögg. MYND/BRYNJÓLFUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.