Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 8. desember 2005 11
Allar dúnsængur og dúnkoddar frá Gæði & Mýkt eru merktar og viðurkenndar af danska astma og ofnæmisfélaginu.
Flestar dúnsængur frá Gæði & Mýkt eru með 15 ára ábyrgð. Dúnsængur og dúnkoddar frá Gæði & Mýkt má þvo.,
Allar dúnsængur og dúnkoddar frá Gæði & Mýkt eru með dún og fiðurheldu bómullaráklæði.
Aloe Vera gæsdúnsæng
135x205 kr. 18.900-
Aloe Vera gæsdúnkoddi
50x70 kr. 7.900-
Frábært
jólatilboð
Opnunartími: Virka daga 11-18 • Fimmtudaga 11-21 • Laugardaga 13-16
- í svefninn þinn
G r e n s á s v e g u r 1 2 , s í m i 5 6 8 1 9 1 9
Húsgögn og gjafavara
Skeifan 3A við hlið Atlantsolíu
108 Reykjavík
Sími: 517 3600 • Fax: 517 3604
mylogo@mmedia.is
www.local1.is
Tilboð á
völdum vörum
Skólavörðustíg 21 • Sími 551 4050 • Reykjavík
Fyrir alla fjöldskylduna
Bómullasatin
silkidamask
Góð gjöf gleymist ei
verið velkomin
Vandaður
sængurfatnaður
KRINGLAN
Frá og með 8. desember er Kringlan
komin á jólaopnunartímana. 8. til
10. desember verður opið frá klukk-
an tíu á morgnana til tíu á kvöldin.
Sunnudaginn 11. desember verður
opið frá klukkan eitt eftir hádegi til
klukkan tíu um kvöldið. Mánudag-
inn 12. desember til fimmtudags-
ins 22. desember er opið frá tíu á
morgnana til tíu á kvöldin. Á Þor-
láksmessu eru verslanir Kringlunnar
opnaðar klukkan tíu og verður opið
til klukkan ellefu á Þorláksmessu-
kvöld. Á aðfangadag verður opið
frá tíu til klukkan 13. Lokað verður
á jóladag og annan í jólum en frjáls
afgreiðslutími er 27. desember.
SMÁRALIND
Smáralindin verður opin frá tíu á
morgnana til tíu á kvöldin frá 8.
desember til 16. desember. Laug-
ardaginn 11. desember verður
Smáralindin opnuð klukkan ellefu, á
sunnudaginn 12. desember klukkan
eitt og báða dagana er opið til tíu um
kvöldið. Opið er frá tíu á morgnana
til tíu á kvöldin 14. til 16. desember
og 19. til 22. desember. Síðustu
helgina fyrir jól er opið frá tíu til tíu
á laugardeginum og frá ellefu til tíu
á sunnudeginum. Á Þorláksmessu
verður opið frá ellefu til ellefu og á
aðfangadag er opnað klukkan tíu og
lokað klukkan eitt.
MIÐBÆR
Laugardaginn 10. desember verða
búðir opnaðar klukkan tíu en
sunnudaginn 11. desember þær
klukkan eitt og eru verslanir opnar
báða dagana til klukkan 18. Frá
15. desember til 22. desember eru
búðir opnar frá tíu á morgnana til
tíu á kvöldin nema sunnudaginn 18.
desember en þá er opnað klukkan
13. Á Þorláksmessu verður opið
frá tíu til ellefu um kvöldið og á
aðfangadag verður opið frá níu til
tólf.
Opnanir verslana um jólin
Góð stemning ríkti í Breið-
holtslaug þegar einn gesturinn
bauð óvænt upp á rjúkandi
glögg og annað góðgæti.
Vatnsleikfimitími hjá Brynjólfi
Björnssyni kennara breyttist í
veislu eitt kvöld í liðinni viku.
Kristjana Hávarðardóttir, einn
af fastagestunum, dró upp úr
pússi sínu dýrindis ávexti og
ber, piparkökur og fleira góð-
gæti og breytti einni dýnunni
í gnægtaborð við sundlaugar-
bakkann. Mikla lukku vakti líka
hin vermandi jólaglögg sem
dúkkaði upp á bakkanum og gerð
voru góð skil. Ekki lét Kristjana
þar við sitja heldur kom líka með
skemmtilegt upplestrarefni.
Jafnan er góður andi í vatnsleik-
fiminni hjá Brynjólfi og í þetta
sinn var það jólaandinn.
Glögg og gleði í
sundlauginni
Brynjólfur sundkennari var grallaralegur á
bakkanum. MYND/KRISTJANA
Kristjana eys af örlæti úr pottinum og
gestirnir skála í glögg. MYND/BRYNJÓLFUR