Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 63
FIMMTUDAGUR 8. desember 2005 43
BRÉF TIL BLAÐSINS
UMRÆÐAN
LEIKSKÓLAR
BORGARINNAR
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
FORMAÐUR MENNTA- OG FRÆÐSLURÁÐS
REYKJAVÍKURBORGAR
Foreldrar leikskólabarna fá nærri
60 þúsund krónur á hvert barn
aukalega í vasann á næsta ári vegna
þess að Reykjavíkurlistinn tekur
annað skref í átt að gjaldfrjálsum
leikskólum strax um áramót.
Nú verður staðan sú að fimm
ára börn fá 5 klukkustundir á
dag gjaldfrjálsar, en í fyrra var
fyrsta skrefið tekið með þremur
stundum. Yngri börn fá lækkun
sem svarar til tveggja stunda. Á
mánuði hverjum þýðir þetta um
5.500 kr. á hvert barn. Almennur
launamaður þarf að auka mánað-
artekjur um nær 9.000 krónur til
að jafna slíka kjarabót sé tekið mið
af sköttum - það má því segja að
kjarabót fyrir hvert leikskólabarn
samsvari meira en 100 þúsund
krónum á ári.
Í haust átti ég fundi með dagfor-
eldrum um stöðu þeirra, en fækk-
un hefur orðið í þeirri starfsstétt á
liðnum árum. Til að tryggja stöðugt
framboð þessarar þjónustu fyrir
foreldra yngstu barnanna viljum
við auka framlög til dagforeldra
svo ekki komi til hækkun á töxt-
um, og vonandi munu fleiri taka að
sér að veita þessa þjónustu. Fyrir
hjón með barn hjá dagforeldri
eykst niðurgreiðslan úr rúmlega
13 þúsundum á mánuði í kringum
21 þúsund. Borgin stjórnar ekki
verðskrá þessari, en mikið má
vera ef 50 prósent aukning fram-
laga að meðaltali hafi ekki áhrif á
þjónustustigið í borginni.
Fyrir rúmum áratug, þegar
borgarbúar kusu að gefa Vilhjálmi
Þ. Vilhjálmssyni og félögum hans á
D-lista verðskuldað leyfi frá stjórn
borgarinnar, var staðan í leikskóla-
málum sú að „dagvistarúrræði“
fengust bara fyrir 3ja ára börn
og eldri og aðeins allan daginn ef
foreldri var einstætt! Nú er staðan
sú að leikskólar eru viðurkenndar
menntastofnanir með glæsilega
þjónustu sem meira en 90 prósent
notenda lýsa yfir mikilli ánægju
með. Matur er veittur í leikskól-
um. Næg rými eru til fyrir öll
börn 18 mánaða og eldri, en vegna
þenslu á vinnumarkaði höfum
við ekki getað mannað alla skól-
ana á þessu hausti. 30 til 40 börn
eru enn á biðlistum af um 6.000.
Vonir standa til að mikil kjarabót í
nýjum samningum leiði til að hægt
verði að fullmanna alla leikskóla
og auka starfsmenntun þeirra sem
ekki eru leikskólakennarar.
En innihald leikskólanna skiptir
máli. Faglegur metnaður leikskól-
akennara er mikill og því höfum
við stóraukið framlög til þróunar-
sjóðs leikskólanna fyrir nýsköpun-
arverkefni. Við erum því að taka
stór skref fram á við fyrir foreldra
og börn í Reykjavík á næstunni og
höfum til þess stuðning Reykvík-
inga. ■
Fyrir börn og foreldra
Davíð Örvar skrifar:
Merkileg staðreynd að á þessum
tímum þegar fólk má ekki reka stóru
tána í án þess að efnt sé til landssöfn-
unar skuli 500 kg. af kjöti vera fargað
án nokkur sjá eitthvað athugavert við
það. Þannig er nefnilega málum háttað
að ég las Fréttablaðið á dögunum og
þar var sagt frá skipverjum á Hólma-
borginni SU og Jóni Kjartansyni SU sem
voru að smygla inn kjöti til landsins en
voru teknir af lögreglunni á Eskifirði
og nú skal kjötið brennt. Ég hef ekki
enn gleymt því fólki sem stendur í röð
tímunum saman fyrir jól til þess að fá
jólamat, kjöt og meðlæti, datt engum í
hug að þetta hálfa tonn sem var tekið
af þessum mönnum gæti allavega
mettað einhverja maga? Er þetta virki-
lega besti eldiviðurinn?
Fyrir rúmum áratug, þegar
borgarbúar kusu að gefa
Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni
og félögum hans á D-lista
verðskuldað leyfi frá stjórn
borgarinnar var staðan í
leikskólamálum sú að „dagvist-
arúrræði“ fengust bara fyrir
3ja ára börn og eldri og aðeins
allan daginn ef foreldri var
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI