Fréttablaðið - 08.12.2005, Page 84
�����������
�������������� ��������������������������� ����������
�����������
�����������
Clint Eastwood ætti ekki að fara
varhluta af heiðursverðlaunum
á næstunni. Samtök kvikmynda-
leikstjóra (DGA) ætla að afhenda
honum viðurkenningu fyrir fram-
lag sitt til kvikmyndagerðar og
samtök framleiðanda (PGA) ætla
að heiðra hann með sams konar
hætti. Athafnirnar fara fram með
sex daga millibili í byrjun næsta
árs.
Eastwood er án vafa einn valda-
mesti maður kvikmyndaiðnaðar-
ins í Bandaríkjunum. Eftir að hafa
barist við óféti í spaghettívestr-
unum og gómað glæpamenn sem
Dirty Harry sneri Eastwood sér
í auknum mæli að leikstjórn og
hefur fáum leikurum tekist jafn vel
upp. Hann hefur leikstýrt mynd-
um á borð við Play Misty for Me og
Bird þar sem Forest Whitaker fór
hamförum í hlutverki saxófónleik-
arans Charlie Parker. Sennilega
er vestrahetjan þekktust fyrir að
hafa tvívegis staðið uppi sem sig-
urvegari á Óskarsverðlaununum.
Í fyrra skiptið malaði vestrinn
Unforgiven keppinauta sína árið
1993 og í fyrra fékk mynd hans
Million Dollar Baby fjórar styttur,
þar á meðal sem besta myndin. ■
Clint heiðraður í bak og fyrir
CLINT EASTWOOD Verður heiðraður af
bæði leikstjórum og framleiðendum í
upphafi næsta árs. Hann vinnur nú hörð-
um höndum að því að klára Flags of Our
Fathers, sem var tekin upp hér á landi fyrir
ekki margt löngu.
Hafnfirska rokksveitin Úlpa heldur
útgáfutónleika á fimmtudag vegna
annarrar plötu sinnar, Attempted
Flight by Winged Men, sem kom
nýverið út á vegum 12 Tóna.
Fyrsta plata Úlpu, Mea Culpa,
kom út fyrir fjórum árum og því
hafa margir beðið nýju plötunnar
með mikilli eftirvæntingu. Vinnsla
við plötuna hófst undir lok 2002 en
henni lauk ekki fyrr en í haust.
Að sögn Halla trommara urðu
ýmsir atburðir til þess að platan
tafðist. „Við vorum að gera þetta
sjálfir og það var erfitt að fá fólk
til að aðstoða okkur við upptökur,“
segir Halli. „Við áætluðum líka
minni tíma heldur en raunin varð.
Síðan lentum við í því að missa
harða diskinn í algjört tjón. Við
urðum að senda hann til London í
„rehab“ og um tíma héldum við að
við værum búnir að tapa plötunni.
Síðan komu nokkrir tímapunktar
þar sem við fórum að gera eitthvað
annað.“
Á þessum tímapunktum fór
Úlpa meðal annars í stutta tón-
leikaferð um austurströnd Banda-
ríkjanna með hljómsveitinni Lake
Trout, sem spilaði á Innipúkanum
í sumar. Einnig fór sveitin tvisvar
sinnum til Færeyja, þrisvar til
Danmerkur og til Austurríkis,
Þýskalands og London, á milli þess
sem hún vann plötuna.
Halli segir að eins og gefur að
skilja hafi verið meira legið yfir
nýju plötunni en þeirri. Hún nær
einnig yfir lengra tímabil. Fyrsta
lagið hafi verið samið fyrir hátt
í fimm árum en það nýjasta nú í
sumar. Nafnið á plötunni er ein-
mitt vísun í það hversu erfiðlega
gekk að vinna plötuna. „Þetta er
bjagað nafn af frægu málverki
sem við rákumst á. Okkur fannst
þetta passa svo vel við það sem við
vorum að gera og hvernig ferlið
á plötunni var því við vorum allt-
af að hefja hana til flugs,“ segir
hann.
Útgáfutónleikarnir á fimmtudag
verða haldnir í Þjóðleikhúskjall-
aranum og hefjast klukkan 23.00.
Miðaverð er 500 krónur en þeir
sem mæta í Millet-úlpum fá frítt
inn. Auk þess fá þeir fjórir fyrstu
sem gefa hljómsveitarmeðlimum
Millet-úlpur nýju plötuna áritaða
og smáskífu að launum. „Okkur
langar í svona úlpu sjálfir. Þetta
var orðinn svo langur og þreyttur
brandari að við ákváðum að snúa
honum,“ segir Halli og hlær.
freyr@frettabladid.is
Úlpan hafin til flugs
ÚLPA Rokksveitin Úlpa er að gefa út sína aðra plötu. Nefnist hún Attempted Flight by
Winged Men. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Leikarinn Vince Vaughn þurfti að
blása í áfengismæli eftir að hann
var stöðvaður á bíl sínum af lög-
reglunni í Scottsdale í Arizona.
Leikkonan Jennifer Aniston var
með honum í för.
Vaughn var undir leyfilegum
áfengismörkum og slapp því með
skrekkinn. „Við stungum upp á
því að hann héldi ekki áfram að
aka bílnum,“ sagði talsmaður lög-
reglunnar. „Hann var búinn að
drekka eitthvað en var ekki yfir
áfengismörkunum,“ sagði hann.
Eftir atvikið lagði Vaughn hvíta
sendiferðabílnum sínum í næsta
nágrenni og steig ásamt Aniston
upp í bíl vinar þeirra sem hafði
ekið á eftir þeim.
Aniston og Vaughn leika saman
í myndinni The Break Up, sem
er væntanleg í kvikmyndahús.
Aniston skildi við Brad Pitt í
október eftir fjögurra og hálfs árs
hjónaband. Síðan þá hefur hún oft
sést með Vaughn. Telja margir að
samband þeirra sé komið á alvar-
legt stig.
Vaughn slapp með skrekkinn
VINCE VAUGHN Vaughn var stöðvaður
af lögreglunni í Arizona og látinn blása í
áfengismæli.
Rokksveitin Pan hefur í tilefni
jólanna ákveðið að gefa plötu sína
Virgins, sem kom út fyrr á árinu,
öllum félagsmiðstöðvum á höfuð-
borgarsvæðinu. Þær eru um fjöru-
tíu talsins.
„Mér flaug þetta í hug í seinustu
viku,“ segir Björgvin Benediktsson,
gítarleikari Pan, sem vinnur sjálfur
í félagsmiðstöð í Hafnarfirði. „Ungl-
ingarnir eiga ekki alltaf auðveldast
með að fá það sem þeir vilja og nú
þar sem rokk er komið aftur í tísku
er gaman að geta leyft þeim að njóta
okkar tónlistar, ef þeir hafa áhuga á
því,“ segir hann. „Stundum langar
kannski unglinga að kynnast betur
tónlist ákveðinna hljómsveita en
geta einungis nálgast brot af plötum
þeirra á netinu. Því getur verið gott
að geta skellt plötunni í tækið uppi í
félagsmiðstöð og kynnst tónlistinni
betur.“
Fyrstu eintökin voru nýver-
ið afhent Óla Þór, forstöðumanni
Versins í Hafnarfirði sem einnig er
formaður Samfés. Platan Virgins
er fyrsta plata Pan en sveitin spilar
melódískt og framsækið rokk í anda
Tool og Perfect Circle. ■
Félagsmiðstöðvar fá
gefins eintök
PLATAN GEFIN Rokksveitin Pan afhenti Óla Þór, forstöðumanni Versins og formanni Sam-
fés, nýju plötuna sína.
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 5.20 og 10.15 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
Sýnd í Lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
���
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.20
���
- HJ MBL
Sýnd kl. 10.20 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 8 B.i. 12 ára
���
-L.I.B. Topp5.is
Sýnd kl. 5, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
���
- SK DV
���
- topp5.is
���
- SV MBL
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
���
“Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar
þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
���
„Nokkurs konar Beðmál í Borginni í
innihaldsríkari kantinum.“
„...leynir víða á sér og er rómantísk
gamanmynd í vandaðri kantinum.“
- HJ MBL
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
���
- SK DV
���
- topp5.is
���
-L.I.B. Topp5.is
���
- SV MBL
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 áraSýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára