Fréttablaðið - 08.12.2005, Blaðsíða 94
8. desember 2005 FIMMTUDAGUR74
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
OPIÐ ALLA LAUGARDAGA 10-14
STÓR HUMAR
RISARÆKJUR
HÖRPUSKEL
TUNFISKUR
SALTSÍLD
KRYDDSÍLD
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 9
HRÓSIÐ
...fær Andrea Gylfadóttir fyrir
að vera óhrædd við að feta í
fótspor Björgvins Halldórssonar
og Bubba Morthens með því að
taka að sér hlutverk plöntunnar
í söngleiknum um Litlu hryllings-
búðina.
LÁRÉTT 2 ló 6 skammstöfun 8 mæli-
eining 9 andi 11 kusk 12 krapi 14
svekkja 16 hljóm 17 nægilega 18
besti árangur 20 skóli 21 sál.
LÓÐRÉTT 1 sess 3 kringum 4 blóma-
tegund 5 nögl 7 hálsfesti 10 þunn-
ur vökvi 13 bón 15 steintegund 16
hljóma 19 til dæmis.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 kusk, 6 eh, 8 mól, 9 sál, 11
ló, 12 slabb, 14 spæla, 16 óm, 17 nóg,
18 met, 20 ma, 21 anda.
LÓÐRÉTT: 1 sess, 3 um, 4 sólblóm,
5 kló, 7 hálsmen, 10 lap, 13 bæn, 15
agat, 16 óma, 19 td.
TÓNLISTIN:
Ég hlusta mjög mikið á tónlist og enn meira eftir
að ég eignaðist iPodinn minn. Af tónlistarmönnum
í uppáhaldi má nefna Bright Eyes, A Perfect Circle,
Elliott Smith, Pinback og Radiohead. Nýju plötur Sufjan
Stevens, dEUS og Andrew Bird eru líka frábærar. Í sam-
bandi við íslenska tónlist komst ég yfir demo-upptökur
frá rokksveitinni Days Of Our Lives um daginn, sem
hljóma ótrúlega vel.
BÍÓMYNDIN:
Sá myndina Lord of War sem mér þótti nokkuð góð.
Hún er skrifuð og leikstýrt af Andrew Niccol, sem er
einn af mínum uppáhaldskvikmyndagerðarmönnum.
Hann skrifaði líka The Truman Show og hina frábæru
Gattaca, sem er alveg bókað á topp fimm listanum
mínum. Mæli algjörlega með því að allir sem ekki hafa
séð Gattaca skelli sér út á næstu leigu og tékki á einni
vanmetnustu mynd allra tíma.
BÓKIN:
Það að vera í námi og hljómsveit gerir að verkum að
ég hef nánast aldrei tíma til að setjast niður með bók.
Síðustu bækur sem ég las voru Surgical Recall og Ess-
ential Surgery. Síðasta skáldsaga sem ég las var bókin
The Curious Incident of the Dog in the Nighttime sem
mér fannst alveg frábær. Einföld og lítil saga um ungan
dreng með Asperger heilkenni, sem er vægt form af
einhverfu, en það sem gerir bókina skemmtilega er að
hún er sögð í fyrstu persónu.
BÚÐIN:
Hljóðfærahúsið hefur alltaf verið ein af mínum uppá-
haldsverslunum en ég vann þar nokkur sumur og jól.
Alltaf full búð af flottum gíturum og hljómborðum og
hresst og sexí starfsfólk. Er líka mjög hrifinn af ýmsum
netverslunum og eBay og panta þar oft alls kyns dót
sem ekki fæst á Íslandi.
BORGIN:
Ég hef alla tíð búið á Álftanesi sem eftir svona fimmtán
ár verður orðin stórborg miðað við hversu mikið er
byggt hér núorðið. Annars hefur mér alltaf fundist
Reykjavík vera borg að mínu skapi, hæfilega stór og
hefur upp á velflest að bjóða. Af erlendu borgunum
kann ég best við London, þó ég viti ekki alveg af hverju.
VERKEFNIÐ:
Fátt annað hefur komist að hjá okkur strákunum í
Diktu síðustu mánuðina en að klára nýju plötuna
okkar, Hunting For Happiness. Nú er platan komin í
verslanir en í staðinn nóg að gera við að koma plöt-
unni á framfæri og spila á tónleikum. Auk þess er ég á
fjórða ári í læknisfræði þannig að það má með sanni
segja að það sé alveg nóg að gera.
AÐ MÍNU SKAPI: HAUKUR HEIÐAR HAUKSSON SÖNGVARI DIKTU
Hljóðfærahúsið, læknisfræði og Andrew Niccol
Sjónvarpsstöðin Sirkus auglýsti
á dögunum eftir hugmyndum að
íslenskum sjónvarpsþáttum. Við-
brögðin létu ekki á sér standa en
stöðinni bárust 140 hugmyndir
frá fólki á öllum aldri í alls konar
formi. Einn þáttur á þó eflaust
eftir að vekja mikla athygli þegar
hann birtist á skjánum en í upp-
hafi næsta árs mun Egill Gilzen-
egger ásamt félögum sínum af
heimasíðunni kallarnir.is, þeim
Hjöbba Ká og Partí Hanza, vera
með þátt sem á sér engan líka að
sögn kraftajötunsins. „Þetta verð-
ur skemmtilegasti sjónvarpsþátt-
ur sögunnar,“ lýsir hann kok-
hraustur yfir en viðurkennir um
leið að ekkert fast form sé komið
á þáttinn. „Við ætlum bara að
hafa hann fyndinn og skemmti-
legan,“ segir hann en þættinum
hefur enn ekki verið gefið nafn.
Egill upplýsir að grunnurinn
verði yfirhalning eða „make-
over“. „Við ætlum að fá til okkar
landsþekkta trefla og umbreyta
þeim,“ útskýrir hann en fyrir þá
sem ekki skilja hugtakið „trefill“
þá þýðir það náungi með krullur
sem hvorki stundar líkamsrækt
af viti né er brúnn. „Við ætlum
líka að vera með stutta leikþætti
inn á milli,“ bætir Egill við en
hann segir að þeir félagar hafi
horft á Svínasúpuna og Stelpurn-
ar og gert sér grein fyrir því að
þeir gætu gert miklu betur.
Egill segir að það sé löngu
kominn tími til að hnakkarnir
taki við af treflunum sem hafi
staðið við stjórnvölinn í íslensku
sjónvarpi alltof lengi. „Það er að
eiga sér stað hnakkavæðing enda
erum við miklu myndarlegri og
fyndnari en þeir,“ segir Egill
og bendir á brúnkuklútagjöf
Íslandsbanka sem besta dæmið
um þessa byltingu. Egill segir
að þrátt fyrir mikla karlmennsku
sé engin kvenfyrirlitning í þátt-
unum. „Við ætlum meðal annars
að fá til okkar alvöru dansara
sem kenna karlmönnum að dilla
rassinum og fá ráðleggingar hvað
varðar húðina.“
Það verður því í nógu að snú-
ast hjá Agli. Biblían hans kemur
fyrir almenningssjónir í ársbyrj-
un og útilokar hann ekki að hún
komi eitthvað við sögu í sjón-
varpinu. „Þeir sem verða teknir í
yfirhalningu verða að sjálfsögðu
að læra hana frá a - ö.“
freyrgigja@frettabladid.is
GILZENEGGER: STENDUR FYRIR HNAKKAVÆÐINGU Í ÍSLENSKU SJÓNVARPI
Treflunum steypt af stóli í nýjum þætti
EGILL GILZENEGGER Verður með félögum sínum á heimasíðunni kallarnir.is með nýjan þátt á sjónvarpsstöðinni Sirkus þar sem þeir setja
landsþekkta trefla í yfirhalningu. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
Í kvöld stendur forsetaembætt-
ið fyrir hátíðartónleikum ásamt
Sinfóníuhljómsveit Íslands og KB
banka. Þetta er í annað skiptið
sem þessir tónleikar eru haldnir
en sérstakur heiðursgestur verð-
ur Frú Valerie Amos barónessa
en hún er ráðherra í ríkisstjórn
Tony Blair og talsmaður hennar
í lávarðardeildinni. Frú Valerie
Amos var fyrsta blökkukonan sem
settist í breska ríkisstjórn.
Þrátt fyrir mikilsmetinn gest
úr þjóðlífi Breta sagðist Þröstur
Ólafsson, framkvæmdastjóri Sin-
fóníunnar, þó vera meira spennt-
ur fyrir barítóninum Bryn Terfel
sem heiðrar gesti með nærveru
sinni og söng. Terfel er einhver
allra besti óperusöngvari heims
um þessar mundir og taldi Þröst-
ur hann vera í sama gæðaflokki
og sjálfur Pavarotti var í fyrir
tuttugu árum. „Barítónar verða
því miður bara aldrei jafn vinsæl-
ir og tenórar,“ sagði hann. Terfel
mun dvelja í gestahúsi forseta-
embættisins en þetta er í fyrsta
skipti sem hann sækir landið
heim. „Það er mjög erfitt að fá
menn af hans stærðargráðu hing-
að þar sem þeir eru yfirleitt mjög
þéttbókaðir.“
Terfel mun syngja lög úr
nokkrum þekktum óperum, þar á
meðal Carmen, auk þjóðlaga frá
Englandi og víðar. Frú Amos fær
einnig að heyra Enigma Variation
eftir landa sinn sir Edward Willi-
am Elgar en einnig verður fluttur
Hátíðarforleikur eftir Pál Ísólfs-
son.
-fgg
Barónessa á hátíðartónleikum
BRYN TERFEL Þessi heimsfrægi barítón
söng meðal annars við afhendingu
nóbelsverðlaunanna árið 2000 en hann
verður í aðalhlutverki á hátíðartónleikum
forsetaembættisins, Sinfóníuhljómsveitar-
innar og KB Banka.