Fréttablaðið - 07.01.2006, Síða 2
2 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR
SPURNING DAGSINS
Geiri, finnst stelpunum ekki
gott að búa í Kópavogi?
„Jú, stelpunum finnst gott að búa í
Kópavogi, en miðbærinn er miðbær-
inn“.
Ásgeir Davíðsson, eða Geiri á Goldfinger eins
og hann er betur þekktur, keypti á dögunum
hús í miðbænum því hann sagði að stelpurn-
ar sínar vildu búa í miðbænum.
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SVEITARSTJÓRNARMÁL Hveragerðis-
bær og verktakafyrirtækið Eykt
hafa gert með sér samkomulag um
skipulag og byggingu á 78 hektara
eignarlandi bæjarins.
Verkefnið var ekki boðið út
enda er ráðist í það að frumkvæði
Eyktar. Það gagnrýnir Aldís
Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins, sem er í minni-
hluta bæjarstjórnar. Hún bendir
meðal annars á að viðkomandi
byggingasvæði sé um 90 prósent
af óbyggðu eignarlandi Hvera-
gerðisbæjar. Því sé verið að færa
einum aðila gríðarlega hagsmuni á
silfurfati.“
Aldís segir ennfremur að þar
sem svona sé staðið að málum sé
með öllu óvitað hvert raunverulegt
verðmæti landsins sé.
Í stað byggingaréttar á landinu
ætlar Eykt að reisa á því leikskóla
fyrir Hveragerðisbæ sem metinn
er á 80 milljónir króna. Félagið
mun ekki greiða annað eða meira
fyrir landið.
Orri Hlöðversson bæjarstjóri
Hveragerðisbæjar segir bæinn
njóta tekna af lóðaúthlutun upp á
250-300 milljónir króna auk þess
sem bærinn fái landið aftur afhent
að þrettán árum liðnum.
Aðalskipulag svæðisins hefur
verið auglýst og verður borið upp til
samþykktar eftir tæpar þrjár vikur.
Á svæðinu á að rísa blönduð byggð
fyrir 2.100 íbúa á næstu tólf árum
og tvöfaldast þar með íbúafjöldi
bæjarins. Samningurinn verður
tekinn fyrir í bæjarstjórn eftir tvær
vikur. Í honum er einnig gert ráð
fyrir að bærinn byggi grunnskóla
fyrir um 924 milljónir króna og
fjórar deildir við leikskólann.
Aldís Hafsteinsdóttir segir
mikilvægt að raunverulegt virði
landsins sé fundið út og það
gerist með útboði. Sjálf segir hún
verðmætið geta verið allt að 800
hundruð milljónir króna.
- ghs
Verktakafyrirtækið Eykt fær 80 hektara byggingaland í Hveragerði:
Greitt fyrir landið með leikskóla
STJÓRNSÝSLA Félagsmálaráðuneyt-
ið hefur sagt upp þjónustusamn-
ingi við Tryggingastofnun um
rekstur fæðingarorlofssjóðs frá og
með næstu áramótum.
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra segir uppsögn samn-
ingsins ekkert hafa með störf
Tryggingastofnunar að gera held-
ur sé um endurskipulagningu að
ræða. Starfsemi sjóðsins sé frekar
vinnumarkaðstengd en heilbrigðis-
málatengd þess vegna muni Vinnu-
málastofnun taka við rekstri hans.
„Það hefur verið stefna ríkis-
stjórnarinnar að efla atvinnulífið
úti á landsbyggðinni og þarna er
tækifæri til að flytja tólf til fjórtán
störf út á land,“ segir Árni. „Vinnu-
málastofnun er meðal annars með
starfsstöðvar á Norðvesturlandi
þar sem atvinnulífið hefur átt
undir högg að sækja. Ég reikna því
með að störfin muni flytjast þang-
að og koma Skagaströnd, Hvamms-
tangi og Blönduós öll til greina.
Jafnvel gæti verið mögulegt að
dreifa störfunum á þessa staði.“
Árni segir að um sé að ræða sér-
fræði- og skrifstofustörf. Aðspurð-
ur hvort ekki þurfi að segja upp
fólki hjá Tryggingastofnun vegna
þessa segist hann ekki endilega
telja það en forstjóri stofnunarinn-
ar verði að svara því. Árni segir að
Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðu-
neytisstjóri hafi átt fund með Karli
Steinari Guðlaugssyni, forstjóra
Tryggingastofnunar í gærmorgun
og að Karl Steinar sýndi þessum
breytingum skilning. - th
Vinnumálastofnun tekur við rekstri fæðingarorlofssjóðs:
Starfsemin flutt út á land
ÁRNI MAGNÚSSON Fyrir Alþingi liggur frum-
varp félagsmálaráðherra um aðstoð við
langveik börn. Hann segir að ef frumvarpið
verði samþykkt þýði það einhverja umsýslu
og að störf sem henni tengist muni flytjast
út á land.
ALDÍS HAFSTEINS-
DÓTTIR Framtíð-
arbyggingaland
Hveragerðisbæjar
liggur í hlíð-
inni í kringum
Ölfusborgir og
að sveitabænum
Gljúfurholti.
ORRI HLÖÐVERS-
SON Hveragerðis-
bær skuldar 600
milljónir í árslok og
því er 400 milljóna
framkvæmd á nýju
byggingasvæði
fullstór biti, að mati
Orra Hlöðverssonar
bæjarstjóra.
JERÚSALEM, AP Enn syrtir í álinn hjá
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, en hann fékk aðra
heilablæðingu í gær svo að langrar
skurðaðgerðrar var þörf. Honum
verður haldið sofandi að minnsta
kosti fram á sunnudag.
Batahorfur Ariels Sharon
dvínuðu verulega í gærmorgun
þegar blæðingar í heila hans
hófust á ný. Læknar á Hadassah-
sjúkrahúsinu í Jerúsalem ákváðu
þegar í stað að leggja hann undir
hnífinn og fimm klukkustundum
síðar náðu þeir að stöðva
blæðingarnar.
Að sögn Shlomo Mor-Yosef,
forstjóra sjúkrahússins, tókst
að fjarlægja blóðkekki úr höfði
Sharons og við það varð líðan hans
stöðugri. Hann bætti því við að
heilalínurit sem gerð voru eftir
aðgerðina bentu til „verulegra
framfara“ án þess að útskýra þær
rannsóknir frekar. Ron Krumer,
annar talsmaður sjúkrahússins
sagði að Sharon yrði haldið
sofandi að minnsta kosti fram á
hádegi á sunnudag. Engar frekari
upplýsingar verða gefnar um líðan
hans fyrr en helgi hvíldardagsins
er úti, við sólsetur í kvöld.
Erlendir læknar eru ekki eins
bjartsýnir á að Sharon komist til
heilsu á ný. „Þetta hljómar eins
og örvæntingarfull tilraun til að
bjarga því sem bjargað verður
en batahorfurnar hljóta að teljast
hörmulegar,“ sagði Anthony
Rudd, sérfræðingur í hjarta- og
æðasjúkdómum í Lundúnum í
samtali við AP-fréttastofuna.
Brotthvarf Sharons virðist ekki
hafa teljandi áhrif á fylgi Kadima,
hins nýstofnaða flokks hans,
því skoðanakönnun dagblaðsins
Yediot Ahronot bendir til að hann
fengi 39 af 120 þingsætum á
Knesset undir stjórn Ehud Olmert,
starfandi forsætisráðherra.
Verkamannaflokkurinn fengi
20 sæti og Likud-bandalagið 16
samkvæmt sömu könnun. Ef hinn
aldni Shimon Peres leiddi Kadima
fengi flokkurinn 42 þingsæti en
talið er ólíklegt að hann taki við
formannsembættinu. Ráðamenn
í flokknum lýstu í það minnsta
eindregnum stuðningi við Olmert
í gær.
Viðbrögð við veikindum
Sharons létu ekki á sér standa.
Condoleezza Rice, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna
sagði Sharon „mann mikillar
hugdirfsku“ en hún aflýsti för sinni
til Asíu og Ástralíu í gær vegna
málsins. Mahmoud Abbas, forseti
palestínsku heimastjórnarinnar,
hringdi í Olmert í gær og bað
fyrir bataóskir til Sharons. Hann
kvaðst mjög áhyggjufullur vegna
veikindanna.
sveinng@frettabladid.is
ÚTLITIÐ ER DÖKKT Shlomo Mor-Yosef, forstjóri Hadassah-sjúkrahússins, reyndi að gera gott
úr stöðunni en vonleysissvipurinn á andliti hans segir allt sem segja þar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Líf Sharons hangir
á algerum bláþræði
Skapadægur Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, virðist rétt handan við
hornið en batahorfur hans versnuðu mjög í gær þegar heilablæðing tók sig upp
á ný. Fylgi Kadima, flokks Sharons, hefur ekki dalað þrátt fyrir veikindin.
TYRKLAND, AP Hulya Kocyigit, ell-
efu ára gömul tyrknesk stúlka frá
tyrkneska bænum Van, dó í gær
úr fuglaflensu, að því er talið er.
Bresk rannsóknarstofa staðfesti
í gær að banamein bróður henn-
ar og systur væri fuglaflensa af
H5N1-stofni en þau létust fyrr í
vikunni. Auk þeirra liggur stúlka
þungt haldin á sjúkrahúsi í Van,
smituð af H5N1-stofninum.
Dauðsföllin eru þau fyrstu af
völdum flensunnar í Evrópu en
þegar hafa rúmlega sjötíu látist í
Suðaustur-Asíu af þessum sökum.
Necdet Unuvar, aðstoðarheil-
brigðisráðherra Tyrklands sagði í
gær að ekkert benti til þess. ■
Fuglaflensan í Tyrklandi:
Þrjú systkini
dáin úr flensu
SYSTKININ SYRGÐ Þrjú tyrknesk systkini
liggja í valnum eftir að hafa fengið
fuglaflensu. Bróðir þeirra, sem einnig
veiktist, er hins vegar óðum að ná sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GJAFIR Ungliðahreyfingu Samfylk-
ingarinnar hefur borist svar frá
heilbrigðisráðherra um gjafir sem
ráðherrann fékk í starfi á árinu
2005.
Á meðal þeirra gjafa sem hann
þáði voru postulínshani, bók um
kínverska tónlist og lítil bambus-
karfa.
Eina persónulega gjöfin sem
ráðherra fékk á árinu sem leið voru
mólitir ullarsokkar, sem hann fékk
að gjöf frá þingkonum. - æþe
Gjafir heilbrigðisráðherra:
Fékk postulíns-
hana að gjöf
JÓN KRISTJÁNSSON HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
Þiggur aðeins gjafir í embættisverkum
sínum. Fréttabladið/GVA
400 Pólverjar til Bechtel Tvær
þotur lentu á Egilsstaðaflugvelli í gær en
þær fluttu 400 pólska starfsmenn, sem
voru ýmist að koma til baka úr jólafríi
eða koma nýir til starfa hjá Bechtel í
Reyðarfirði. Um 20 manns þurfti til að
tollafgreiða fólkið.
EGILSSTAÐIR