Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 8
8 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR
VEISTU SVARIÐ
1 Hvað eru lýstar kröfur í þrotabú Slippstöðvarinnar háar?
2 Hvað heitir nýkjörinn forseti Bólivíu?
3 Hvaða lið hefur Alfreð Gíslason handboltaþjálfari samið við?
SVÖRIN ERU AÐ FINNA Á SÍÐU 54
DÓMSMÁL Nítján ára piltur var
dæmdur í fjögurra mánaða fang-
elsi skilorðsbundið í tvö ár í Hér-
aðsdómi Suðurlands í gær.
Piltinum var gefið að sök brot
gegn valdstjórninni en hann sló
lögreglumann á frívakt í andlitið
á veitingastaðnum Lundanum í
Vestmannaeyjum. Hafði lögreglu-
maðurinn áður haft af honum
afskipti. Skömmu síðar var honum
gefið að sök að hafa, á sama stað,
slegið tvítugan pilt með bjórglasi í
andlitið, þannig að það brotnaði og
sá skarst nokkuð á enni.
Dómurinn taldi sök piltsins
sannaða, en hann bar því við að
hafa verið í ójafnvægi og mikið
drukkið sökum skilnaðar foreldra
hans. Fram kom að hann hafi tekið
sig nokkuð á og því þótti ástæða til
að skilorðsbinda dóminn. - óká
Í ójafnvægi vegna skilnaðar:
Barði mann
með bjórglasi
SKIPULAGSMÁL Stjórn hestamanna-
félagsins Gusts nýtti í gær for-
kaupsrétt sinn á þremur kauptil-
boðum í hesthús í Glaðheimum.
Þetta kemur fram á heimasíðu
félagsins og jafnframt að til skoð-
unar séu þrjú önnur tilboð sem
stjórnin muni ákveða hvort hún
gangi inn í á mánudag. „Ástæðan
fyrir því að þetta er gert er sú
að stjórnin hefur öruggar heim-
ildir fyrir því að kaupsamningar
séu nú í tvennu lagi,“ segir Þóra
Ásgeirsdóttir formaður á heima-
síðu Gusts. „Annars vegar kaup-
samningur um húseignina og hins
vegar um „lausafé“. Þar með er
það verð sem gefið er upp lægra
nú en það hefur verið.“
Segir enn fremur að fulltrúar
kaupenda hafi hringt í félags-
menn og bent þeim á að nú verði
þeir að fara að drífa sig að selja
þar sem verðið sé að lækka.
Þessa þróun kveðst stjórn Gusts
vilja reyna að stöðva.
„Stjórnin hefur fyrir því heim-
ildir að í öllum tilvikum sem hún
veit um voru menn í góðri trú og
áttuðu sig ekki á afleiðingunum,“
segir loks. „Þannig að þeir Gust-
arar sem hér eiga hlut að máli
ætluðu ekki að baka þeim sem
ekki hafa selt nein vandræði.“
Ekki náðist í Þóru Ásgeirs-
dóttur formann í gærkvöld. - jss
Uppkaupsmönnum settur stóllinn fyrir dyrnar:
Stjórn Gusts gengur
inn í kauptilboð
UMHVERFISMÁL Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráðherra
segir að þingmenn Samfylking-
arinnar og Frjálslynda flokksins
hafi á sínum tíma greitt atkvæði
með heimild fyrir Landsvirkjun til
þess að ráðast í framkvæmdir við
Norðlingaölduveitu. „Umhverfis-
áhrif framkvæmdarinnar voru
metin á sínum tíma. Kristinn
H. Gunnarsson, þingmenn
Samfylkingarinnar og frjálslyndir
studdu þessa heimild í lögum
um raforkuver á árinu 2003
og á grundvelli þeirra hefur
Landsvirkjun leyfi til að ráðast
í Norðlingaölduveitu,“ segir
Valgerður.
Hún vekur athygli á að enn sé
eftir að koma veitunni lögformlega
inn í skipulag hálendisins og það
sé enn óútkljáð. „Landsvirkjun
hefur leyfið og við getum ekki
afturkallað það bótalaust sýnist
mér,“ segir Valgerður.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
í gær er nú meirihluti fyrir því í
umhverfisnefnd Alþingis að hætta
við Norðlingaölduveitu og stækka
friðland Þjórsárvera.
Árni Finnsson, formaður
Náttúruverndarsamtaka Íslands,
fagnar viðhorfsbreytingum þing-
manna. „Við vonum að þetta
sé merki um að þingheimur
og stjórnvöld séu að breyta
um afstöðu gagnvart stækkun
friðlandsins í Þjórsárverum. Það
merkir að ekki verður unnt að
ráðast í Norðlingaölduveitu.“
Árni bendir á að fyllilega sé
raunhæft að stækka friðlandið
í kjölfar úrskurðar umhverfis-
ráðherra skömmu fyrir áramót og
sleppa Norðlingaölduveitu. „Fyrir
liggur þingsályktunartillaga
vinstri grænna um stækkun
friðlands Þjórsárvera, en hún
hefur ekki fengist afgreidd úr
umhverfisnefnd. Með fulltingi
Kristins H. Gunnarssonar, vara-
formanns umhverfisnefndar, er
von um að tillagan fáist afgreidd
úr nefndinni til umræðu í þinginu,“
segir Árni.
N á t t ú r u v e r n d a r s a m t ö k
Íslands hafa skorað á Alcan,
sem rekur Straumsvíkurálverið,
að styðja stækkun friðlands
Þjórsárvera. Jafnframt hafa
samtökin sent borgarstjóranum
í Reykjavík sambærilegt erindi,
en Reykjavíkurborg á 45 prósenta
hlut í Landsvirkjun.
Stefán Jón Hafstein oddviti
Samfylkingarinnar í R-listanum
segir að erindið verði rætt í næstu
viku. „Ef vernda á Gullfoss á
það jafnvel enn frekar við um
Þjórsárver,“ segir Stefán Jón.
Ekki auðvelt
að hætta við
Iðnaðarráðherra telur ólíklegt að unnt sé að aftur-
kalla leyfi fyrir Norðlingaölduveitu bótalaust. Eftir
sé þó að leiða skipulagsþátt málsins til lykta.
MEKKA, AP Að minnsta kosti 53
pílagrímar biðu bana þegar fjög-
urra hæða hús hrundi í hinni
helgu borg Mekku í fyrradag.
Björgunarsveitir leituðu ákaft í
rústunum í gær en fundu aðeins
lík.
Húsið er örskammt frá Masjid
al-Haram-moskunni, þar sem hið
ginnhelga Kaaba-hof er að finna,
en húsinu hafði verið breytt í
gistihús yfir pílagrímatímann
Hajj sem er rétt nýgenginn í
garð. „Enn er fólk grafið undir
rústunum og ég hef fulla trú á að
við finnum einhvern á lífi,“ sagði
Hamad al-Ahmadi ofursti sem
stýrir aðgerðum á vettvangi.
Honum varð ekki að ósk sinni
því þrátt fyrir ítarlega leit hefur
enginn fundist á lífi.
Ekki er vitað hvers vegna húsið
hrundi en Habib Turkestani, eig-
andi þess, fullyrti að það væri
sterkbyggt. „Byggingin var í góðu
ástandi og það sem gerðist voru
einfaldlega örlög og verk Guðs.“
Enda þótt manntjónið sé mikið
er ljóst að mun verr hefði getað
farið en flestir gestanna voru
við bænahald annars staðar í
borginni.
Ófarir um Hajj-tímann eru því
miður ekki óþekktar. Árið 1990
tróðust 1.426 manns undir í öng-
þveiti og fyrir tveimur árum lést
251 við svipaðar aðstæður.
- shg
53 hafa fundist látnir í rústum hótelsins sem hrundi í hinni helgu borg Mekka:
Enginn fannst á lífi í gær - aðeins lík
RÚSTIR EINAR Hinir látnu eru sagðir vera frá Túnis, Indlandi, Sameinuðu arabísku
furstadæmunum og Egyptalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞJÓRSÁRVER Í Þjórsárverum er mesta heiðagæsavarp í veröldinni.
INDÓNESÍA, AP Óttast er að allt að
240 manns hafa týnt lífi í aurskrið-
um og flóðum á eynni Jövu undan-
farna daga.
Björgunarsveitarmenn hafa
síðustu daga unnið hörðum hönd-
um við að grafa lík upp úr leðj-
unni sem fært hafa nokkur þorp
í fjallahéruðum eyjunnar í kaf.
Þegar hafa 158 lík fundist en 80
manns er saknað og er talið úti-
lokað að nokkur sé enn á lífi.
Umhverfisverndarsinnar segja
að vegna umfangsmikils skógar-
höggs hafi losnað um jarðveginn
í úrkomunni en ráðamenn vísa því
á bug.
Flóðin á Jövu:
240 manns
sagðir látnir
LEITAÐ AÐ LÍKUM Enn er 80 manns saknað
en 156 lík hafa fundist.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP