Fréttablaðið - 07.01.2006, Page 12
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR
Talsvert hefur mætt á Skarp-
héðni Berg Steinarssyni, stjórn-
arformanni Fl Group að undan-
förnu, enda talsverðar umræður
spunnist um starfslokasamninga
sem gerðir voru við fráfarandi
forstjóra félagsins. Skarphéð-
inn hefur verið til svars, en hann
tók við stjórnarformennskunnu,
þegar Hannes Smárason varð for-
stjóri Fl Group.
Skarphéðinn er fæddur árið
1963 og varð stúdent frá MS.
Hann er viðskiptafræðingur að
mennt, en hélt til
framhaldsnáms í
Bandaríkjunum og
lauk þaðan MBA
gráðu.
Þegar heim var
komið að námi loknu
réðst hann til starfa
í fjármálaráðuneyt-
ingu. Þar vann hann
meðal annars að
undirbúningi einka-
væðingar sem var
á stefnu Viðeyjar-
stjórnarinnar. Þar
var troðin ný slóð og
þeir sem þekkja til
starfa Skarphéðins
Berg á því tímabili
segja hann hafa haft
mikinn áhuga og
metnað fyrir þessu
verkefni.
Það fer nokkuð
eftir því hvaða skiln-
ing menn leggja í
hugtakið embættis-
maður hvort Skarp-
héðinn Berg telst
dæmigerður slíkur.
Sem starfsmaður
í ráðuneyti hefur
hann vanið sig á það
að tala varlega og
láta einungis nauð-
synlegar upplýsing-
ar í té. Sú háttsemi
hefur einnig fylgt
honum í viðskipta-
lífinu, þar sem hann
þykir traustur, orð-
var og orðheldinn.
Hann hefur að und-
anförnu komið fram
og rökstutt ákvarð-
anir félagsins sem margar hverj-
ar hafa verið umdeildar. Þar hefur
einu gilt hvort ákvarðanirnar eru
frá hans tíð sem stjórnarformað-
ur eða hafa verið teknar af öðrum.
Hann hefur komið sjónarmiðum
stjórnar á framfæri og fært rök
fyrir þeim.
Einkavæðingin var krefjandi
verkefni og oft gustaði um þær
ákvarðanir sem teknar voru í
einkavæðingarnefnd, Skarphéð-
inn var starfsmaður nefndarinn-
ar og þar nýttust eiginleikar hans
að vera úrræðagóður og tilbúinn
að stytta sér leið og taka áhættu
ef með þurfti til að ná settu mark-
miði. Að því leyti var hann ekki
dæmigerður embættismaður ef
menn leggja til grundvallar mynd
af hæggengum og ofurvarkárum
einstaklingum.
Skarphéðinn Berg
varð skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu og síðar í
forsætisráðuneytinu. Honum var
að sögn vís frami í stjórnsýslunni
og hafa fuglar kvakað um það
að ráðuneytisstjórastaða hafi
verið innan seilingar, þegar
hann ákvað að söðla um og ráða
sig til Baugs. Þar mun Davíð
Oddsson hafa haft hug á að
gera hann að ráðuneytisstjóra í
samgönguráðuneytinu.
Hreinn Loftsson var formaður
einkavæðingarnefndar og stjórn-
arformaður Baugs. Þeir Skarp-
héðinn höfðu unnið náið saman að
einkavæðingunni og fór vel á með
þeim. Það fór reyndar einnig vel
á með Skarphéðni og Davíð Odds-
syni. Þeir sem hafa átt í miklum
samskiptum við Skarphéðin bera
honum vel söguna. Hann þykir
þægilegur í umgengni og tilbú-
inn að hlusta á rök viðmælenda.
Hann hann horfi fremur á stóru
myndina, en að hann týni sér í
smáatriðum. Hann er þó ekki
skaplaus og lætur í sér hvína
mislíki honum eitthvað, Það er
hins vegar fljótt úr honum. Hann
getur einnig verið fastur fyrir
ef honum mislíkar. Þannig átti
hann orðastað við ritjóra Morg-
unblaðsin sem gaf honum vottorð
í Staksteinum um að Skarphéðinn
væri vandaður maður
og taldi annan hafa
stýrt pennanum þegar
Skarphéðin gagnrýndi
skrif ritstjórans. Við
það vildi Skarphéðinn
ekki kannast og ítrek-
aði gagnrýni sína dag-
inn eftir í blaðinu.
Í nógu hefur verið
að snúast hjá Skarp-
héðni frá því að hann
tók við Norrænum fjár-
festingum Baugs. Hver
stórfjárfestingin hefur
rekið aðra og árang-
urinn af fjárfesting-
um í Danmörku hefur
verið einkar góður.
Skarphéðinn situr nú í
stjórnum Stoða, Maga-
sin du Nord, Illum og
fa s te ig n a fél a gs i n s
Keops, auk stjórn-
arformennskunnar í
FL Group. Hann var
s t j ó r n a r f o r m a ð u r
Dagsbrúnar sem á
Fréttablaðið og stýrði
sameiningu Norður-
ljósa, Og Vodafone,
Fréttablaðsins og DV.
Skarphéðinn er
af augljósum ástæð-
um mikið á ferð og
flugi. Genetískt ætti
alþjóðlegt umhverfi
að eiga vel við hann,
en faðir hans Steinar
Berg Björnsson á að
baki langan feril hjá
fr ið a ræslusveit u m
Sameinuðu Þjóðanna.
Viðskiptagengið er
líka í ættinni, því bróð-
ir hans rekur fyrirtækið Senu og
Next búðirnar, auk þess sem hann
var hvatamaður að kaupmum á
verslunarkeðjunni Merlin sem
selur raftæki í Danmörku.
Ekki verður skilið við frásögn
af Skarphéðni Berg, nema að geta
þess að hann er mikill sælkeri.
Haft er eftir honum að lífið sé of
stutt til þess að borða vondan mat.
Eins og með marga þá sem hafa
kynnst hinum fínni blæbrigðum
tilverunnar er honum nokkuð í
mun að opna dyrnar að lystisemd-
um bragðlaukanna fyrir öðrum.
MAÐUR VIKUNNAR
Ákafur og metnaðargjarn
sem embættismaður
SKARPHÉÐINN BERG STEINARSSON, STJÓRNARFORMAÐUR FL GROUP
N á tali hjá Hemma Gunn
Sunnudaga 16-18:30
H blaelgar ›
Hefurflúsé›
DV í dag
ÓLÉTT
SALKA
VALKA
SKUGGINN Í SVIÐSLJÓSINU
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 6. TBL. – 96. ÁRG. – VERÐ KR. 295
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2006
Helgarblað Rasismi í Miss World
Lamaðist
næstum
fyrir lífstíð
ÞEKKTIR
ÍSLENDINGAROG ÞUNGLYNDIÐ
Ilmur Kristjáns
Sigfús Sigurðsson handboltakappi
Bls. 26–27
Bls. 57
Bls. 32–33
Bls. 4
Sigfús Sigurðsson, atvinnumaður í handbolta, hefursigrast á brennivíninu, spilafíkninni og síðast en ekkisíst sjálfum sér. Sigfús verður í broddi fylkingar þegarÍslendingar leggja enn og aftur í alþjóðlegan víking áhandboltavellinum. Um tíma leit út fyrir að Sigfús væriúr leik til æviloka. Hann fékk gat á mænuna og við láað hann lamaðist. Í einlægu viðtali við Helgarblað DVgerir Sigfús upp þau stóru mál sem næstum riðuhonum að fullu.
Bls. 22–23
Grétar Örvarsson
Vill flytja
til Flórída
og opna
bakarí
Barátta upp
á líf og dauða
?
Ilmur Kristjáns
ÓLÉTT
SALKA
VALKA
Hamingjusöm með Ara
helgar augl - lesið 6.1.2006 20:38 Page 3