Fréttablaðið - 07.01.2006, Qupperneq 16
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR16
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.866 -0,64% Fjöldi viðskipta: 1.022
Velta: 8.963 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 53,40 -1,10% ... Atorka
6,75 +2,30% ... Bakkavör 54,00 +0,20% ... Dagsbrún 6,05 -0,20%
... FL Group 20,20 -0,50% ... Flaga 4,61 +0,00% ... Íslandsbanki
18,60 -1,10% ... KB banki 792,00 -1,00% ... Kögun 63,50 +1,60%
... Landsbankinn 26,70 +0,00% ... Marel 70,40 +2,80% ... Mosaic
Fashions 19,60 +0,50% ... SÍF 4,00 +0,00% ... Straumur-Burðarás
16,80 -1,20% ... Össur 117,00 +0,40%
MESTA HÆKKUN
Marel +2,77%
Atorka 2,27%
Kögun 1,60%
MESTA LÆKKUN
Straumur -1,18%
Actavis -1,11%
HB Grandi -1,08%
MARKAÐSPUNKTAR
Egla hf. hefur stækkað
skuldabréfaflokkinn EGLA 05 1 um
1000 milljónir króna að nafnvirði.
Skuldabréfin verða seld í lokuðu útboði.
Tilgangur útgáfunnar er að efla innri og
ytri vöxt félagsins.
Á síðastliðnum þremur dögum hafa
verið gefin út erlend skuldabréf í
íslenskum krónum fyrir 11 milljarða
króna. Í gær bættist við fimm milljarða
útgáfa Rabobank, en bankinn hefur
þá gefið út bréf í íslenskum krónum
fyrri 29 milljarða og er stærsti útgefandi
slíkra bréfa.
Atvinnuleysi á evrusvæðinu mældist 8,3
prósent þriðja mánuðinn í röð og hefur
ekki verið lægra síðan í júlí 2002.
FASTEIGNAKAUP Í KAUPMANNHÖFNÍSLENDINGAR GERAST SÍFELLT UMSVIFAMEIRI Á
FASTEIGNAMARKAÐI Í KAUPMANNAHÖFN, Í GÆR BÆTTUST VIÐ 150 ÞÚSUND FERMETRAR Í
STÆRSTU FASTEIGNAVIÐSKIPTUM ÍSLENSKRAR VIÐSKIPTASÖGU.MYND: KRISTJÁN
Fasteignafélagið Stoðir
hafa eignast 150 þúsund
fermetra húsnæði í
Kaupmannhöfn. Gengið
var frá kaupum á danska
fasteignafélaginu Atlas
Ejendomme í gær.
Með kaupum á Atlas Ejendomme
eignast Stoðir 34 fasteignir sem
alls eru 150 þúsund fermetrar.
Stoðir eiga fyrir á Íslandi fast-
eignir sem eru um 260 þúsund
fermetrar.
Kaupin á Atlas eru ein stærstu
fasteignakaupin í Danmörku á
undanförnum árum og stærstu
fasteingakaup Íslendinga. Kaup-
verðið er trúnaðarmál, en gera má
ráð fyrir að umfang viðskiptanna
liggi á bilinu 25 til 30 milljarðar
íslenskra króna.
Jónas Þór Þorvaldsson,
framkvæmdastjóri Stoða, verður
framkvæmdastjóri beggja félaga.
Hann segir Stoðir hafa keypt félagið
eftir að eignir sem ekki tilheyrðu
fasteignarekstrinum voru teknar
út úr félagiun. „Við erum mjög
ánægð með þessi kaup og höfum
unnið að þeim undanfarna þrjá
mánuði,“ segir Jónas Þór. Hann
segir um eftirsóknarverðar eignir
að ræða. „Við gerum okkur grein
fyrir að Kaupmannahafnarbúar
líta á margar þessar byggingar
sem gersemar með mikið sögulegt
gildi.“ Hann segir því áherslu
lagða á að standa undir góðu
orðspori Atlas Ejendomme í þeim
efnum.
Jónas segir samrunaferlið
ekki flókið, en stærðin nýtist við
endurfjármögnun á Atlas. „Við
endurfjármögnum Atlas samhliða
kaupunum með evrópsku láni.“
Stærsti viðskiptavinir Atlas er
danska ríkið sem leigir 22 prósent
eigna félagsins. Skrifstofuhúsnæði
er fyrirferðarmest í eignunum, en
fjórtán prósent af fermetrunum
eru verslunarhúsnæði.
Stærstu eigendur Stoða eru
Baugur með tæplega helming, KB
banki og Ingibjörg Pálmadóttir.
Straumur Burðarás var ráðgjafi
Stoða við kaupin.
-hh
Stoðir kaupa Atlas
Ejendomme
Hannes Smárason, forstjóri FL
Group, lýsir því yfir í viðtali við
danska viðskiptablaðið Börsen
að FL Group hafi áhuga á því að
auka eignarhlut sinn í Finnair. Ef
finnska ríkið minnki hlut sinn í
flugfélaginu frekar hafi FL Group
áhuga á að koma þar að málum.
Eins og komið hefur fram á FL
Group um 6,3 prósent í Finnair og
er þriðji stærsti hluthafinn á eftir
finnska ríkinu, sem á 57 prósent,
og Straumi-Burðarási sem á 10,7
prósent. Hannes sagði í samtali
við Fréttablaðið fyrr í vikunni
að Finnair væri áhugavert og
spennandi félag.
Gengi hlutabréfa í finnska
flugfélaginu var síðast í 13,36
evrum á hlut og hefur því hækkað
um 130 prósent á einu ári. - eþa
Fylgst með Finnair
SPENNTUR FYRIR FINNAIR Hannes
Smárason, forstjóri FL Group, segir við
Börsen að félagið hafi áhuga á því að taka
þátt í frekari fjárfestingu í Finnair.
Slakað á
Svíar og Finnar taka sér gott frí yfir þréttándann og
lengja helgina með því að taka sér frí á föstudegi.
Meira að segja á verðbréfamarkaðnum eru menn
rólegir en Kauphöllin í Stokkhólmi lokaði um
hádegisbil á fimmtudaginn og opnar aftur
ekki aftur fyrr en á mánudagsmorgun.
Engin viðskipti fóru fram í Helsinki í
gær. Vefútgáfa sænska viðskiptablaðsins
Dagens Industri fór líka í frí og verður
ekki uppfærð fyrr en á mánudaginn. Á
sama tíma og frændir vorir njóta stundar-
innar hefur aldrei verið meira að gera
hjá verðbréfasölunum í Kaup-
höllinni sem sitja sveittir við
símann og taka við pöntun-
um frá kaupglöðum lönd-
um sínum.
Ekkert slakað á
Skuldasöfnun heimilanna hefur verið mikil undan-
farið og ef til vill fer hluti þeirra í að kaupa hlutabréf.
Ekki vilja fjölskyldurnar í landinu missa af tækifær-
unum á markaðnum eftir allt tal um hækkanir
síðustu vikur. Fjármálaráðherra stóð hins
vegar í ströngu á síðasta ári í að greiða niður
skuldir ríkissjóðs. Jukust afborganir lána um
90 prósent í fyrra. Tæpir 48 milljarðar voru
notaðir til að borga erlend lán og 14 millj-
arðar vegna spariskírteina. Nýjar lántökur
námu 7,7 milljörðum króna. Að
auki greiddi ríkið 5,1 milljarð í
Lífeyrissjóð starfsmanna ríkis-
ins til að greiða niður framtíð-
arskuldbindingar þess gagn-
vart starfsmönnum, sem
aðrir höfðu trassað.
Peningaskápurinn
Búið er að ganga frá kaupum FL Group
á danska lággjaldaflugfélaginu Sterling.
Samkeppnisyfirvöld í Noregi, Svíþjóð og
Þýskalandi hafa ekki andmælt kaupun-
um að því er fram kemur í tilkynningu til
Kauphallar Íslands. Samkeppnisyfirvöld
í Danmörku og á Íslandi óskuðu eftir
frekari upplýsingum varðandi kaupin.
Ætla dönsk yfirvöld ekki að aðhafast
frekar. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála
á Íslandi er að að kanna hvort tilkynna
þurfi um kaupin til samkeppnisyfir-
valda á Íslandi.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
stjórnarformaður FL Group, segir það
meðal annars stafa af því að eignar-
haldsfélagið Fons, sem seldi Sterling og
fékk meðal annars bréf í FL Group fyrir,
reki einnig Iceland Express. Þetta sé
formsatriði og hann hafi ekki áhyggjur
af því að þetta tefji ferlið. - bg
Kaupin á Sterling
fá grænt ljós yfirvalda
HANNES SMÁRASON
FORSTJÓRI FL GROUP
Í lok nóvember 2005
námu heildareignir
FL Group 114
milljörðum króna.
Hagnaður fyrirtækja í
úrvalsvísitölu Kauphallar
Íslands á síðasta árs-
fjórðungi ársins 2005 eykst
um 304 prósent gangi spá
greiningardeildar Lands-
bankans eftir. Í heildina gera
sérfræðingar deildarinnar
ráð fyrir að hagnaður þess-
ara sextán félaga nemi
tæpum 55 milljörðum króna.
Hlutfallslega verði mesti hagn-
aðurinn hjá bönkunum og FL
Group.
Þá gerir greiningardeildin
ráð fyrir að hagnaður þessara
félaga dragist saman um tæp-
lega 40 prósent á milli áranna
2005 og 2006. Ekki sé gert ráð
fyrir að hlutabréf hækki jafn
mikið og undanfarin þrjú ár.
Hagnaður
stóreykst