Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 20
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðar-
farir í smáletursdálkinn hér á síðunni má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðmunda Þorbjörg Jónsdóttir
frá Kjörvogi,
Verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn
9. janúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélagið.
Alda Guðjónsdóttir Ásgeir Gunnarsson
Laufey Kristinsdóttir
Elísabet Guðjónsdóttir Bragi Eggertsson
Sólveig Guðjónsdóttir
Guðmundur H. Guðjónsson Dagný Pétursdóttir
Guðrún M. Guðjónsdóttir Óskar Pétursson
Haukur Guðjónsson Vilborg G. Guðnadóttir
Fríða Guðjónsdóttir Karl Ómar Karlsson
Rannúa Leonsdóttir
Kristín Guðjónsdóttir Þórir Stefánsson
Daníel Guðjónsson María Ingadóttir
Þuríður H. Guðjónsdóttir Garðar Karlsson
ömmubörn og langömmubörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa.
Ómars S. Zóphaníassonar
Fögruhlíð 5, Hafnarfirði.
Kristín Theódórsdóttir
Theódór Kr. Ómarsson Hafdís Sigursteinsdóttir
Marta G. Ómarsdóttir Höskuldur Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma
Svanlaug Pétursdóttir
frá Sauðárkróki,
lést á Sjúkradeild Hrafnistu Hafnarfirði 5. janúar 2006.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigurður Sigfússon Ingibjörg Hafstað
Stefanía Sigfúsdóttir Snorri Jóhannsson
Ingvi Þór Sigfússon Arnrún Antonsdóttir
Anna Pálína Þórðardóttir Þórhallur Filippusson
og aðstandendur.
NICOLAS CAGE (1964-)
Á AFMÆLI Í DAG.
„Til að vera góður leikari
þarftu að vera líkt og glæpa-
maður, að vera tilbúinn til að
brjóta reglurnar og keppa að
því að gera eitthvað nýtt.“
Nicolas Cage er heimsfrægur leikari sem
þekktur er úr kvikmyndum á borð við Wild
at Heart, Leaving Las Vegas og Adaptation.
Á þessum degi árið 1990 var
skakki turninn í Písa lokaður
almenningi í fyrsta sinn í átta
hundruð ára sögu hans. Ástæðan
var sú að hætta var talin á að
turninn væri orðinn of skakkur og
gæti því hrunið án viðvörunar.
Því var hafist handa við miklar
endurbætur árið 1992 og ári
síðar var búið að rétta turninn
eins mikið við og ætlunin hafði
verið. Hins vegar kom bakslag í
verkefnið þegar turninn hallaðist
um 2,5 millimetra á einni nóttu
í september árið 1995 sem var
tíu prósent af því sem áður var
búið að laga. Til að koma í veg
fyrir að slíkt henti aftur var turninn
studdur af tveimur stálstífum
meðan verkinu var lokið. Þá
var blýlóðum komið fyrir á
norðurhluta turnsins og miklum
jarðvegi mokað undan honum.
Turninn var ekki opnaður á
ný fyrr en árið 2001. Þá hafði
hallinn verið minnkaður um 45
sentimetra. Hins vegar er því spáð
að eftir 300 ár muni turninn halla
jafnmikið og hann gerði árið
1990.
Mörgum verkfæðingum þykir með
ólíkindum að turninn hafi ekki
verið fallinn löngu áður en hafist
var handa við lagfæringarnar.
ÞETTA GERÐIST > 7. JANÚAR 1990
Skakka turninum í Písa lokað
SKAKKI TURNINN Í PÍSA
MERKISATBURÐIR
1610 Galileo Galilei uppgötvar
tungl Júpíters.
1730 Árni Magnússon, handrita-
safnari og prófessor, andast
66 ára.
1906 Ungmennafélag Akureyrar
er stofnað. Það hefur verið
talið fyrsta ungmennafélag-
ið hér á landi.
1942 María Markan syngur
hlutverk greifafrúarinnar í
Brúðkaupi Fígarós í Metr-
ópólitan-óperunni í New
York.
1979 Einræðisherranum Pol Pot
er steypt af stóli í Kambódíu.
2001 Samningar takast í kjara-
deilu framhaldsskólakenn-
ara og ríkisins eftir tveggja
mánaða verkfall.
Að kvöldi þrettándans ganga
jólin í garð hjá rétttrúnaðar-
kirkjunni sem er sterkasta
kirkjudeildin í Rússlandi,
Úkraínu, Búlgaríu, Serbíu,
Grikklandi og víðar en
þar eru jólin ein helsta
trúarhátíðin. Kirkja þessara
þjóða fer eftir júlíanska
tímatalinu en það er þrettán
dögum á eftir okkar tímatali,
því gregoríanska.
Félagið MÍR - Menn-
ingartengls Íslands og Rúss-
lands, hefur vetrardagskrá
sína með jólaballi sem
söfnuður rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar á
Íslandi heldur fyrir börn
og fullorðna í nýju húsnæði
MÍR á Hverfisgötu 105,
klukkan fjögur í dag. Dansað
verður í kringum jólatréð,
rússneski jólasveinninn,
Frosti afi, og Snædrottningin
koma í heimsókn. Þá dunar
harmónikkutónlist og
þjóðdans verður stiginn.
Haukur Hauksson hefur
lengi starfað í félaginu MÍR
og nam þar meðal annars
rússnesku sem unglingur.
„Þetta er félag sem stendur
á gömlum merg og á yfir
sjötíu ára sögu hér á landi,“
segir Haukur en MÍR
á að hans sögn stærsta
kvikmyndasafn rússneskra
mynda norðan Alpafjalla.
Auk þess á félagið gamlar
og góðar sýningarvélar en
allt þetta er í geymslu hjá
Kvikmyndasafni Íslands.
Kvikmyndasýningar hafa
spilað stóran þátt í starfsemi
félagsins en undanfarin
ár hafa verið sýningar á
rússneskum myndum alla
sunnudaga.
Um 200 manns frá ýmsum
löndum eru í rússnesku
rétttrúnaðakirkjunni á
Íslandi og hefur MÍR stutt
nokkuð við þessa kirkjudeild
í gegnum tíðina.
„Kirkjan þarna úti er mjög
íhaldssöm stofnun og þeir
hafa hvorki breytt stafrófinu
né dagatalinu,“ segir Haukur
sem sjálfur notar hið
venjubundna gregoríanska
dagatal en segir þá sem
tilheyra kirkjunni og búa hér
á landi noti einfaldlega bæði
gregoríanska og júlíanska
tímatalið. „Þetta getur
verið hentugt að mörgu
leyti því fólkið heldur jólin
og áramótin með okkur.
Síðan koma rússnesku jólin
6. janúar og trúaráramótin
14. janúar. Þannig að þetta
er eins mánaðar gleði í
staðinn fyrir tvær vikur,“
segir Haukur glettinn, en
Rússarnir halda að hans
sögn veglegar veislur þegar
„gamla nýárið“ gengur í garð
um miðjan janúar.
Haukur hefur lengi
haft áhuga á Rússlandi og
rússneskri þjóð og menningu.
Hann var þar bæði við nám og
var einnig fréttaritari RÚV
lengi vel. Hann skipuleggur
og ferðir til landsins og
hyggur á að fara með hóp
af fólki til Moskvu og
Pétursborgar í lok maí. Hann
býst við töluverðum fjölda af
fólki á jólaballið. „Það eru
allir velkomnir og best að fá
sem flesta Íslendinga,“ segir
Haukur með tilhlökkun. ■
RÚSSNESK JÓLASTEMNING Rússnesk jólakort í gamla stílnum henta vel í jólahaldið í janúar.
JÓLIN ERU AÐ HEFJAST: SAMKVÆMT JÚLÍANSKA TÍMATALINU
Rússneskt jólaball
RÚSSLANDSVINUR Haukur
Hauksson hefur lengi starfað innan
MÍR. Hann var við nám í Rússlandi
og var fréttaritari RÚV þar í landi.
ANDLÁT
Hulda Ingimars frá Þórshöfn,
lést á Landspítalanum Fossvogi
aðfaranótt miðvikudagsins 4.
janúar.
Lúðvík G. Jónsson, Faxabraut 13,
Keflavík, andaðist á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja miðvikudag-
inn 4. janúar.
JARÐARFARIR
13.00 Elín Björg Gísladóttir frá
Naustakoti á Vatnsleysu-
strönd, verður jarðsungin
frá Kálfatjarnarkirkju á
Vatnsleysuströnd.
13.30 Tómas Tómasson frá Hellu-
dal, verður jarðsunginn frá
Skálholtsdómkirkju.
14.00 Guðbjartur Ingi Bjarnason,
Feigsdal, Ketildölum, Arnar-
firði, verður jarðsunginn frá
Bíldudalskirkju.
14.00 Jón Bergmann Guðmunds-
son fyrrum bóndi á Breið,
verður jarðsunginn frá
Goðdalakirkju.
14.00 Þórður Sveinsson frá Barðs-
nesi, verður jarðsunginn frá
Norðfjarðarkirkju.
AFMÆLI
Anna Mjöll
Ólafsdóttir
söngkona er 36 ára.
Svava Johansen
kaupmaður er 42 ára.
Kristján Hreinsson
skáld er 49 ára.
Bergljót Baldursdóttir
útvarpskona er 52 ára.
Trausti Valsson
arkitekt og
skipulagsfræðingur
er sextugur.
Úthlutað var úr Minningar-
sjóði Þorvalds Finnbogasonar
stúdents við hátíðlega athöfn
þann 21. desember síðastlið-
inn. Styrkinn hlaut að þessu
sinni Gunnar Sigurðsson
nemandi á þriðja ári í raf-
magns- og tölvuverkfræði við
Háskóla Íslands, fyrir hæstu
meðaleinkunn að loknu öðru
námsári.
Minningarsjóðurinn var
stofnaður af foreldrum Þor-
valds Finnbogasonar á 21 árs
afmæli Þorvalds, þann 21.
desember 1952.
Tilgangur sjóðsins er að
styrkja stúdenta til náms
við verkfræðideild HÍ eða til
framhaldsnáms í verkfræði
við annan háskóla. ■
Úr sjóði stúdents
VIÐ HÁTÍÐLEGA ATHÖFN Sigurður Brynjólfsson, forseti verkfræðideildar HÍ,
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, Gunnar Sigurðs-
son, Frú Vigdís Finnbogadóttir og Sigurður Jónsson.