Fréttablaðið - 07.01.2006, Side 54
18 ■■■■ { skólar & námskeið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
ónsalir
Tónsalir Bæjarlind 2 (Löður-húsinu) sími 534 3700 www.tonsalir.is
ónsalir
Skemmtileg námskeið
Gítarnámskeið
10 vikna byrjendanámskeið í gítarleik fyrir börn og
unglinga. Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 7-
15 ára. Kennt er í litlum hópum, 3-4 saman, þar sem
nemendum er raðað saman eftir aldri og getu.
Trommunámskeið
10 vikna námskeið í undirstöðuatriðum trommuleiks
fyrir börn og unglinga. Nemendur eru tveir saman
í tíma með kennara, þar sem raðað er nemendum
saman eftir aldri og getu.
Bassanámskeið
10 vikna námskeið í undirstöðuatriðum bassaleiks fyrir
börn og unglinga. Kennt er í litlum hópum þar sem
nemendum er raðað saman í tíma eftir aldri og getu.
Partýgítarleikur
7 vikna skemmtilegt byrjendanámskeið í gítarleik ætlað fullorðnum.
Námskeiðið er ætlað fólki sem langar til að læra
einföldustu gítargripin og vera fært um að spila í
útilegunni eða partíinu, sér og öðrum til gamans. Kennt
er í 5 manna hópum þar sem gleðin verður í hávegum
höfð.
Leikskólagítarleikur
7 vikna skemmtileg byrjandagítarnámskeið, sérsniðið
fyrir leikskólakennara, leiðbeinendur og aðra þá sem
vilja læra að leika undir barnasöng.
Upplýsingar og skráning á heimasíðu okkar www.tonsalir.is
„Við leggjum áherslu á að bjóða
upp á námskeið þar sem kennd eru
ýmis gömul vinnubrögð svo sem
þæfing, tóvinna, orkering, knipl,
vefnaður, vattarsaumur, útsaumur,
prjónaskapur, útskurður, spjald-
vefnaður, jurtalitun, baldýring og
einnig þjóðbúningasaumur, til að
nefna fátt eitt,“ segir Ásdís Birgis-
dóttir, ráðskona Heimilisiðnaðarfé-
lags Íslands.
Áherslurnar hafa verið þær
sömu frá stofnun skólans en þar er
boðið upp á námskeið sem eru ekki
annars staðar í boði.
„Við kennum gamalt íslenskt
handverk þar sem óvíða er hægt
að fá vitneskju um. Þetta er þekk-
ing sem hefur verið með þjóðinni
í hundruð ára, eins og til dæmis
hvernig á að búa til sauðskinns-
skó,“ segir Ásdís. Hún segir alltaf
mikinn áhuga vera fyrir skólanum
en það sé sveiflukennt hvað sé vin-
sælast hverju sinni.
„Mikið af handverkinu sem er
kennt hér tengist þjóðbúningn-
um, og hafa vinsældir hans aukist
talsvert síðustu árin. Þá er það að
sjálfsögðu upphluturinn og peysu-
fötin og svo búningarnir sem eru
frá því fyrir 1900, sem við þekkjum
ekki í dag í lifandi notkun, held-
ur meira inn á söfnum. Það er þá
bæði faldbúningur-
inn, upphluturinn
og skautbúningur-
inn og kyrtill,“ segir
Ásdís.
Aðspurð hvort
nemendur skól-
ans hafi nýtt þetta
gamla handverk á
nýjan hátt, segir
hún að alltaf sé
eitthvað um það,
en mætti vera
meira. Um þessar
mundir segir hún til
að mynda skemmti-
legt verkefni vera í
gangi, og gaman sé
að sjá hvað kemur út úr
því. Heimilisiðnaðarfélag
Íslands veitir Samtökum
norrænna heimilisiðnað-
arfélaga formennsku til
ársins 2007 og lýkur henni með
stórri ráðstefnu hér á landi. „Fram
að þeim tíma ætlum við að vera
með þemaverkefni í gangi í
samstarfi við skóla og stofnan-
ir á Íslandi. VIð viljum að það
endi með sýningu þar sem
nemendur hafa tekið fyrir
gamlar íslenskar útsaum-
saðferðir eða búa til gamla
hluti á nýjan hátt. Það er
vel hægt að nota gamlar
aðferðir og gömul mynst-
ur á nýjan hátt,“ segir
Ásdís.
Sjá www.heimilisid-
nadur.is.
Gamalt handverk í
nútímanum
Heimilisiðnaðarskólinn var stofnaður árið 1979 og er rekinn af Heimilisiðnaðarfélagi
Íslands, sem var stofnað árið 1913.
Gamall íslenskur vettlingur
úr handspunnu þelbandi
með sérstöku íslensku
mynstri.
Þjóðbúningar sem saumaðir voru á námskeiði hjá Heimilisiðnaðarskólanum. Lengst t.v. er
skautbúningur, þá faldbúningar frá því fyrir 1800, peysuföt og faldbúningur.
Baldýring. Útsaumsgerð sem heyrir undir
gullsaum. Afar gömul aðferð við að skreyta
faldbúninga, skautbúninga og upphluti.