Fréttablaðið - 07.01.2006, Qupperneq 57
21■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { skólar & námskeið } ■■■■
Guðjón Bergmann jógakennari
heldur námskeið þar sem hann
hjálpar fólki meðal annars að
breyta hugarfari sínu og takast á
við fráhvarfseinkenni níkótíns og
lofar hann því að aðferðir hans
virki. Námskeiðið tekur einn og
hálfan dag og kostar jafngildi 30
sígarettupakka, eða pakka á dag í
mánuð. Hann fylgir námskeiðinu
eftir með því að hringja í þátttak-
endur og fylgjast með árangrinum.
www.vertureyklaus.is
Hættu að reykja
Námskeiðið Viltu verða Idol-
stjarna er haldið hjá Námsflokk-
um Hafnarfjarðar í vetur. Aðal-
markmið námskeiðsins er að leyfa
þátttakendum að fá verulega
útrás fyrir söng- og tjáningarþörf
sína. Þátttakendum verður leið-
beint hvað varðar raddbeitingu,
öndun, lagaval og framkomu svo
dæmi séu tekin. Kennt í alvöru
söngkerfi. Frekari upplýsingar:
bellag@simnet.is.
Idol-stjarna
Ef vín er þín ástríða er tilvalið að
þú skellir þér á námskeið í vín-
smökkun. Þorri Hringsson, listmál-
ari og víngagnrýnandi Gestgjaf-
ans, verður með vínnámskeið fyrir
byrjendur á Nordica fimmtudag-
inn 26. janúar milli kl. 18 og 20.
Hann býður upp á fyrirlestur og
vínsmökkun. Sjá www.
vinogmatur. is.
Vínsmökkun
1. Skoðaðu verkefnið út frá mörg-
um hliðum og reyndu að finna
nýjan flöt á málum sem engum
hefur hugkvæmst áður.
Leonardo Da Vinci trúði því að
við úrlausn á verkefni þyrfti að skoða
það út frá ólíkum sjónarhornum, því
manni hættir til að vera hlutdrægur:
Oft þyrfti að brjóta verkefnið upp og
setja það aftur saman.
2. Sjáðu hlutina fyrir þér.
Þegar Albert Einstein tókst á við
viðfangsefni taldi hann það ætíð
nauðsynlegt að leitast við að leysa
það á marga ólíka vegu, meðal
annars með því að nota skýringar-
myndir. Hann sá fyrir sér lausnina
og taldi meðal annars orð og tölu-
stafi ekki skipta svo miklu máli í
hugsunarferlinu.
3. Framleiddu. Eitt aðaleinkenni
snillinga er mikil afkastageta.
Thomas Edison var með 1.093
einkaleyfi. Hann sá til þess að hann
og aðstoðarmenn sínir héldu uppi
framleiðslu með því að setja upp
hugmyndakvóta. Rannsókn sem
unnin var við háskóla í Kaliforn-
íu sýndi að merkustu vísindamenn
sögunnar framleiddu ekki aðeins
mikið af góðum hugmyndum, held-
ur einnig mikið af slæmum. Þeir
virtust ekki óttast almenningsálit
eða meðalmennsku á leið sinni á
toppinn.
4. Búðu til nýjar samsetningar.
Raðaðu og endurraðaðu hugmynd-
um, myndum og hugsunum. Settu
ólíka hluti saman, ruglaðu röðinni
og leitaðu eftir óvenjulegum sam-
setningum.
Munkurinn Gregor Mendel
blandaði saman stærðfræði og líf-
fræði og bjó þannig til nýja fræði-
grein, erfðafræði.
5. Myndaðu sambönd milli ólíkra
eðlisþátta og viðfangsefna.
Leonardo Da Vinci kom á sambandi
milli bjölluhljóms og steins sem
skellur á vatn, sem hjálpaði honum
að átta sig á því að hljóð ferðast í
bylgjum.
6. Hugsaðu í andstæðum.
Eðlisfræðingurinn Niels Bohr trúði
því að með því að hugsa í andstæð-
um víkkaði hugsunin og hún fyndi
sér nýjan farveg. Hæfileiki hans til
að hugsa um ljós hvort tveggja sem
ögn og bylgju varð grunnurinn að
sumum kenningum hans.
Hugsaðu eins og snillingur!
Með því að temja sér hugarfar snillings, ertu líklegri til að ná árangri. Hérna eru nokkur góð ráð sem vert er að fylgja.