Fréttablaðið - 07.01.2006, Qupperneq 82
7. janúar 2006 LAUGARDAGUR42
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA MARÍA FER YFIR MÁLIN
Spáir þú mikið í tískuna? Nei, ég get ekki
sagt það. Mér finnst tíska vera fyrirbæri, búið
til fyrir fólk sem forðast að hugsa sjálfstætt.
Hins vegar spái ég mikið í falleg föt og skó.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?
Ó, en erfið spurning. Má einhver annar gera
það? Rokk og ról...? Ég er bara í því sem mér
finnst fallegt.
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki? Dead,
Vivienne Westwood, Alexander McQueen
og allir litlir sjálfstæðir hönnuðir sem kunna
ekki að sauma.
Flottustu litirnir? Svart og hvítt og bleikt.
Hverju ertu veikust fyrir? Skóm.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Kokteil-
kjól í Spútnik fyrir gamlárskvöld. Svart korsel-
ett með nokkrum lögum af pilsum.
Hvað finnst þér flottast í tískunni núna?
Mig varðar voða lítið um tískuna.
Hvað finnst þér nauðsynlegt að eiga í
vetur? Pelsinn minn.
Uppáhaldsverslun? Nonnabúð, Trílógía,
Kron og 12 Tónar.
Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á
mánuði? Ekkert of miklu. það veltur á ýmsu,
fjárhag, tíma og fleiru.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Ég á
svo margar uppáhalds! Yrði samt ónýt mann-
eskja án svörtu loðstígvélanna og bleiku
Marilyn Monroe skónna.
Uppáhaldsflík? Fyrrgreindir skór (og allir
hinir líka! Get ekki gert upp á milli),
pelsinn minn, blái kjóllinn, rönd-
óttu buxurnar og fleira og fleira.
Hvert myndir þú fara í versl-
unarferð? Til New York. Af
því að ég þekki þá borg áæt-
lega en París og Berlín eru
líka spennó skó- og fata-
borgir.
Ljótasta flík sem þú
hefur keypt þér? Uss, ef
ég hef keypt flík sem ég
hef séð eftir síðar þá er það
löngu grafið og gleymt og
engin ástæða til að rifja það
upp.
SMEKKURINN: ELSA MARÍA BLÖNDAL AFGREIÐSLUSTÚLKA Í NONNABÚÐ
Loðstígvél og bleikir Marilyn Monroe skór
Nú standa útsölur sem hæst yfir og nauðsynlegt er að nýta sér þær á sem skynsamleg-
astan hátt. Á útsölum má oftast finna
gömul trend í bland við klassísk föt.
Að sjálfsögðu er mun skynsamlegra
að fjárfesta í því síðarnefnda og
gömul og lúin trend skal forðast eins
og heitan eldinn. Hér má til dæmis
nefna jakka í hermannastíl og lág-
skornar gallabuxur.
Aðrar reglur um útsölukaup eru til
dæmis að kaupa aldrei neitt bara af því
að það er ódýrt. Hugsaðu málið aðeins
og pældu í því hvort flíkin muni passa
við gömlu fötin þín og hvort þú munir
virkilega nota hana. Ef flíkin passar
ekki akkúrat, ekki kaupa hana! Þótt þig
hafi langað lengi í hana þá er hún ekki
þess virði ef hún passar ekki. Einnig
er afar gott að hafa
einhvern vin með sem
getur gefið heiðar-
legt álit á því hvernig
sumar flíkur fara þér. Það er miklu
betra en að fá ráð frá afgreiðslukonu
sem þekkir þig ekki neitt.
Það sem er öruggt að mun haldast
í tísku á komandi mánuðum og er
óhætt að kaupa á útsölum núna er til
dæmis niðurmjóar gallabuxur, bein
pils, stórar töskur og tímabilastíll.
Klassískar flíkur sem munu aldrei
verða lummó og því alltaf gott að
fjárfesta í á útsölum eru til dæmis
hvítar skyrtur, jakkapeysur,
hettupeysur, flatbotna skór,
klassískir háhælaskór og
stuttermabolir.
hilda@frettabladid.is
Góð kaup á útsölum
Ég upplifði mig sem sannan verðlaunahafa þegar ég kom
heim til mín með spunkunýjar legghlífar í poka. Ég segi
verðlaunahafa því það er ekki á hverjum degi sem ég vinn í
tískuhappdrætti og hnýt um eins mikinn og góðan grip eins
og þessar hlífar sem ylja í kuldanum. Það er líka svo gott
fyrir sálina að luma á svona hlutum inni í skáp, sem kemur í
veg fyrir allar tískukrísur sem geta herjað á mann þegar við
ólíklegustu tækifæri. Svo eru þær margnota og hægt að skarta
þeim við hátíðleg tækifæri en það er líka að vera í þeim við
náttbuxurnar þegar ég stelst út í Bónus í mínu versta ástandi.
Legghlífarnar eru fagrar með teygju í hliðinni og mörgum
tölum sem gera þær hæfilega gamaldags og hægt er að smeygja
þeim yfir hvaða skó sem er. Þær gefa hugmyndafluginu lausan
tauminn því þótt legghlífarnar séu svartar að lit má nota nánast
hvaða skó sem er við. Hver segir að bleikir sebraskinnskór
passi ekki við svartar legghlífar og appelsínugula sokka? Svo
eru þær svo háar að þær ná alveg upp að hnjám (allavega
ef þú ert í kringum 163-7 sm) sem mér finnst vera kostur.
Leðurlegghlífar eru þó ekki bara góðar í íslenskum vetri. Það
er frábært að ferðast í þeim, sér í lagi um háloftin því það er
svo auðvelt að smeygja sér úr þeim ef manni verður of heitt.
Tala nú ekki um fyrir alla þá sem fara á sólarstrandir um
þessar mundir. Þetta er alveg skothelt.
Það var líka annað sem ég rak augun strax í og það er að
legghlífarnar myndu spara mér mikið af peningum. Því með
því að kaupa þær gæti ég róterað, verið í alls konar skóm við
sem ég á heima og þyrfti ekki að kaupa mér enn ein stígvélin.
Þegar stígvélakaup eru skoðuð á ársgrundvelli er þetta
heilmikill sparnaður.
Ferðin í verslunina Verksmiðjuna (þar sem legghlífarnar
fást) var eftirminnileg. Það er nefnilega farið að heyra til
undantekninga að það sé dekrað við mann í búðum. Stúlkan
sem afgreiddi mig snerist í kringum mig meðan ég var að máta
og dældi í mig aragrúa af gagnlegum upplýsingum. Þegar ég
var að borga áttaði ég mig á því að indæla stúlkan var sjálfur
skóhönnuðurinn sem á heiðurinn legghlífunum. Þetta er einn
af kostunum við litlu Reykjavík, þetta persónulega sem getur
hent mann á hverju götuhorni ef maður er vakandi. Það er
harla ólíklegt að skóhönnuður afgreiði í verslun í New York.
Andlegur lottóvinningur
JAKKI Það er óhætt fyrir okkur Íslend-
inga að kaupa jakka sem eru eilítið
þykkir því sumrin eru nú ekki alltaf
svo heit. Þessi fæst í Zöru.
STÓR Töskurnar stóru
halda áfram að vera vin-
sælar og því er óhætt að
skella sér á eina. Úr Zöru.
JAKKAPEYSA Algjör
nauðsyn í fataskáp-
inn. Úr Zöru.
RÚLLU-
KRAGAPEYSA
Klassísk og
alltaf góð
fjárfesting. Úr
Zöru.
HVÍT SKYRTA Gengur hve-
nær sem er og er alltaf
góð kaup. Úr Zöru.
HLÝ PEYSA Gott er að
fjárfesta í klassískri
hlýrri peysu sem getur
dugað næsta vetur.
Fæst í Zöru.
STUTTAR buxur úr tvídefni
verða dásamlegar við
þykkar sokkabuxur í sumar.
Fást í Oasis.
ÞRÖNGAR
Dökkar galla-
buxur úr Oasis.
BENETTON Gott er að skella
sér í Benetton og kaupa eina
gæðalega og klassíska ullarp-
eysu fyrir næsta vetur.
PILS Pencil pilsin
verða áfram heit.
Úr Benetton.
KLASSÍSKT Jakkapeysur eru góð fjárfest-
ing á útsölum. Úr línu hönnuðarins Kate
Sylvester.
BEINT
pils og
sumarlegir
bolir við.
FLATBOTNA Þeir fara aldrei úr tísku.
Þessir eru úr Bossanova.
RÖNDÓTT Þverröndótt helst
áfram inni eins og allt sem
minnir á Andy Warhol og sjö-
unda áratuginn. Úr Oasis.
STÍGVÉL Með
mótórhjóla-
lúkki verða
þau heit
næsta haust.
Úr Bossa-
nova.
> Svartir spariskór
... flokkast undir góð
útsölukaup. Þessir eru frá
Bossanova.
utlit@frettabladid.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI