Fréttablaðið - 07.01.2006, Síða 88
48 7. janúar 2006 LAUGARDAGUR
SKÍÐI Bode Miller er einn besti
og þekktasti skíðamaður heims
í dag. Hann er einnig ákaflega
umdeildur enda þekktur glaumgosi
sem lætur sér fátt fyrir brjósti
brenna. Miller játaði í viðtali við
sjónvarpsþáttinn 60 mínútur að
hann hefði skíðað fullur og þótt
það sé lífshættulegt útilokar hann
ekki að endurtaka leikinn.
„Það er svo sannarlega mikil
áskorun að komast klakklaust
niður brautina drukkinn. Það
er mjög erfitt að skíða fullur,“
sagði Miller en ummæli hans eiga
vafalítið eftir að hrista vel upp í
skíðaheiminum. „Þegar þú ert í
svigi er hættulegt að fara aðeins
of seint inn í hliðið. Maður er að
leggja líf sitt í hættu. Þetta er eins
og að keyra fullur fyrir utan að
það eru engin lög sem banna þér
að skíða fullur. Ég vil samt ekki
þvertaka fyrir að ég muni prófa
að skíða fullur einhvern tímann
síðar.“
Miller er mikill glaumgosi
eins og áður segir og missir af
fáum partíum. Hann segir að
þetta stanslausa partíhald hafi oft
haft áhrif á frammistöðu hans í
brekkunni.
„Það hafa verið stundir þar
sem ég hef verið í mjög slæmu
ástandi efst í brekkunni,“
sagði Miller sem er núverandi
heimsmeistari í samanlögðu og
tvöfaldur silfurverðlaunahafi frá
Ólympíuleikunum í Salt Lake City.
„Fólk vill að ég vinni endalaus
verðlaun en mér er alveg sama
hvað annað fólk segir.“
henry@frettabladid.is
Erfitt að skíða fullur
Bandaríski skíðakappinn Bode Miller opnaði sig í viðtali við 60 mínútur og
segist hafa skíðað fullur. Miller útilokar ekki að endurtaka leikinn.
GLAUMGOSI Bandaríska skíðakappanum Bode Miller líkar ljúfa lífið og á það til að bregða
sér á skíði undir áhrifum. Jafnvel þegar hann er að keppa. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Kvennalið Hauka
mætir í dag króatíska liðinu RK
Podravka Vegeta á Ásvöllum í
Evrópukeppninni í handbolta en
seinni leikurinn í einvíginu fer
fram á morgun á sama stað.
Guðmundur Karlsson, þjálfari
Hauka, segir króatíska liðið vera
ógnarsterkt. „Það er ljóst að við
erum að fara mæta mjög sterku
liði. Það komst í úrslitaleik í Evr-
ópukeppni bikarhafa í fyrra og
það hefur verið einkar sigursælt á
síðustu tíu árum. Liðið er ósigrað
í deildinni heima fyrir og þá vann
liðið æfingamót í Sviss milli jóla
á nýárs en þar voru sterk lið frá
Þýskalandi og Danmörku.“
Guðmundur segist hafa kynnt
sér leikstíl króatíska liðsins vel
en hann hefur skoðað myndbands-
upptökur af liðinu að undanförnu.
„Það hafa öll lið veikleika og
þetta lið er engin undantekning.
Við þurfum að eiga virkilega góðan
leik til þess að eiga möguleika á
sigri í leiknum. En ég hef trú á
mínu liði og ef allar stelpurnar
verða einbeittar og tilbúnar í
leikinn frá byrjun, þá eigum við
möguleika á sigri. Við höfum æft
virkilega vel undanfarna mánuði
og vonandi tekst okkur að sýna
allar okkar bestu hliðar.“ - mh
Kvennalið Hauka leikur í Evrópukeppninni:
Leikmenn verða að ná
fram sínu allra besta HANDBOLTI DHL-deild kvenna hefst að nýju í dag eftir langt frí
með fjórum leikjum.
Díana Guðjónsdóttir, þjálfari
meistara- og unglingaflokks
hjá HK, segir fríið hafa komið
sér vel fyrir lið sitt en mikill
meirihluti leikmanna í meistara-
flokknum er ennþá gjaldgengur í
unglingaflokkinn. „Ég er nokkuð
sátt við mitt lið það sem af er
keppni í deildinni. Fríið hentar
mínu liði ágætlega þar sem stór
hluti stelpnanna var að spila
með unglingaflokknum fram í
desember, þannig að þetta var
nú ekki voðalega langt frí fyrir
mínar stelpur.“
Keppni í DHL-deild kvenna
hefur verið jöfn og spennandi í
vetur. Haukar eru efstir í deild-
inni með tólf stig en ÍBV og
Stjarnan koma næst með ellefu
stig. „Deildin hefur þróast með
svipuðum hætti og ég bjóst við.
Það verður spennandi að sjá
hvernig liðin bregðast við breyt-
ingum á leikmannahópunum.“
HK tekur á móti liði FH á
heimavelli sínum í Digranesi á
morgun. Díana á vön á hörku-
leik. „Við munum sakna Tatjönu
Zukovsku í leiknum en hún verð-
ur í banni. Það mun skipta miklu
máli fyrir okkur en ég hef fulla
trú á mínu liði og við ætlum okkur
að sjálfsögðu sigur í leiknum.“
Þrír aðrir leikir fara fram í
dag. Stjarnan tekur á móti Vík-
ingi á heimavelli sínum í Garða-
bæ, Fram fær KA/Þór í heimsókn
og Grótta fær ÍBV í heimsókn.
- mh
DHL-deild kvenna í handbolta hefst í dag eftir langt hlé:
Fyrstu leikir ársins fara fram í dag
FÓTBOLTI Sam Allardyce, knatt-
spyrnustjóri enska úrvalsdeildar-
félagsins Bolton, segist ekki ætla
að tala aftur við fjölmiðlamenn
breska ríkisútvarpsins eftir að
útvarpsþáttastjórnandinn Alan
Green gagnrýndi leikstíl liðsins
eftir 2-2 jafntefli við Liverpool.
„Ég hef rætt við stjórnarformann-
inn um að slíta öllu sambandi leik-
manna minna við BBC og hann
styður mig fullkomlega í því.“
Green er afar umdeildur
útvarpsmaður en þættir hans um
enskan fótbolta eru mjög vinsælir
í Englandi. Allardyce efast þó um
að það sé BBC til framdráttar að
hafa Green í vinnu hjá fyrirtæk-
inu. „Ég myndi ekki treysta Green
fyrir neinum störfum hjá Bolton,“
sagði Allardyce reiður eftir að
hafa heyrt umfjöllun hans um
leikstíl Bolton.
Roy Keane og knattspyrnu-
stjórarnir Alex Ferguson, Joe
Royle og David Moyes neita allir
að tjá sig við Alan Green eftir
óvægna gagnrýni hans á félög
þessara manna. - mh
HINGAÐ OG EKKI LENGRA Aukse
Vysniauskaité hjá HK sést hér í baráttu við
einn leikmanna Hauka fyrr í vetur.
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton:
Talar ekki aftur við BBC
SAM ALLARDYCE Farinn í fjölmiðla-
bann hjá BBC eftir að fréttmaður þar á
bæ vogaði sér að gagnrýna lið hans.
Þýskir fjölmiðlar greindu frá því í
gær að Dagur Sigurðsson, fyrrum
landsliðsfyrirliði og núverandi þjálfari
Bregenz í Austurríki, sé einn af þremur
hugsanlegum eftirmönnum Alfreðs
Gíslasonar hjá Magdeburg, en sem
kunnugt er var Alfreð rekinn
frá félaginu í fyrradag.
Dagur er nefndur ásamt
Bogdan Wenta, þjálfara
pólska landsliðsins
og aðstoðarþjálfara
Flensburg, og Jens
Pfänder, þjálfara
TUS Lübbecke.
Wenta þykir
líklegastur þar sem
koma hans myndi
líklega verða til þess
að þá héldi liðið frekar í
pólsku landsliðsmennina
Karol Bielecki og Grzegorz
Tkaczyk sem eru algjörir
lykilmenn í liðinu.
„Ég hef ekkert heyrt frá
neinum í Magdeburg,“ sagði
Dagur þegar Fréttablaðið
spurði hann fregna í gær.
Dagur hefur þjálfað lið
Bregenz við góðan
orðstír sl. tvö ár og
lagði liðið meðal
annars Magdeburg í
Meistaradeildinni fyrr í
vetur. „Ætli þessi meinti
áhugi sé ekki tilkominn
vegna sigurs okkar í þeim
leik,“ segir Dagur. Þrátt
fyrir að hann sé vel þekktur í Þýskalandi
eftir góðan feril sem leikmaður þar í
landi gera fjölmiðlar ytra að því skóna að
að reynsluleysi Dags sem þjálfari verði til
þess að fæla forráðamenn Magdeburg
frá.
„Ég hef áður sagt frá því að ég hafi
mikinn áhuga á að taka við einhverjum
af toppliðunum í Þýskalandi og að
sjálfsögðu hef ég áhuga á Magdeburg,“
segir Dagur sem er nýbúinn að framlengja
samning sinn við Bregenz til tveggja ára.
„Mér líður mjög vel hér og ég er eiginlega
ekki í aðstöu til að velta mér upp úr
þessum hlutum. Þó að það gæti verið
að Bregenz myndi ekki standa í vegi fyrir
mér ef tilboð kæmi frá Magdeburg þá er
það ekki mitt að ákveða hvað verður. Ég
er samningsbundinn Bregenz.“
DAGUR SIGURÐSSON: ORÐAÐUR VIÐ ÞJÁLFARASTÖÐUNA HJÁ MAGDEBURG
Að sjálfsögðu hef ég áhuga á Magdeburg
HANDBOLTI Ekki voru allir á eitt
sáttir með það að Alfreð Gíslason
handboltaþjálfari hafi verið lát-
inn fara frá þýska félaginu Mag-
deburg en hann var vinsæll með
stuðningsmanna félagsins.
Borði var hengdur upp í íþrótta-
höllinni í Magdeburg þar sem á
stóð „takk fyrir allt“.
Fjölmiðlar í Þýskalandi greindu
einnig frá því að aðdáendur
Magdeburg hefðu ekki haft neitt
á móti Alfreð sem þjálfara, þrátt
fyrir að gengi liðsins hefði ekki
verið eins og þeir vildu.
Alfreð er nú í fríi en hann tekur
við liðið Gummersbach á næsta
ári. - mh
Stuðningsmenn Magdeburg:
Vildu halda
Alfreð lengur
ALFREÐ GÍSLASON Alfreð tekur því nú
rólega í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Dragi Pavlov hefur
verið ráðinn þjálfari meistara- og
2. flokks kvenna hjá FH en hann
tekur við af Aðalsteini Örnólfssyni
sem hætti seint á síðasta ári.
Pavlov er 42 ára gamall og upp-
alinn í Makedóníu. Hann á langan
feril að baki sem atvinnumaður í
knattspyrnu og lék meðal annars
með franska liðinu Sedan í efstu
deild í Frakklandi.
Pavlov kom til Íslands árið 1998
til þess þjálfa Neista á Djúpavogi
en flutti sig fljótt til Egilsstaða
þar sem hann var yfirþjálfari
yngri flokka félagsins.
Pavlov hefur síðan meðal
annars þjálfað hjá Stjörnunni og
Knattspyrnuakademíu Íslands.
Markmiðið með ráððningu Pavlovs
er að stórefla meistaraflokk
félagsins. - mh
Nýr þjálfari hjá FH:
Dragi Pavlov
ráðinn til FH
> Fjölnota íþróttahús hjá FH
Ákveðið hefur verið reisa fjölnota
íþróttahús og stúku við íþróttasvæði
FH í Kaplakrika. Aðstaðan verður öll hin
glæsilegasta og er meðal annars áætlað
að áhorfendastúkan muni taka nokkur
þúsund
áhorfendur
í sæti. Það
ætti því að
vera hægt
að mynda
skemmti-
lega
stemmingu
í gryfjunni í
Kaplakrika
þar sem
áhorfend-
ur sitja þétt upp við völlinn. Hver veit
nema landsleikir Íslands verði spilaðir á
Kaplakrikavelli í framtíðinni.
Jóhannes til
AZ Alkmaar?
Líklegt er að knatt-
spyrnumaðurinn
Jóhannes Karl Guðjónsson gangi til liðs
við hollenska félagið AZ Alkmaar í Hol-
landi en með íslenski landsliðsmaður-
inn Grétar Rafn Steinsson er á mála hjá
félaginu. „Ég veit af áhuga AZ Alkmaar
en málið er ekki komið lengra en það
að svo stöddu. En ég reikna með að fara
yfir stöðu mína með forráðamönnum
Leicester City á næstu dögum.“
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JANÚAR
4 5 6 7 8 9 10
Laugardagur
■ ■ LEIKIR
13.00 Grótta og ÍBV mætast í
DHL-deild kvenna í handbolta á
Seltjarnarnesi.
14.00 KFÍ og Haukar B mætast í
bikarkeppni Lýsingar og KKÍ kvenna í
körfubolta á Ísafirði.
15.00 Fram og KA/Þór mætast
í DHL-deild kvenna í handbolta í
Safamýrinni.
16.00 ÍS og Fjölnir mætast í bik-
arkeppni Lýsingar og KKÍ kvenna í
körfubolta í Kennaraháskólanum.
16.00 Grindavík og KR mætast í
bikarkeppni Lýsingar og KKÍ kvenna í
körfubolta í Grindavík.
16.00 KR B og Grindavík mætast
í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ karla í
körfubolta í DHL-höllinni.
16.15 Stjarnan og Víkingur mæt-
ast í DHL-deild kvenna í handbolta
í Ásgarði.
16.15 HK og FH mætast í DHL-
deild kvenna í handbolta í Digranesi.
18.15 Haukar og Tindastóll mæt-
ast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ
kvenna í körfubolta á Ásvöllum.
■ ■ SJÓNVARP
09.25 Inside the PGA Tour á Sýn.
12.20 Enska bikarkeppnin á
Sýn. Bein útsending frá leik Hull og
Aston Villa.
15.00 Enska bikarkeppnin á Sýn.
Bein útsending frá leik Torquay og
Blacburn.
16.50 Ensku mörkin á Sýn. Mörkin
úr ensku 1. deildinni.
17.20 Enska bikarkeppnin á Sýn.
Bein útsending frá leik Luton og
Liverpool.
19.20 Bestu bikarmörkin á Sýn.
Bikarveisla að hætti Liverpool.
20.15 NFL-tilþrif á Sýn.
20.50 Spænski boltinn á Sýn.
Bein útsending frá leik Espanyol og
Barcelona.
22.50 Box á Sýn. Útsending frá bar-
daga Ricky Hatton og C. Maussa.