Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Konur undir fimmtugu velja Fréttablaðið! MEÐAL LESTUR KVENNA 12-49 ÁRA 53% 36% *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005. Sími: 550 5000 SUNNUDAGUR 22. janúar 2006 — 21. tölublað — 6. árgangur Enginn glamúr Helga Stefánsdótt- ir, leikmynda- og búningahönnuður, hefur í sautján ár hannað búninga fyrir stjörnurnar, meðal annars fyrir kvikmyndina A Little Trip to Hea- ven og nýja útfærslu á Carmen. VIÐTAL 20 Hver hreppir Óskarinn? Mikil eftirvænting ríkir í Hollywood um hvaða bíó- myndir verða verðlaunað- ar í ár. HELGAREFNI 60 THEODÓR FREYR HERVARSSON Sviptingar í veðri atvinna Í MIÐJU BLAÐSINS LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík handtók þrjá menn, einn Íslending og tvo útlendinga, á fimmtudag en þeir eru grunaðir um að hafa ætlað að svíkja fé út úr Íslands- banka. Mennirnir munu hafa reynt að verða sér úti um stórt lán í bankanum með falsaða bankaá- byrgð sem tryggingu. Starfsmenn Íslandsbanka gerðu strax athugasemdir við umsóknina enda kom í ljós að ekki var allt sem skyldi við það reglu- bundna eftirlit sem fer í gang þegar slíkar lánsumsóknir eru annars vegar. Bankaábyrgð mannanna hljóð- aði samkvæmt heimildum blaðsins upp á nokkrar milljónir evra eða sem samsvarar nokkur hundruð milljónum króna íslenskum. Við athugun á bankaábyrgðinni varð starfsmönnum ljóst að ekki var allt með felldu og voru þremenn- ingarnir handteknir í kjölfarið. Þeir gistu eina nótt í fangageymsl- um auk þess sem lögregla gerði húsleit hjá Íslendingnum. Við hús- leitina lagði lögregla hald á ýmis skjöl sem nú eru til rannsóknar. Enn fremur var farið fram á að erlendu mennirnir yrðu úrskurð- aðir í farbann meðan á rannsókn málsins stæði en Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði þeirri beiðni lögreglu síðdegis í gær. Upplýsingafulltrúi Íslands- banka, Vala Pálsdóttir, vildi lítið tjá sig um málið en sagði að mönn- unum hefði ekki tekist ætlunar- verk sitt. Bankinn hefði ekki orðið fyrir tjóni og málið væri í höndum lögreglu. Íslendingurinn sem um ræðir er kunnur athafnamaður hér á landi en ekkert er vitað um sam- verkamenn hans sem kunna að vera farnir úr landi. - aöe Reyndu að fá stórt lán í Íslandsbanka gegn framvísun falsaðrar bankaábyrgðar: Stöðvaðir við milljónasvik „Sumir vilja ganga lengra en tillögur fjölmiðlanefndar segja til um, aðrir telja jafnvel enga þörf á sérstakri lagasetningu um fjölmiðla,“ segir Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra. Í DAG 8 Mikilvægi samstöðu um fjölmiðlalög LONDON, AP Hvalurinn, sem synti upp ánna Thames og varð þar inn- lyksa, gaf upp öndina um sjöleytið í gærkvöld skammt frá Alberts- brúnni í Lundúnum. Sérfræðingar höfðu varað við því frá upphafi að björgunartilraunir gætu borið lít- inn árangur. Björgunarmenn höfðu híft andarnefjuna upp í bát og hugðust flytja hana hratt niður ána til hafs þegar dýrið fékk nokkur krampa- köst og drapst. Hvalurinn hafði sýnt aukin streitumerki og vöðvar hans stífnuðu upp fljótlega eftir að hann var kominn upp úr vatn- inu. ■ Björgun í Thames mistókst: Andarnefjan drapst í gær REYNDU ALLT Andarnefjan var innlyksa í Thames-á í meira en sólarhring áður en yfir lauk. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HVASSVIÐRI ÚTI FYRIR norðaust- ur- og austurströndinni, annars strekk- ingur eða allhvasst. Skúrir eða slydduél með ströndum sunnan og vestan til en slyddu- eða snjóél með norðurströnd- inni. Hiti 0-4 stig en frystir víða í kvöld eða nótt. VEÐUR 4 SKOÐANAKÖNNUN Sjálfstæðisflokk- ur fengi níu borgarfulltrúa kjörna og hreinan meirihluta í borginni, yrði gengið til borgarstjórnarkosn- inga nú samkvæmt nýrri skoðana- könnun Fréttablaðsins. Flokkur- inn fengi 52,7 prósent atkvæða. „Þetta er afar ánægjulegt og traustvekjandi, sérstaklega í ljósi þess að könnunin er gerð þegar yfir stendur prófkjörsbarátta hjá bæði Framsóknarflokknum og Samfylkingunni,“ segir Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálf- stæðisflokks í borgarstjórn. Samfylking yrði næststærsti flokkurinn og fengi fimm borgar- fulltrúa kjörna með 30,8 prósent atkvæða. „Þetta er örugglega að mæla landið eins og það liggur í dag. Við erum hins vegar að fara af stað í kosningabaráttu og ég hef fulla trú á að þessar tölur eigi eftir að breytast,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Einungis Svandís Svavarsdótt- ir kæmist inn fyrir hönd Vinstri grænna, en flokkurinn fengi átta prósent atkvæða. „Þetta er ágætis brýning og við sækjum bara áfram. Vinstri grænir eiga heilmikið inni, við ætlum okkur miklu meira og náum í það,“ segir Svandís. Framsóknarflokkur og Frjáls- lyndi flokkurinn fengju engan mann kjörinn. 5,4 prósent sögð- ust myndu kjósa Framsóknar- flokkinn, en 2,8 prósent styddu Frjálslynda flokkinn. Framsókn- arflokkurinn bætir örlítið við sig í könnuninni en nær ekki manni inn. Anna Kristinsdóttir, borgar- fulltrúi flokksins, segir þó að nið- urstaðan gefi ástæðu til bjartsýni. „Við erum að fara upp miðað við niðurstöður síðustu skoðanakann- anna og það eru góðar fréttir,“ segir hún. Frjálsyndi flokkurinn mælist með tæp þrjú prósent og bætir aðeins við sig frá síðustu skoðana- könnun Fréttablaðsins en nær ekki manni inn í borgarstjórn. Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri flokksins, er ánægð með niðurstöð- una og segist vera mjög bjartsýn fyrir komandi kosningar. „Þetta gengur samkvæmt áætlun því við ætluðum að hafa hægt um okkur á meðan prófkjörin hjá Framsókn- arflokknum og Samfylkingunni ganga yfir,“ segir hún. -ss/ sjá síðu 4 Sjálfstæðisflokkur fengi meirihluta Skoðanakönnun Fréttablaðsins á fylgi flokkanna í Reykjavík leiðir í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan meirihluta í borgarstjórn. Samfylking fengi fimm fulltrúa, Vinstri grænir einn en Framsókn og Frjálslyndir engan. PRÓFKJÖR Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, var sjálf- kjörinn í fyrsta sæti lista Sjálf- stæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í próf- kjöri flokksins sem fram fór í gær. Gunnar sagðist í samtali við Fréttablaðið vera afar ánægður með niðurstöðu prófkjörsins. List- inn væri skipaður afar hæfu fólki. Gunnsteinn Sigurðsson bæj- arfulltrúi varð í öðru sæti og Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæj- arstjórnar, í því þriðja. Ásthildur Helgadóttir, verk- fræðingur og knattspyrnukona, sem er ný í bæjarpólitíkinni, náði fjórða sætinu og Sigurrós Þor- grímsdóttir bæjarfulltrúi verður í fimmta sæti listans. Alls tóku um 2.000 manns þátt í prófkjörinu og bættust hátt í þús- und manns á kjörskrána dagana fyrir prófkjörið. Sjá nánar á síðu 2 Sjálfstæðismenn í Kópavogi: Gunnar leiðir listann í vor HAVANA, AP Lech Walesa, fyrr- verandi forseti Póllands og friðarverðlaunahafi Nóbels, segir Kúbverjum að fara að búa sig undir að taka upp lýðræði. Margt hafi farið úrskeiðis í Pól- landi á sínum tíma vegna þess hve breytingarnar frá kommún- isma til lýðræðis voru óvæntar og gerðust hratt. „Þegar frelsið kemur, þá verður það erfitt,“ sagði Walesa við andstæðinga Fidels Castro í Florída, á klukkustundarlöngum fundi sem hann átti með þeim í gegnum fjarfundabúnað. ■ Lech Walesa talar til Kúbu: Frelsið verður ekki auðvelt LEIÐTOGAR RÆÐAST VIÐ Gunnar Þorsteinsson í Krossinum og Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, skeggræddu niðurstöðu próf- kjörsins þegar úrslit lágu fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/BRINK Flengdir af Frökkum Íslenska landsliðið steinlá með sex mörkum, 30-36, fyrir Frökkum á Ásvöllum í gær. Lands- liðsþjálfarinn var ekki sáttur við leik sinna manna. ÍÞRÓTTIR 38 VEÐRIÐ Í DAG ÁGÚSTA EVA ERLENDSDÓTTIR Leikur Evu Lind í Mýrinni Fyrsta alvörugefna hlutverkið FÓLK 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.