Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 57
SUNNUDAGUR 22. janúar 2006 25
STING - TEN SUMMONER´S TALES „Var
staddur á Mallorca sumarið
1993 þegar Sting var mættur
þar að fylgja
þessari plötu
eftir. Hafði
þá ekki verið
s é r s t a k u r
a ð d á a n d i
Sting en fór á
tónleikana og
féll alveg fyrir honum. Frá-
bærar og fjölbreyttar laga- og
textasmíðar ásamt frábærri
hljómsveit gera þessa plötu að
einni af mínum uppáhalds.“
RAGE AGAINST THE MACHINE - RAGE
AGAINST THE MACHINE „Þegar ég
hlustaði á lagið Bullet in the
head í einhverju partíi hafði
ég enga hugmynd um hvaða
band þetta
var, fannst
það lag algjör
snilld og varð
að heyra
meira. Eftir
að hafa hlust-
að á diskinn
einu sinni var
ég sigraður. Þvílíkur kraftur
í einu bandi og magnað sánd.
Öll lögin góð. Rokkfönkið eins
og það gerist best að mínu mati.
Tónleikarnir í Kaplakrika voru
rúsínan í pylsuendanum.“
STEVIE WONDER - SONGS IN THE KEY
OF LIFE „Þessa plötu hlustaði ég
fyrst á löngu áður en ég var
orðinn 10 ára heima á Ísafirði.
Þarna varð ég fyrir áhrifum frá
pabba sem
heldur mikið
upp á Stevie
Wonder. Átt-
aði mig strax
á því, þótt
ungur væri,
hversu frá-
bær tónlist-
armaður hann er og hef haldið
upp á hann alla tíð síðan.“
JAGÚAR - HELLO SOMEBODY „Jagú-
ar spilar nákvæmlega þá tón-
list sem ég fíla mest. Er mjög
hrifinn af
því sem þeir
hafa gert,
f r á b æ r i r
s p i l a r a r .
Þessi plata
i n n i heldu r
mörg frábær
lög og ég er
með þessa í stöðugri spilun í
bílnum og búinn að vera með
lengi.“
JAMIROQUAI - EMERGENCY ON PLANET
EARTH „Fönkgenið er búið að
vera ríkj-
andi í mér
lengi. Þegar
vinur minn
leyfði mér
að heyra
titillagið á
þessari plötu
var ég viss um að þetta væri
vinur minn Stevie Wonder. Nei
aldeilis ekki, þetta var hvítur
Breti! Trúði vart mínum eigin
eyrum og augum. Algjör snill-
ingur þar á ferð. Þessi fer alltaf
reglulega í spilarann.“
5 PLÖTUR
SIGURÐUR SAMÚELSSON
BASSALEIKARI ÍRAFÁRS
Fönkgenið
lengi ríkjandi
Í dag verða væntanlega síðustu
nýárstónleikarnir þetta árið
þegar Tríó Reykjavíkur heldur
sína árlegu Vínartónleika. Þau
Gunnar, Guðný og Peter hafa að
þessu sinni fengið Ólaf Kjartan
Sigurðarson til þess að bregða á
leik í upphafi Mozart-ársins.
„Það er komin löng og góð hefð
fyrir þessum árlegu tónleikum
Tríós Reykjavíkur, en þetta er
í fyrsta skipti sem ég tek þátt í
þessu með þeim. Og mér finnst
það að sjálfsögðu mjög spenn-
andi,“ segir Ólafur Kjartan barit-
ónsöngvari, sem undanfarið hefur
haldið sig mikið í Bretlandi þar
sem hann syngur í óperum við
ýmis helstu óperuhús landsins.
Tríó Reykjavíkur er skipað
þeim Gunnari Kvaran sellóleikara,
Guðnýju Guðmundsdóttur fiðlu-
leikara og Peter Maté píanóleik-
ara. Tríóið hefur árum saman
haldið reglulega nokkra tónleika
yfir vetrartímann í Hafnarborg,
þar á meðal Vínartónleika jafnan
í upphafi árs.
Fyrri hluti tónleikanna í kvöld
verður algerlega helgaður Moz-
art, enda er nú að hefjast afmæl-
isárið mikla þar sem tónlistarfólk
um heim allan minnist þess að
250 ár eru liðin frá fæðingu þessa
vinsæla tónskálds.
„Það er ekki hægt annað en að
sinna honum vel. Mörg af mínum
helstu hlutverkum á sviði hafa
verið í óperum eftir Mozart. Það
gefur því auga leið að ég mun
flytja nokkrar aríur úr þeim
óperum.“
Á tónleikunum bregður Ólaf-
ur Kjartan sér í hlutverk karla
á borð við Papageno, Fígaró og
Don Giovanni, en eftir hlé verður
skipt um gír og reidd fram góð
blanda af rómantík, sígaunatón-
list og hefðbundinni Vínartónlist,
auk íslenskra áramótalaga.
„Það er erfitt að labba inn í
nýja árið án þess að minnast á
álfa og tröll. Þó að við séum alltaf
að tala um hækkandi sól þá er það
samt svo að máninn hátt á himni
skín.“ ■
Fígaró og fleiri karlar
SIGURÐUR SAMÚELSSON
Bassaleikari Írafárs heldur
mikið upp á fyrstu plötu
Jamiroquai. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON ÁSAMT
TRÍÓI REYKJAVÍKUR Ólafur Kjartan
stendur þarna á milli þeirra Guðnýjar og
Gunnars. Baka til sést síðan í píanóleik-
arann Peter Maté. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM