Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 75
SUNNUDAGUR 22. janúar 2006 43
Rokktónleikar
á SKJÁEINUM!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
0
8
7
Úrslitaþáttur Rockstar INXS!
Hver stendur uppi sem sigurvegari og verður
næsti söngvari INXS? Marty, Mig eða J.D?
sun
kl.21
FÓTBOLTI Ég er ekki búinn að skrifa
undir en samningurinn bíður mín
bara á borðinu og þeir gáfu mér
rúman tíma til að hugsa málið,“
sagði Jóhannes Karl Guðjónsson
við Fréttablaðið í gær en hann er
að öllum líkindum á leið til hol-
lenska félagsins AZ Alkmaar.
Grétar Rafn Steinsson leikur með
liðinu sem er í toppbaráttunni í
Hollandi undir dyggri stjórn Louis
van Gaal en Jóhannes Karl hefur
áður leikið í Hollandi en hann var
á mála hjá RKC Waalwijk á sínum
tíma.
„Þetta tekur allt sinn tíma og
ég hugsa fyrst og fremst um fjöl-
skylduna sem þarf þá að flytja
enn einu sinni.
En það eru mjög miklar líkur
á því að ég skipti yfir. Samning-
urinn sem þeir buðu mér er góður
og alls ekki það sem er að tefja
ákvörðun mína heldur er það fjöl-
skyldan og flutningarnir,“ sagði
Jóhannes sem hefur á ferlinum
meðal annars leiki með Aston
Villa en er nú að losna undan
samningi hjá Leicester.
„Það væri mjög gaman að fara
yfir til liðsins enda er þetta stór
klúbbur og ekki skemmir fyrir
að Grétar Rafn spilar þar. Liðið
ætlar sér stóra hluti, er að flytja
á nýjan leikvang á næsta tímabili
og það er líklegt að þeir verði í
Meistaradeildinni á næsta tíma-
bili. Þeir eru einnig með mjög
færan þjálfara og því er þetta
spennandi verkefni.
Grétar Rafn ber klúbbnum
mjög vel söguna „okkur leið mjög
vel í Hollandi á sínum tíma. Mér
líst því einstaklega vel á þetta allt
saman,“ sagði Jóhannes að lokum
en búast má við að hann skrifi
undir samninginn við AZ Alk-
maar í næstu viku en ferlið hefur
tekið mun lengri tíma en vonast
var til í fyrstu.
- hþh
Jóhannes Karl Guðjónsson á leiðinni til hollenska liðsins AZ Alkmaar:
Líst mjög vel á stórliðið
JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON Á leið til
Hollands.
FÓTBOLTI Afríkumótið hófst um
helgina þegar heimamenn í
Egyptalandi lögðu Líbíu í opnun-
arleiknum þar sem Mido, fram-
herji Tottenham, skoraði tvö af
þremur mörkum heimamanna í 3-
1 sigri. Sömu lokatölur urðu þegar
Kamerún bar sigurorð af Angola
en þar fór knattspyrnumaður árs-
ins í Afríku, Samuel Eto´o sókn-
armaður Barcelona, á kostum og
skoraði glæsilega þrennu.
Þá tryggði Didier Drogba leik-
maður Chelsea Fílabeinsströnd-
inni 1-0 sigur á Marokkó með
marki úr umdeildri vítaspyrnu
og er óhætt að segja að þetta
skemmtilega mót fari vel af stað.
- hþh
Samuel Eto´o fer á kostum:
Afríkumótið hafið
SAMUEL ETO´O Skorar og skorar.
HANDBOLTI Danir og Ungverjar
sem eru með Íslandi í riðli á Evr-
ópumótinu í Sviss léku æfingaleiki
í gær en hlutskipti liðanna voru
misjöfn.
Danir sigruðu Pólverja 33-28 í
Kolding í Danmörku en staðan í
hálfleik var jöfn, 15-15. Marka-
hæsti leikmaður Dana í leiknum
var Sören Stryger en hann skoraði
tólf mörk.
Ungverjar töpuðu fyrir Þjóðverj-
um 30-26 í Mannheim í Þýska-
landi og unnu þeir þar með báða
æfingaleiki þjóðanna en sá fyrri
fór 33-32. Þjóðverjar urðu aftur á
móti fyrir miklu áfalli þegar Oleg
Velyky meiddist en hann spilar
nær örugglega ekki með á Evr-
ópumótinu sem eru slæm tíðindi
fyrir Þjóðverja.
- hþh
Mótherjar íslands á EM í Sviss:
Danir lögðu
Pólverja
FÓTBOLTI Framherjinn Andy
Cole mun að líkindum skrifa
undir nýjan samning við lið sitt,
Manchester City, á næstu dögum.
Cole, sem var fenginn frá Fulham í
fyrrasumar, hefur staðið sig vel að
mati Stuart Pearce, þjálfara City,
sem margir sögðu að hefði teflt á
tvær hættur þegar hann fékk hann
til sín. „Það hefur verið mjög gott
að hafa Andy hér og hann hefur
staðið sig vel. Hann hefur góð
áhrif á yngri leikmennina og vill
vera hér á næsta tímabili líka,“
sagði Pearce sem er greinilega
ánægður með kappann. - toh
Andy Cole:
Fær nýjan
samning
ANDY COLE Skrifar undir nýjan samning.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY