Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 73
SUNNUDAGUR 22. janúar 2006 41
FÓTBOLTI Markvörðurinn snjalli,
Carlo Cudicini, hefur skrifað undir
nýjan samning við ensku meistar-
ana í Chelsea til eins árs til viðbót-
ar. Er hann nú samningsbundinn
Chelsea til sumars 2009. Cudicini,
sem löngum hefur verið talinn
einn af betri markmönnum deild-
arinnar, hefur ekki fengið mörg
tækifæri eftir að Peter Chech kom
til liðsins. Cudicini kom frá ítalska
liðinu Castel Di Sangro árið 1999
og hefur verið hjá liðinu æ síðan.
Þrátt fyrir það hefur hann nú
ákveðið að framlengja dvöl sína
hjá félaginu - toh
Carlo Cudicini:
Skrifaði undir
nýjan samning
CARLO CUDICINI Samningsbundinn til
2009 FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
KÖRFUBOLTI Tracy McGrady var í
miklum ham þegar Houston bar
sigurorð af Chicago í miklum
spennuleik. Var þetta fyrsti leikur
McGrady í nokkurn tíma vegna
meiðsla. Framlengja þurfti tvisv-
ar sinnum í leiknum sem endaði
109-108, Houston í vil. McGrady
skoraði 35 stig auk þess að skora
sigurkörfuna í leiknum. Juwan
Howard var næststigahæstur
fyrir Rockets með 30 stig. Luol
Deng var stigahæstur í liði Bulls
með 18 stig.
Kobe Bryant var stigahæstur
að vanda í liði Los Angeles Lakers
gegn Phoenix Suns. 37 stig hans
dugðu þó skammt þar sem Lakers
töpuðu 106-93. Shawn Marion
skoraði 22 stig fyrir Suns og Eddy
House 19. - toh
NBA-deildin:
McGrady í
miklu stuði
TRACY MCGRADY Fór hamförum gegn
Chicago FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
TENNIS Besti tenniskappi heims,
Roger Federer, átti ekki í erfið-
leikum með að komast í gegnum
þriðju umferð á opna ástralska
mótinu en hann lagði Max Mirnyi
í þremur settum.
Sigurinn var þægilegur hjá Fed-
erer en hann er talinn mjög sigur-
stranglegur á mótinu enda í efsta
sæti á heimslista tennismanna.
Hann mætir Tommy Haas í sextán
manna úrslitunum en Haas lagði
heimamanninn Peter Luczak af
velli í sínum leik.
„Þetta var erfiður leikur en ég
komst nokkuð vel frá honum. Von-
andi næ ég að halda þessu áfram,“
sagði Federer eftir sigur sinn. ■
Opna ástralska í fullum gangi:
Federer áfram
ROGER FEDERER Líklegur til afreka.
FÓTBOLTI Andri Steinn Birgisson
mun ekki ganga til liðs við enska
félagið Notts County sem Guðjón
Þórðarson stýrir að svo stöddu.
Andri fór til liðsins í desember og
spilaði einn varaliðsleik með lið-
inu þar sem hann lagði upp bæði
mörk liðsins í 3-2 tapi en varð svo
fyrir því óláni að lenda í bílslysi
þar sem hann slasaðist töluvert og
æfði því ekki meira með liðinu og
hélt heim á leið.
„Ég meiddist talsvert í slysinu
og hef lítið æft síðan ég kom heim.
Ég er þó óðum að ná mér þessa
dagana og er aðeins að byrja að
æfa aftur,“ sagði Andri Steinn sem
leikur með Víkingum hér heima.
„Ég fékk í bakið og hálsinn en ég
fer í myndatöku fljótlega þar sem
skýrist nánar hvers eðlis meiðslin
eru,“ sagði Andri sem er að vinna
í því að ganga frá samningi við
Víkinga þessa dagana en það mál
ætti að skýrast í byrjun febrúar.
Andra Steini leist þó ágætlega
á aðstæður hjá Notts County og
ekki er útilokað að hann fari þang-
að aftur í framtíðinni. „Þetta er
flottur klúbbur. Æfingasvæðið er
að vísu ekkert til að hrópa húrra
fyrir en völlurinn er flottur sem
og aðrar aðstæður.
Fjárhagsstaða liðsins er erfið
og klúbburinn er í erfiðri stöðu
en það gæti alveg eins komið upp
seinna meir að ég fari þangað
aftur.“ - hþh
Bílslys hamlar för Andra Steins Birgissonar til Englands:
Ekki til Notts County
ANDRI STEINN BIRGISSON Fór í eftirminnilega ferð til Englands.