Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 16
22. janúar 2006 SUNNUDAGUR16
timamot@frettabladid.is
LYNDON B. JOHNSON (1908-
1973) LÉST ÞENNAN DAG.
„Erfiðasta hlutverk
forseta er ekki að gera
hið rétta, heldur að vita
hvað er rétt.“
Lyndon B. Johnson var forseti
Bandaríkjanna frá 1963-1969.
Á þessum degi árið 1980 var
doktor Andrei Sakarov dæmdur í
ævilanga útlegð frá Sovétríkjun-
um. Sakarov var kjarneðilsfræð-
ingur sem hjálpaði við byggingu
fyrstu vetnissprengju Sovét-
ríkjanna en var jafnframt helsti
gagnrýnismaður landsins. Sovésk
yfirvöld höfðu lengi haft horn í
síðu nóbelsverðlaunahafans sem
hafði í þrettán ár mótmælt stefnu
þeirra. En það korn sem fyllti
mælinn var viðtal sem Sakarov
veitti í bandarísku sjónvarpi þar
sem hann kallaði eftir því að
sovéskar hersveitir yrðu kallaðar
heim frá Afganistan.
Sakarov eyddi næstu sjö árum
í Gorkí þar sem hann hélt
áfram baráttu sinni. Hann fór
þrisvar í hungurverkfall til að
mótmæla meðferð á sér og
óskaði eftir því að kona hans
fengi að fara til Bandaríkjanna
til að sækja læknishjálp.
Árið 1986 skipaði Mikhaíl
Gorbatsjov fyrir að Sakarov
yrði leystur úr haldi. Hann
varð leiðandi í hreyfingu lýð-
ræðissinna. Hann var meðlim-
ur í stjórnarandstöðunni í nýja
sovéska þinginu árið 1989 og
tók þátt í því að semja nýja
stjórnarskrá. Sakarov lést 14.
desember 1989 úr hjarta-
áfalli.
ÞETTA GERÐIST > 22. JANÚAR 1980
Vísindamaður dæmdur í útlegð
ANDREI SAKAROV
MERKISATBURÐIR
1840 Fyrstu bresku landnemarnir
koma til Nýja-Sjálands.
1901 Viktoría Englandsdrottning
andast 82 ára að aldri.
1905 Uppreisn hefst í Rússlandi
þegar skotið er á verka-
menn í friðsamlegri mót-
mælagöngu í Pétursborg.
1918 Mesta frost hér á landi, -37,9
gráður, mælist á Grímsstöð-
um á Fjöllum.
1983 Tvö snjóflóð falla á hús í
Patreksfirði. Fjórir menn
látast.
1988 Paul Watson, leiðtoga Sea
Shephard, er vísað úr landi
en samtök hans sögðust
hafa sökkt hvalbátunum í
Reykjavíkurhöfn árið áður.
„Meginmarkmið hátíðar-
innar alveg frá upphafi
hefur verið að efla áhuga
ungmenna á menningu og
listum,“ segir Aðalheið-
ur Borgþórsdóttir fram-
kvæmdastjóri LungA,
listahátíðar ungs fólks,
Austurlandi. Aðalheiður og
fimm ungmenni úr fram-
kvæmdaráði hátíðarinnar
tóku á dögunum við Eyr-
arrósinni 2006 úr hendi
Dorritar Moussaieff for-
setafrúar sem afhenti
hana við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum. Eyrarrósin
er veitt einu afburða menn-
ingarverkefni á starfsvæði
Byggðarstofnunar til að
stuðla að auknu menningar-
lífi á landsbyggðinni.
LungA hefur verið haldin
frá árinu 2000 á Seyðisfirði
í tengslum við listahátíðina
Á seyði. Hún er ætluð ung-
mennum á aldrinum 16 til
25 ára og samanstendur
af listasmiðjum sem eru
allt upp í sjö talsins og eru
í boði í eina viku. „Þannig
að þetta eru nokkurs konar
sumarlistabúðir,“ áréttir
Aðalheiður en færir leið-
beinendur eru fengnir til
að sjá um hinar ýmsu lista-
smiðjur, til að mynda hafa
verið fengnir sirkusleið-
beinendur frá Cirkus Cirkör
og þekktir leikarar til að
stýra leiklistarsmiðju.
Árið 2005 tóku sjötíu ung-
menni þátt í listasmiðjun-
um og segir Aðalheiður að
lögð verði áhersla á að auka
þann þátt. Á vegum LungA
er einnig haldinn fjöldi við-
burða, líkt og tónleikar, fyr-
irlestrar og uppskeruhátíð
listasmiðjanna en í allt sóttu
um 2000 manns viðburði
tengda LungA á síðasta ári.
Mjög vel hefur tekist til
við framkvæmd hátíðarinn-
ar og segir Aðalheiður það
kærkomna viðurkenningu
að fá Eyrarrósina að þessu
sinni auk þess sem verð-
launaféð muni koma í góðar
þarfir enda þegar byrjað að
undirbúa næstu hátíð sem
haldin verður á Seyðisfirði
17. til 23. júlí á þessu ári.
„Það er búið að plana
dagskrána, fá leiðbeinend-
ur í allar listasmiðjur og á
laugardeginum verða stórir
tónleikar,“ segir Aðalheið-
ur spennt en hljómsveitir á
borð við Gus Gus, Trabant,
Jakobínarína, Jeff Who?,
Miri og Ghostigital hafa
boðað komu sína. Það má
því búast við miklu fjöri á
þessari litríku menningar-
hátíð ungs fólks í sumar.
LISTAHÁTÍÐ UNGS FÓLKS, AUSTURLANDI: HLAUT EYRARRÓSINA 2006
LungA fékk Eyrarrósina
KÆTUMST OG GLEÐJUMST Hið unga framkvæmdaráð á góðri stundu á
LungA 2005. BJÖRT SIGFINNSDÓTTIR
ÚR HENDI FORSETAFRÚAR Dorrit Moussaieff er verndari Eyrarrósarinnar. Hér afhendir hún framkvæmdaráði listahátíðarinnar LungA verðlaunagrip eftir
Steinunni Þórarinsdóttur.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Alþjóðleg, samkirkjuleg
bænavika verður haldin
dagana 22. til 29. janúar
2006. Bænavikan er hald-
in árlega um þetta leyti og
hefur verið haldin á Íslandi
síðan 1968. Er þá beðið fyrir
einingu kristinna manna
um heim allan. Það er
Alkirkjuráðið sem stendur
að baki vikunni ásamt kaþ-
ólsku kirkjunni. Yfirskrift
vikunnar að þessu sinni er
Hvar sem tveir eða þrír
eru saman komnir í mínu
nafni, þar er ég mitt á meðal
þeirra.
Vikan hefst með guðs-
þjónustu í Árbæjarkirkju
en bænastundir og sam-
komur verða haldnar bæði
á höfuðborgarsvæðinu og á
Akureyri þessa viku.
Aðild að samstarfsnefnd
kristinna trúfélaga sér um
undirbúning vikunnar en
aðild að henni eiga Aðvent-
istar, Fríkirkjan, Vegur-
inn, Hvítasunnukirkjan,
Hjálpræðisherinn, Íslenska
Kristskirkjan, Kaþólska
kirkjan, Óháði söfnuðurinn
og Þjóðkirkjan.
Hægt er að nálgast dag-
skrá vikunnar á heimasíðu
aðildarfélaganna.
Samkirkjuleg bænavika
BEÐIÐ FYRIR EININGU KRISTINNA MANNA Bænavika er haldin árlega um
þetta leyti.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Guðmundu Þorbjargar Jónsdóttur
frá Kjörvogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 2B á
Hjúkrunarheimilinu Eir.
Alda Guðjónsdóttir Ásgeir Gunnarsson
Laufey Kristinsdóttir
Elísabet Guðjónsdóttir Bragi Eggertsson
Sólveig Guðjónsdóttir
Guðmundur H. Guðjónsson Dagný Pétursdóttir
Guðrún M. Guðjónsdóttir Óskar Pétursson
Haukur Guðjónsson Vilborg G. Guðnadóttir
Fríða Guðjónsdóttir Karl Ómar Karlsson
Rannúa Leonsdóttir
Kristín Guðjónsdóttir Þórir Stefánsson
Daníel Guðjónsson María Ingadóttir
Þuríður H. Guðjónsdóttir Garðar Karlsson
ömmubörn og langömmubörn.
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Gests Ingva Kristinssonar
Torfnesi, Hlíf I, Ísafirði, áður Hlíðarvegi 4,
Suðureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Ísafirði og heimahjúkrun á Hlíf, Torfnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Sólveig Hulda Kristjánsdóttir
Þuríður Kristín Heiðarsdóttir Páll Ólafsson
Kristinn Gestsson Jóhanna Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir
Óðinn Gestsson Pálína Pálsdóttir
Gunnhildur Gestsdóttir Albert Högnason
Jón Arnar Gestsson
Sveinbjörn Yngvi Gestsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegs eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
Helga Ingvars Valdimarssonar
Brekkubyggð 93, Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á göngudeild 10E
á Landspítalanum.
Bryndís Stefánsdóttir
Jónína Helga Helgadóttir Kristinn Gunnarsson
Þorsteinn Baldur Helgason Ásta Sveinsdóttir
Valdimar Helgason María Sif Númadóttir
og barnabörn.