Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 47
ATVINNA
SUNNUDAGUR 22. janúar 2006 15
Sambýli fyrir fólk með
fötlun, Barðastöðum
Nú þegar vantar fólk til starfa í fullar stöður og hlutastöður
á sambýli ungs fólks með fötlun í Reykjavík. Ýmsir vakta-
möguleikar eru í boði. Stuðningur, fræðsla og skipulögð
aðlögun er fyrir nýtt starfsfólk. Reynsla af vinnu með fötl-
uðum, stúdentspróf, námskeið stéttarfélaga, félagsliðanám
eða háskólanám sem nýtist í starfi kemur til hækkunar
launa.
Áhersla er lögð á skipulögð og vönduð vinnubrögð og já-
kvætt viðmót.. Einnig þarf starfsfólk að hafa áhuga á starfa
í samvinnu við fölk með fötlun, geta sýnt frumkvæði og
sjálfstæði auk hæfni í samskiptum og samvinnu.
Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri
störf.
Upplýsingar veitir Líney Óladóttir forstöðuþroskaþjálfi í
síma 587-8550. Upplýsingar um SSR er að finna á slóðinni
http://www.ssr.is
Hægt er að sækja um á heimsíðunni og á aðalskrifstofu
SSR, Síðumúla 39.
• Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ár
• Laun eru í samræmi við samninga ríkisins og SFR
• Umsóknarfrestur er til 6. febrúar 2006
• Á SSR er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun.
Vinnslustjóri (tölvustjórnun)
Tæknisvið VISA Íslands/Greiðslumiðlunar hf. óskar eftir að ráða vinnslustjóra til að
annast vinnslur á tölvukerfum fyrirtækisins.
Helstu ábyrgðasvið/verkþættir í starfinu eru:
• Keyrsla runuvinnsluverkefna á megintölvu VISA í samræmi við keyrsluáætlanir.
• Undirbúningur og viðhald runuvinnsluverkefna fyrir tölvuvinnslu.
• Framkvæma afritatökur samkvæmt keyrsluáætlun.
• Eftirlit með að búnaður starfi rétt.
• Útprentun gagna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Lokapróf á framhaldsskólastigi t.d. af tölvubraut eða sambærileg menntun.
• Reynsla af stórtölvuumhverfi og notkun JCL (job control language) æskileg.
• Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
• Góð samskiptahæfni bæði gagnvart samstarfsfólki og viðskiptavinum.
• Sjálfstæð og markviss vinnubrögð, nákvæmni í starfi.
• Geta unnið skv. léttu vaktafyrirkomulagi og tekið á sig bakvaktir.
Um er að ræða krefjandi starf á góðum vinnustað. Laun eru samkvæmt kjarasamningum S.Í.B.
og fjármálafyrirtækja.
VISA Ísland er reyklaus vinnustaður. Allir einstaklingar, óháð kyni, þjóðerni og aldri, hafa jafnan
möguleika á að starfa hjá VISA.
Nánari upplýsingar veitir Jónína Haraldsdóttir deildarstjóri, Örn Þráinsson tæknistjóri, og Randver C.
Fleckenstein starfsmannastjóri, í síma 525-2000. Áhugasamir vinsamlega fylli út umsóknareyðublað á
heimasíðu VISA Íslands, www.visa.is/starf og sendi jafnframt ferilskrá. Umsóknarfrestur er til
3. febrúar n.k.
VISA Ísland - Greiðslumiðlun hf. stefnir ávallt að því að verða fyrsti valkostur á greiðslukortamarkaði. Fyrirtækið annast útgáfu VISA
greiðslukorta fyrir hönd aðildarbanka og sparisjóða. Þá sér fyrirtækið um samningagerð við sölu- og þjónustuaðila vegna móttöku greiðslukorta.
VISA Ísland er aðili að VISA INTERNATIONAL og tengist þannig víðfeðmasta greiðsluneti heims. Í gildi eru 1,2 milljarður VISA korta, sem eru
tekin á yfir 21 milljón stöðum um heim allan.