Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 4
4 22. janúar 2006 SUNNUDAGUR
SKOÐANAKÖNNUN Sjálfstæðis-
flokkur hefur mest fylgi íbúa
Reykjavíkur, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Flokkurinn fengi 52,7 prósent
atkvæða og níu borgarfulltrúa
kjörna. Í könnun Fréttablaðsins í
ágúst var Sjálfstæðisflokkur með
örlítið meira fylgi, eða 53,5 pró-
sent, sem dugði þeim einnig til
að fá níu borgarfulltrúa kjörna.
Samkvæmt þessu yrði Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson næsti borgar-
stjóri Reykjavíkur og væri Bolli
Skúlason Thoroddsen, formaður
Heimdallar síðasti maður kjörinn
inn fyrir hönd listans.
Samfylking fær næstmest
fylgi, eða 30,8 prósent atkvæða
og fengi fimm menn kjörna. Í síð-
ustu könnun fékk Samfylking 29,7
prósent atkvæða og hefði fengið
fimm borgarfulltrúa kjörna. Átta
prósent segjast nú myndu kjósa
Vinstri hreyfinguna - grænt fram-
boð og væri Svandís Svavarsdótt-
ir því eini borgarfulltrúi listans
ef þetta væru niðurstöður kosn-
inga. Í síðustu könnun sögðust 8.8
prósent styðja listann, sem þýddi
einn mann inn.
Framsóknarflokkurinn eykur
örlítið við fylgi sitt frá síðustu
könnun. Fær hann nú 5,4 prósent
en fékk síðast 4,8 prósent. Sam-
kvæmt þessu nær efsti maður á
lista Framsóknarflokksins ekki
kjöri í borgarstjórn, líkt og í síð-
ustu könnun. En fulltrúi Fram-
sóknar er nú næsti maður til að
ná kjöri. Frjálslyndi flokkurinn
bætir einnig við sig örlitlu fylgi og
fær nú 2,8 prósent, en fékk síðast
2,2 prósent. Það dugir ekki til að
ná Ólafi F. Magnússyni inn.
Karlar eru heldur líklegri til
að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en
konur. 54,3 prósent karla sögðust
styðja listann, en 50,6 prósent
kvenna. Lítill kynjamunur er á
fylgi Framsóknarflokksins, en
konur eru líklegri til að styðja alla
aðra lista. 31,2 prósent kvenna
sögðust styðja Samfylkingu, á
móti 30,5 prósentum karla. 9,1
prósent kvenna sögðust styðja
Vinstri græna, á móti 7,1 prósenti
kvenna og 3,9 prósent sögðust
styðja Frjálslynda flokkinn á móti
2,0 prósent karla.
Hringt var í 600 íbúa í Reykja-
vík 21. janúar, og skiptust svar-
endur jafnt milli kynja. Spurt
var: Hvaða lista myndir þú kjósa
ef gengið yrði til borgarstjórnar-
kosninga nú? 58,5 prósent þeirra
sem spurðir voru tóku afstöðu til
spurningarinnar.
svanborg@frettabladid.is
Fyrir
mannlegri
borg
Marsibil í 2. sætið
28.01.2006
Reykjavík er ekki fjölmenn borg
á heimsmælikvarða. Það er vel
raunhæft að tryggja öllum
íbúum hennar mannsæmandi
lífsskilyrði. Það á að vera
forgangs- og metnaðarmál í
mannlegri borg þar sem hver
einstaklingur skiptir máli.
marsibil.is / málefni / greinar / dagbók / myndir
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 20.01.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 61,58 61,88
Sterlingspund 108,34 108,86
Evra 74,38 74,80
Dönsk króna 9,996 10,024
Norsk króna 9,192 9,246
Sænsk króna 7,98 8,026
Japanskt jen 0,5339 0,5371
SDR 89,16 89,70
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
104,1561
INDÓNESÍA, AP Talsmenn yfirvalda
í Indónesíu segja enga þörf á að
kanna frekar dauða þeirra 183.000
manna sem talið er að hafi verið
drepnir í Austur-Tímor á þeim 24
árum sem indónesísk stjórnvöld
réðu þar ríkjum.
Yfirvöld í Austur-Tímor létu
gera skýrsluna og færði forseti
Austur-Tímor, Xanana Gusmao,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, Kofi Annan, hana á
föstudag. Innanríkisráðherra
Indónesíu, Yusril Ihza Mahendra,
segir að tími sé kominn til að líta
til framtíðar, enda hafi Indónesía
samþykkt að vera samvinnulipur
við sættir milli grannlandanna . ■
Skýrsla um Austur-Tímor:
Vilja frið um
hið liðna
AUSTUR-TÍMOR Unglingur klæddur í hefð-
bundinn þjóðbúning Austur-Tímora.
BRUSSEL, REUTERS, AP Stjórn-
völd á Írlandi hefðu ekki átt að
leita til alþjóðadómstóla vegna
öryggismála kjarnorkuendur-
vinnslustöðvarinnar í Sellafield
í Bretlandi, að sögn ráðgjafa
Evrópudómstólsins.
Írsk stjórnvöld höfðu samband
við hafréttardómstól Sameinuðu
þjóðanna og segja stðina valda
geislamengun í Írlandshafi.
Framkvæmdastjórn ESB
stefndi Írlandsstjórn fyrir Evr-
ópudómstólinn vegna málsins,
með þeim rökum að sá dómstóll
væri rétti vettvangurinn til að
útkljá um málið. ■
Deilan um Sellafield:
Írar leiti til
ESB-dómstóls
VILHJÁLMUR FAGNAR SIGRI Í PRÓFKJÖRI SJÁLFSTÆÐISFLOKKS Í REYKJAVÍK Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson leiðir lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins fengi
flokkurinn hreinan meirihluta til að stjórna borginni, ef boðað yrði til kosninga nú.
FRÉTTABLAÐIÐ/BRINK
Sjálfstæðisflokkur fengi níu
Sjálfstæðisflokkurinn fengi níu borgarfulltrúa kjörna og hreinan meirihluta væri boðað til borgarstjórnar-
kosninga nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Samfylking fengi fimm fulltrúa kjörna og
Vinstri grænir einn. Framsóknarflokkur og Frjálslyndi flokkurinn myndu ekki ná manni inn.
RAFORKA Forráðamenn Lands-
virkjunar mótmæla þeirri full-
yrðingu að hátt raforkuverð sé
ástæða þess að fiskeldi Sæsilf-
urs í Mjóafirði verði lokað. Þetta
kemur fram í yfirlýsingu sem
Landsvirkjun sendi frá sér í gær
kemur fram að fyrirtækið hafi
frá árinu 1987 veitt fiskeldisfyr-
irtækjum með sjódælingu afslátt
af rafmagnsverði. Því sé yfirlýs-
ing Jóns Kjartans Jónssonar hjá
Sæsilfri, um að hátt raforkuverð
sé önnur meginástæða þess að
hann hyggist nú leggja niður fisk-
eldið, með öllu óskiljanleg. - fgg
Landsvirkjun svarar gagnrýni:
Hátt raforku-
verð ekki orsök
TEHERAN, AP Írönsk stjórnvöld for-
dæma hótanir Jacques Chiracs
Frakklandsforseta, sem sagði á
fimmtudaginn að Frakkar gætu sem
hægast brugðist við árás hryðju-
verkamanna frá öðru ríki með því
að beita kjarnorkuvopnum gegn því
ríki.
„Forseti Frakklands afhjúpaði
duldar fyrirætlanir kjarnorkuveld-
anna um að nota þetta stjórntæki til
þess að ráða úrslitum í pólitískum
leikjum,“ hafði fréttastofa íranska
ríkisins, IRNA, eftir Hamid Reza
Asefi, talsmanni íranska utanríkis-
ráðuneytisins.
„Hin bitra reynsla af því að beita
kjarnorkuvopnum í seinni heims-
styrjöldinni var svo hryllileg að hún
gerir frekari notkun þeirra með öllu
óviðunandi og óréttlætanlega.“
Chirac var gagnrýndur harðlega
í evrópskum dagblöðum fyrir að
segja að Frakkar myndu velta fyrir
sér óhefðbundnum viðbrögðum við
hryðjuverkum, sem gerð væri að
undirlagi annars ríkis, eða gegn
árásum þar sem beitt yrði gereyð-
ingarvopnum. Frakkar eru taldir
hafa yfir að ráða um það bil 300
kjarnaoddum, sem flestir eru stað-
settir um borð í kafbátum. ■
JACQUES CHIRAC Íranar segja hótanir hans
afhjúpa fyrirætlanir Vesturlanda.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Íranar segja ekkert réttlæta notkun kjarnorkuvopna:
Fordæma hótanir Chiracs
Könnun 29. ágúst 2005
Könnun 21. janúar 2006
HVAÐA LISTA MYNDIR ÞÚ KJÓSA EF GENGIÐ
YRÐI TIL BORGARSTJÓRNARKOSNINGA NÚ?
4,8%
5,4%
53,5% 52,7%
2,2% 2,8%
29,7%
30,8%
8,8% 8,0%
B D F S V
5,6% 5,2%
54,3%
50,6%
2,0%
3,9%
30,5% 31,2%
7,1%
9,1%
K
O
N
U
R
K
A
R
LA
R
SKIPTING EFTIR KYNI