Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 78
 22. janúar 2006 SUNNUDAGUR46 ��������� �� ������������������ �������� ��� FRÉTTIR AF FÓLKI Það virðist ekki bara vera eintóm paradís hjá sjónvarpsstöðinni Sirkus en hún hefur hleypt af stokkunum tveimur nýjum þáttum sem mæltust mis- jafnlega fyrir. Mikil spenna ríkir um þátt Egils Gilzenegger og Partý Hanza en þeir félagar ætla ekki að kíkja út á lífið, eða „kæjann“ eins og það nefnist á þeirra ein- staka tungumáli heldur ætla þeir að einbeita sér að glensi og gríni. Þeir virðast heldur ekki vilja láta bendla sig við þáttinn Partý 101. Stjórnendum þessara tveggja þátta var boðið í sameiginlegt viðtal á Rás 2 fyrir nokkru en Egill vildi ekki mæta nema með því skilyrði að hann yrði einn. Vildi hann ekki láta setja sig í sama flokk og Brynja Björk Garðarsdóttir. Flestum af nýju þáttunum var boðinn átta þátta samningur en kallarnir.is héldu fast við sína sérstöðu og gera „bara“ fjóra. Hvað er að frétta? Allt svo rosalega gott að það hálfa væri nóg. Augnlitur? Grænblár. Starf? Ég er þjónustufulltrúi hjá Atlantsskip- um. Fjölskylduhagir? Ég er í sambúð og á einn 12 ára strák. Svo er ég að fara að eiga barn núna í lok febrúar. Hvaðan ertu? Ég er upphaflega Hafnfirðing- ur og bý þar núna. Ég er kannski ekki alveg gaflari en næstum því. Ertu hjátrúarfull/ur? Já og nei. Ég vil ekki vera það en það er eitthvað lengst undir og lúmskt. Ég geri suma hluti eins og ef ég brýt spegil þá hendi ég salti fyrir aftan bak. Ég er pínu hjátrúarfull en það er ekkert sem háir mér. Uppáhaldsútvarpsþáttur? Þegar ég keyri í vinnuna hlusta ég á Ísland í bítið. Það er það eina sem ég hlusta á í útvarpinu. Síðan er það bara pikkið í tölvuborðinu í vinnunni. Uppáhaldsmatur? Það er tvennt. Kjötsúpan hans Óla og hamborgarhryggur. Fallegasti staður? Ísland yfirhöfuð, myndi ég segja. Það eru svo rosalega margir staðir sem eru fallegir að það er ósanngjarnt að velja einhvern einn úr. Hvað er skemmtilegast? Ætli það sé ekki bara að vera með fjölskyldunni minni. Hvað er leiðinlegast? Að vera ekki með fjölskldunni minni. Helsti veikleiki? Að kunna ekki að segja nei. Helsti kostur? Ég er skapgóð nema núna þegar ég er ólétt, alla vega myndi maðurinn segja það. Helsta afrek? Það er að fæða börnin. Mestu vonbrigði? Þegar maður verður þekktur í þjóðfélaginu sér maður hvað mannskepnan getur verið fljót að finna að fólki. Það kom eins og köld vatnsgusa framan í mig. Hver er fyndnastur/fyndnust? Óli. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar fólk er ótillitssamt og lýgur. Uppáhaldskvikmynd? Green Mile. Uppáhaldsbók? Stóra drauma- ráðningabókin. Hún er við hliðina á mér þegar ég sef. Hvað er mikilvægast? Að vera trúr sér og sínum. Að reyna að hugsa vel um alla, þá líður manni miklu betur. Ef allir myndu gera það og setja neikvæðnina lengst ofan í jörðu væri jörðin aðeins betri staður að búa á. HIN HLIÐIN ÍRIS KRISTINSDÓTTIR SÖNGKONA Skapgóð nema þegar ég er ólétt Amal Tamimi, sem starfar sem fræðslufulltrúi í Alþjóðahúsinu, byrjar með námskeið í arabísku fyrir Íslendinga í Alþjóðahúsinu á morgun. Þetta verður fyrsta námskeiðið í arabísku sem Amal stendur fyrir en hún hefur undanfarin fjögur ár verið með námskeið sem kallast Konur og islam. Tíu manns hafa þegar skráð sig í námskeiðið, sem stendur yfir í tíu vikur, og segist Amal vera mjög sátt við það. Hún segir að fólk hafi verið að koma upp að sér og spyrja hvenær hún ætlaði að kenna arabísku og ákvað hún að verða við þeim óskum. „Það er rosalega mikill áhugi á arabaheiminum. Maður heyrir mjög lógískar spurningar og fólk vill vita meira og meira, ekki bara það sem er sagt í fjölmiðlum,“ segir Amal. Menning araheimsins hefur verið Íslendingum lokuð bók en með aukinni umræðu hefur áhuginn kviknað enda um auðugan garð að gresja. Amal kom til Íslands fyrir ellefu árum og líkar rosalega vel að búa hérna. Aðspurð hvort arabíska sé ekki erfitt tungumál segir hún það fyrst og fremst fara eftir hugarfari nemendanna. „Það er erfitt að læra íslensku líka,“ segir hún og hlær. „Ef þú hefur áhuga á að læra þá gerirðu þitt besta.“ - fb Mikill áhugi á arabaheiminum Sem kunnugt er heimsótti Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra Strák- ana á dögunum. Halldór lék á als oddi og gaf Pétri, Audda og Sveppa ekkert eftir í grallaraskapnum; tók meðal annars af sér bindið og tyftaði Strákana fyrir að vera ekki fínni í tauinu. Þeir vildu vitaskuld ræða við forsætisráð- herrann um það sem unga fólkinu þykir aðkallandi og bar sönghópinn Nylon, ofurhnakkann Gillzenegger og skemmti- staðinn Oliver meðal annars á góma. Umræðuna rak hins vegar fjótlega í strand þar sem Halldór hafði aldrei heyrt þessara fyrirbæra getið og vissi ekki betur en að Nylon-efni væri löngu dottið úr tísku. Það þarf svo sem ekki að koma neinum á óvart að formaður Framsóknarflokksins er ekki gallharður aðdáandi Nylon eða fastagestur á Oliver, en að forsætisráðherra hafi ekki hugmynd um tilvist einnar vinsælustu popp- sveitar landsins hlýtur að vekja upp spurningar um í hversu góðu sam- bandi hann er við þjóð sína og samtíma. - fgg /- bs HRÓSIÐ ...fær Oddný Sturludóttir sem hyggst fara í framboð fyrir Samfylkinguna og kemur þar með ungt og ferskt blóð inn í pólitíkina. Mynd er að komast á leikhóp kvik- myndarinnar Mýrin sem leikstýrt er af Baltasar Kormáki en hún er gerð eftir samnefndri sögu Arn- aldar Indriðarsonar og segir frá rannsóknarlögreglumanninum Erlendi og samstarfsfólki hans. Þegar hafa Ingvar E. Sigurðsson, Elva Ósk Ólafsdóttir og Björn Hlynur Haraldsson öll verið fengin til verksins en mikil spenna hefur ríkt um hvaða stúlka myndi hreppa hlutverk Evu Lindar, ógæfudóttur rannsóknarlögreglumannsins. Það hefur komið í ljós að söng- og leik- konan Ágústa Eva Erlendsdóttir hreppir það hlutverk. Ágústa skaust fram á sjónar- sviðið með hinni mjög svo skrýtnu og hrokafullu Silvíu Nótt sem hefur skemmt áhorfendum Skjás eins en þessi skrautlega persóna hlaut Edduverðlaunin sem besti sjónvarpsmaðurinn. „Hlutverk Evu Lindar er mjög krefjandi en ég held að það verði gaman að takast á við það,“ sagði Ágústa en þetta er hennar fyrsta kvikmyndahlut- verk. Ágústu líst vel á meðleikara sína og er mjög spennt fyrir þessu verkefni. „Þetta er fyrsta alvöru- gefna hlutverkið því ég hef alltaf verið í einhverju trúðshlutverki og gamanleik,“ bætir leikkonan við og hlakkar augljóslega til að takast á við þennan nýja vettvang. Ágústa var ein fjölmargra leik- kvenna sem kallaðar voru í prufu og fór hún í tvær. „Ég keypti mér reyndar gallabuxur sama dag sem báru nafnið Eva þannig að tilvilj- anirnar eru víða,“ segir hún og hlær. Baltasar taldi Ágústu geta leyst hlutverkið og segist leikkon- an treysta innsæi hans. „Þegar leikarar eru valdir í kvikmynd snýst þetta ekki um hvort einhver sé betri en annar heldur hvort viðkomandi leikari passi í hlut- verkið.“ útskýrir hún. „Ég er bara þakklát fyrir að fólk skuli treysta mér fyrir þessu,“ bætir hún við. Ágústa er ekki útskrifuð leik- kona frá skólum hér heima eða erlendis heldur hefur hún leikið mikið í gegnum tíðina og lært mest af því. „Þetta snýst bara um að sleppa af sér beislinu því leik- list eru engar heilaskurðlækning- ar,“ segir leikkonan og hlær. Hún ætlar þó ekkert að fara kaupa sér fíkniefni til að komast í meiri snertingu við þann napurlega veruleika sem Eva Lind lifir í. freyrgigja@frettabladid.is ÁGÚSTA EVA: FRÁ SILVÍU NÓTT TIL EVU LINDAR Fyrsta kvikmyndahlutverkið í höfn ÁGÚSTA EVA Hefur landað hinu mjög svo eftirsótta hlutverki Evu Lindar í kvikmyndinni Mýrinni sem miklar væntingar eru gerðar til. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN AMAL TAMIMI Amal mun kenna Íslendingum arabísku á námskeiði sínu sem hefst í dag. 21.05. 1975
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.