Fréttablaðið - 22.01.2006, Qupperneq 2
2 22. janúar 2006 SUNNUDAGUR
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
BANDARÍKIN, AP Hraðskreiðasta
geimfar sem nokkurn tímann
hefur verið sent á loft hóf á
fimmtudagskvöld yfir fjögurra
milljarða kílómetra ferðalag sitt
til Plútó, ystu plánetu sólkerfisins.
Þar mun farið gera vísindamönn-
um á jörðu niðri kleift að safna
margvíslegum upplýsingum um
hina dularfullu djúpfrosnu veröld
sem þar er.
Þrátt fyrir að ná allt að 58.000
kílómetra hraða á klukkustund
mun það taka farið, sem nefnt er
Nýr sjóndeildarhringur, níu og
hálft ár að komast á áfangastað.
Kostnaðurinn við leiðangurinn
er áætlaður sem svarar um 44
milljörðum króna. ■
NASA-leiðangur til Plútó:
Níu og hálfs
árs ferð hafin
VEL HEPPNAÐ GEIMSKOT Atlas-burðarflaug-
in hefst á loft frá Canaveralhöfða á Flórída
til að flytja Plútófarið út fyrir gufuhvolfið.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Samningur felldur Félagsráðgjafar
felldu nýgerðan kjarasamning sinn við
Reykjavíkurborg með miklum meirihluta
í atkvæðagreiðslu sem lauk í vikunni.
Kosningaþátttaka var um 90 prósent
og greiddu nær allir atkvæði gegn
samningnum.
KJARAMÁL
Tíu stútar í Reykjavík Lögreglan í
Reykjavík þurfti að hafa afskipti af fjölda
ölvaðra ökumanna í borginni aðfaranótt
laugardags en alls voru tíu bílstjórar
stöðvaðir grunaðir um ölvun undir stýri.
Þykir þetta óvenju mikið á einni nóttu.
Lyftari féll Vinnuslys varð í nýbygg-
ingu sem rís nú við Grundartanga.
Lyftari féll um tvo og hálfan metra en
ökumaður náði að kasta sér út áður
en hann steyptist niður. Þykir mildi að
ökumaðurinn skyldi sleppa með aðeins
nokkrar skrámur.
Keyrði á ljósastaur Árekstur varð
á Hafnarfjarðarvegi um hádegisbil í
gær þegar ökumaður fólksbíls ók á
ljósastaur. Ökumaðurinn var fluttur á
slysadeild til aðhlynningar en meiðsl
hans reyndust óveruleg.
LÖGREGLUFRÉTTIR
KJARAMÁL „Staðreyndin er sú að við
höfum nú beðið lengi eftir svörum
og niðurstöðum og nú er okkur gert
að bíða aðrar þrjár vikur til viðbót-
ar,“ segir Björg Bjarnadóttir, for-
maður Félags leikskólakennara.
Sú ákvörðun launanefndar
sveitarfélaganna að taka sér tæp-
lega þrjár vikur til að bæta laun-
kjör lægst launuðu starfsmanna
innan Sambands íslenskra sveitar-
félaga, þar á meðal leikskólakenn-
ara, hefur ekki verið sá plástur
sem margir bjuggust við og átti að
lægja þær öldur sem víða ríkja.
Björg segir fólk ítrekað hafa
beðið svara og þótt jákvætt sé að
heyra að kjörin verði bætt þá hefði
verið ráð að kynna niðurstöðuna
fyrir mánaðamót til að koma í
veg fyrir enn frekari uppsagnir
en þegar er orðið meðal leikskóla-
kennara. „Fólk er tvístígandi eftir
þessa tilkynningu en uppsagnar-
raddir eru alls ekki hljóðnaðar.“
Að sögn Gunnars Rafns Sig-
urbjörnssonar, formanns nefnd-
arinnar, liggja níu mismunandi
útfærslur fyrir nefndinni og því
tekur það þennan tíma að komast
að niðurstöðu sem allir sætti sig
við. - aöe
ÓÁNÆGJA Þann 10. febrúar mun launa-
nefnd sveitarfélaganna kynna breyttar
áherslur í kjaramálum.
Leikskólakennarar ekki allir sáttir við niðurstöðu launamálaráðstefnunnar:
Þriggja vikna bið of löng
DANMÖRK Kristján Valdimar Hin-
rik Jóhann er nafn hins unga
danska prins, sonar þeirra Frið-
riks krónprins og Maríu krón-
prinsessu í Danmörku. Hann verð-
ur ellefti konungur Danmerkur
sem ber nafnið Kristján. Prinsinn
var skírður í kapellu í Kristjáns-
borgarhöll í gærmorgun.
Um það bil 300 manns voru við-
staddir athöfnina, kóngafólk og
fulltrúar ráðamanna víðs vegar
að úr heiminum, þar á meðal
krónprinsinn Hákon frá Noregi
og krónprinsessan Viktoría frá
Svíþjóð.
Nokkur hundruð manns söfn-
uðust saman utan við höllina til að
fylgjast með. ■
Danski prinsinn skírður:
Sá ellefti sem
heitir Kristján
MEÐ UNGA PRINSINN Sonur Friðriks og
Maríu verður væntanlega Kristján XI með
tíð og tíma. MYND/AP, KIM AGERSTENVINNUMARKAÐUR Erlendir iðnað-
ar- og verkamenn sem koma til
Íslands eru í mörgum tilfellum
óöruggir gagnvart Alþýðusam-
bandinu og baráttu þess gegn
félagslegum undirboðum og ótt-
ast að ASÍ vilji ekki fá þá til lands-
ins. Hér fá þeir margföld mán-
aðarlaun miðað við það sem þeir
fengju í heimalandinu.
Rúmenarnir Albu Nicu frá
Constanta, Ehor Jan Paul og Ilie
Raul Cosmin frá Mangaliu í Rúm-
eníu eru rafsuðumenn og starfa
hjá Altaki á Hellisheiði. Þeir búa
í vinnubúðunum við stöðvarhúsið
á Hellisheiði og láta vel af starfi
sínu á heiðinni.
Albu Nicu talar góða ensku og
er mjög opinn og ræðinn maður.
Hann verður óöruggur og segist
ekki skilja alveg spurningar um
verkalýðshreyfinguna og baráttu
hennar gegn félagslegum undir-
boðum síðustu misseri. Það sama
gildir um félaga hans.
„Mér finnst þetta pínulítið
skrítið því að kannski vill verka-
lýðshreyfingin ekki fá mig hing-
að. En ég reyni að gera mitt besta
í vinnunni og vona að ég geti verið
hér í eitt ár,“ segir Nicu.
Albu Nicu á fjölskyldu heima
í Rúmeníu og er að búa í haginn
fyrir hana og undirbúa framtíðina
með því að starfa erlendis. Hann
segir að allir í Rúmeníu vilji kom-
ast til útlanda að vinna vegna
launanna en erfitt sé að fá leyfi
til þess því að stjórnvöld þurfi á
starfskraftinum að halda heima.
Nicu hefur þegar starfað hér í
þrjá mánuði fyrir jól og hefur nú
verið ráðinn launamaður hjá Alt-
aki við Hellisheiðarvirkjun. Hann
og félagar hans hafa áður starfað
í Grikklandi, Frakklandi, Tyrk-
landi og Noregi.
Nicu segir að allir séu indælir á
Íslandi, fólkið fallegt og brosmilt.
„Ef ég bið um eitthvað þá fæ ég
það, þeir reyna að hafa mig ham-
ingjusaman. Þetta er gott starf,“
segir hann.
Í Rúmeníu er algengt að laun-
in nemi 100-200 evrum, eða 8-15
þúsund krónum. Fyrir 100 evrur
segir hann að sé hægt að skrimta
en lifa þokkalegu lífi fyrir 200
evrur. Hann segir að það sé trún-
aðarmál hvaða laun hann hafi hér
en kveðst fá á einu ári það sem
honum takist varla að þéna á tíu
árum í Rúmeníu. ghs@frettabladid.is
Erlendir verkamenn
treysta ekki ASÍ
Erlendir verkamenn, sem koma til Íslands, eru óöruggir gagnvart ASÍ og bar-
áttu þess gegn félagslegum undirboðum. Þeir óttast að ASÍ sé að berjast gegn
því að fá þá til landsins. Hér fá þeir margfalt hærri laun en heima.
ÁNÆGÐIR Á HELLISHEIÐI Rúmenarnir Ilie Raul Cosmin og Ehor Jan Paul frá Mangalíu og
Albu Nicu frá Constanta starfa sem rafsuðumenn hjá Altak við Hellisheiðarvirkjun. Þeir búa
í vinnubúðunum á Hellisheiði og eru ánægðir með kjör sín og aðbúnað.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
UNDIRBÝR FRAMTÍÐINA
■ Þrisvar sinnum hærri laun hér
Uldis Dzinejs er trésmiður frá Riga og starfar
hjá ÞG verkum við byggingu stöðvarhússins
á Hellisheiði. Hann hefur starfað hér í tæpa
níu mánuði og lætur vel af sér, segist hafa
mun meira í laun hér en heima í Lettlandi.
„Hér fæ ég þrisvar sinnum meira. Ég fæ
1.000 krónur á tímann og vinn 280 tíma á
mánuði. Heima fæ ég 60 þúsund krónur á
mánuði,“ segir hann.
Uldis Dzinejs segist vera að undirbúa
framtíðina. Hann þurfi að kaupa sér íbúð og
eignast mikið af hlutum til að fá stöðug-
leika í líf sitt. Hann stefnir að því að starfa
erlendis í fimm ár.
SPURNING DAGSINS
Sigurður Kári, áttu erfitt með
halda trúnað?
Nei, það er ekki erfitt. Ég á mjög
auðvelt með halda trúnað og fólk hefur
getað trúað mér fyrir hverju sem er.
Fjármálaráðuneytið og aðrir sem hlut eiga að
máli hafa fallist á að létta leynd af gögnum
um bréfaskipti ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, og
ráðuneyta mennta og fjármála um málefni
Ríkisútvarpsins.
RAMALLAH, AP Þúsundir liðsmanna
í öryggissveitum Palestínumanna
greiddu atkvæði sitt fyrirfram í
gær í kosningum til þings Palest-
ínumanna, sem fram fara á mið-
vikudaginn. Gripið var til þess
ráðs að láta öryggsisveitirnar
greiða atkvæði fyrirfram svo auð-
veldara verði að tryggja öryggi
þegar almennar kosningar verða.
Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun hefur Fatah-hreyfingin,
sem nú fer með völdin, enn nauma
forystu. Hún hlýtur 40 prósent
atkvæða en Hamas-hreyfingin 35
prósent. ■
Kosningar til Palestínuþings:
Öryggissveitir
kusu fyrirfram
Á KOSNINGAFUNDI Stuðningsmenn Ham-
as-hreyfingarinnar efndu til útifundar í gær
í bænum Rafah á Gazaströnd.
KOSNINGAR „Ég er afar sáttur fyrir
mitt leyti og listinn er skipaður
góðu og hæfu fólki og Ásthildur
nær glæsilegum árangri,“ segir
Gunnar Birgisson, bæjarstjóri
Kópavogs. Gunnar hlaut góðan
stuðning í efsta sæti listans en
breytingar urðu á næstu sætum
fyrir neðan.
Alls tóku um tvö þúsund manns
þátt í prófkjörinu. Gunnsteinn
Sigurðsson skólastjóri lenti í öðru
sæti og skaut þar aftur fyrir sig
Ármanni Kr. Ólafssyni, sem var
í því sæti á síðasta framboðslista
flokksins.
Þrír karlmenn urðu því í
þremur efstu sætunum en Ásthild-
ur Helgadóttir, verkfræðingur og
knattspyrnustjarna sem nýlega
tilkynnti framboð sitt fyrir flokk-
inn, náði fjórða sætinu. Er hún að
vonum ánægð enda óskrifað blað í
stjórnmálum. „Ég met það svo að
flokksmenn hafi viljað fá nýtt blóð
og þess vegna hafi ég hlotið svona
góða kosningu.“
Þrjár konur skipa þau þrjú sæti
sem eftir eru á listanum. Sigur-
rós Þorgrímsdóttir alþingismað-
ur varð í fimmta sæti, Margrét
Björnsdóttir varabæjarfulltrúi í
sjötta og Ragnheiður Guðmunds-
dóttir stjórnmálafræðingur í því
sjöunda. Mestu vonbrigðin hljóta
að vera hjá þeim Braga Michaels-
syni sem stefndi á annað sæti en
endaði í ellefta og Jóhönnu Thor-
steinson, sem einnig bauð sig
fram í annað sæti en endaði í því
tíunda. - aöe
BÆJARSTJÓRINN Gunnar Birgisson var
sjálfkjörinn í efsta sæti listans. Helsta breyt-
ingin á listanum er góð innkoma Ásthildar
Helgadóttur sem náði fjórða sætinu eins
og að var stefnt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Um tvö þúsund manns tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi:
Þrír karlar skipa efstu sæti listans
1. Gunnar I. Birgisson
2. Gunnsteinn Sigurðsson
3. Ármann Kr. Ólafsson
4. Ásthildur Helgadóttir
5. Sigurrós Þorgrímsdóttir
6. Margrét Björnsdóttir
7. Ragnheiður Kr. Guðmundsdóttir
FRAMBOÐSLISTINN: