Fréttablaðið - 22.01.2006, Side 6
6 22. janúar 2006 SUNNUDAGUR
Faxafen 10 • 108 Reykjavík
Sími: 544 2210 • Fax: 544 2215
www.tsk.is • skoli@tsk.is
Sóley Rut Ísleifsdóttir,
þjónustufulltrúi hjá VÍS.
„Ég fékk mjög gott starf á frábærum
vinnustað. Tölvu- og skrifstofunámið
hjálpaði mér að öðlast það sjálfstraust
sem þurfti til að sækja um nýtt og
krefjandi starf. Það er aldrei of seint
að byrja að læra eitthvað nýtt. Fyrir
mig var þetta góð fjárfesting og frábær
tími í góðum félagsskap í skemmtilegum
og krefjandi skóla.“
Tölvu og skrifstofunám
Í þessu námi er tekið fyrir allt um tölvur, bókhald og skrifstofutækni
sem fólk þarf að kunna skil á í nútímafyrirtækjum.
Sérlega viðamikið og hagnýtt 260 stunda nám í takt við þarfir
markaðarins, nám sem hentar fólki á öllum aldri, hvort sem það er
á leiðinni út á vinnumarkaðinn að nýju eða vill skapa sér sterkari stöðu
á vinnumarkaði með aukinni menntun. Þetta nám hentar einnig
sjálfstæðum atvinnurekendum sem vilja vera sem mest sjálfbjarga í
allri tölvuvinnu og við bókhaldið.
Kennd er ein námsgrein í senn sem lýkur með próf eða verkefni,
tölvugreinunum lýkur flestum með alþjóðlegum prófgráðum.
Tölvugreinar
Windows XP tölvugrunnur og skjalavarsla, Word, Excel, Internet, MSN
og Outlook tölvupóstur dagbók og skipulag.
Margmiðlun
PowerPoint kynningar, Stafrænar myndavélar og myndvinnsla, Tónlist
í tölvunni, CD - DVD ofl.
Persónuleg færni
Tjáning og framkoma, atvinnuumsóknir, atvinnuviðtöl og ferilskrár.
Enska, þjálfun í talmáli og ensk verslunarbréf, sölutækni og markaðsmál.
Viðskiptagreinar
Verslunarreikningur, VSK meðferð og reglur, bókhaldsgrunnur,
tölvubókhald og tollskýrslur.
Morgun og kvöldnámskeið, hefst 25. janúar og lýkur 24. maí.
Verð kr. 189.000,- (Bjóðum VISA/EURO lán eða raðgr. og
starfsmenntalán til 3ja ára.)
S T A R F S M E N N T U N
411 5000
NÝTT SÍMANÚMER SKRIFSTOFU ÍTR
Skemmtilegur frítími
SÍMAVER REYKJAVÍKURBORGAR SÉR NÚ
UM SÍMSVÖRUN FYRIR SKRIFSTOFU ÍTR
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASVIÐ REYKJAVÍKUR
PRISTINA OG BRUSSEL, AP Ibrahim
Rugova lifði það ekki að sjá draum
sinn um sjálfstæði Kosovo rætast.
Hann lést í gær af völdum lungna-
krabba, 61 árs að aldri. Fyrirhug-
uðum viðræðum um framtíð hér-
aðsins, með milligöngu Sameinuðu
þjóðanna, hefur nú verið frestað
þangað til í febrúar.
Leiðtogar fjölmargra ríkja
hvetja íbúa Kosovo til þess að
halda ró sinni og standa saman á
næstunni, þangað til viðræðurnar
hefjast.
„Brottfall hans, meðan viðræð-
ur eru í undirbúningi um framtíð-
arstöðu héraðsins, gæti ekki verið
sorglegra,“ sagði Jacques Chirac
Frakklandsforseti, sem jafnframt
vottaði fjölskyldu Rugovas og
íbúum héraðsins samúð sína.
„Ég er viss um að Rugova for-
seti hefði viljað sjá að við héldum
áfram með viðræðurnar,“ sagði
Martti Ahtisaari, fyrrverandi
Finnlandsforseti, í Helsinki. „Ég
vil líka lýsa þeirri von minni að
ástandið verði áfram rólegt.“
„Ibrahim Rugova lést í morgun
klukkan 11.40. Hann háði baráttu
sína við krabbameinið með mikilli
reisn og hugrekki allt til síðustu
stundar,“ sagði Muhamet Hamiti,
talsmaður forsetans.
Með dauða sínum skilur Rug-
ova eftir sig tómarúm í harðvítug-
um deilum milli Serba og Kosovo-
manna um það hvort héraðið fái
sjálfstæði.
Meirihluti íbúa héraðsins er af
albönskum uppruna og vonast til
þess að viðræðurnar, sem voru í
þann veginn að hefjast, muni skila
þeim árangri að héraðið hljóti
fullt sjálfstæði. Serbneski minni-
hlutinn, sem áður réði þar öllu,
vill að héraðið verði áfram hluti
af Serbíu-Svartfjallalandi.
Sanda Ivic-Raskovic, sem fer
með málefni Kosovo í stjórn Serbíu,
sagðist hafa miklar áhyggjur af því
hver yrði eftirmaður Rugovas.
„Ég geri mér fulla grein fyrir
því að Rugova er höfundur hug-
myndarinnar að sjálfstæði Kos-
ovo, en hann var ekki partur af
þessu vopnaða lýðræði sem við
sjáum núna í Kosovo,“ sagði hún.
„Ég hef áhyggjur af því að ein-
hver úr þeim herbúðum taki við af
honum, einhver sem myndi hvetja
til óeirða og ofbeldis til þess að ná
fram sjálfstæði.“ ■
IBRAHIM RUGOVA Var stundum kallaður „Gandhi Balkanskagans“ vegna þess hve mikla áherslu hann lagði á að ná fram sjálfstæði Kosovo
eftir friðsamlegum leiðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tómarúm í Kosovo
eftir fráfall forsetans
Ibrahim Rugova, forseti Kosovo, lést í gærmorgun. Viðræðum um framtíð
Kosovo-héraðs verður frestað fram í febrúar. Leiðtogar fjölmargra ríkja hvöttu í
gær íbúa Kosovo til að halda ró sinni.
LÖGREGLA Það slóst í brýnu milli
fjögurra Íslendinga og jafn-
margra varnarliðsmanna fyrir
utan skemmtistaðinn Casino í
Keflavík í fyrrakvöld.
Þegar lögregla kom á vettvang
voru einungis Íslendingarnir eftir
en varnarliðsmennirnir á bak og
burt.
Var haft samband við lögregl-
una á Keflavíkurflugvelli sem
kom sér í samband við herlögregl-
una sem stöðvaði bíl mannanna.
Fjöldi vitna var að atburðinum en
ekki liggur ljóst fyrir um atburð-
arrásina en að sögn lögreglunnar
í Keflavík koma mál af þessu tagi
reglulega upp í bænum. -fgg
Varnarliðsmenn og Íslendingar:
Fjöldaslagsmál
í Keflavík
DAGVISTUN Regína Ásvaldsdótt-
ir, félagsráðgjafi hjá Reykjavík-
urborg, vonast til þess að nám-
skeið, sem Reykjavíkuborg er nú
að skipuleggja, muni létta á þeim
mikla vanda sem margir foreldrar
í Reykjavík búa nú við.
„Dagforeldrar sem klára nám-
skeiðin hjá okkur geta farið að vinna
fljótlega að námskeiði loknu því við
veitum fólki bráðabirgðaleyfi til
þess að geta tekið til starfa eins
fljótt og auðið er. Það er ennþá pláss
fyrir fleiri á námskeiðunum og ég
hvet fólk sem hefur áhuga á þessum
málum til þess að hafa samband við
okkur hjá Reykjavíkurborg. Stjórn
Barnavistunar, félags dagforeldra
á höfuðborgarsvæðinu, hefur boð-
ist til þess að bæta við sjötta barn-
inu í vistun hjá dagforeldrum til
þess að leysa vandann sem upp er
kominn í Reykjavík, en samkvæmt
reglum mega dagforeldrar ekki
hafa fleiri en fimm börn í vistun
hjá sér í einu.
Snjólaug Óskarsdóttir, stjórnar-
maður í Barnavistun, segir félagið
hafa sent borgarstjóra bréf þar
sem dagforeldrar hafa boðist til
þess að taka sjötta barnið í vistun
tímabundið, með það að markmiði
að vandinn leysist í haust. „Eins og
staða mála er nú önnum við engan
veginn eftirspurninni en það er
ljóst að það myndi bæta aðstæður
umtalsvert ef við myndum fá að
taka inn sjötta barnið í vistun.“ - mh
Ennþá eru laus pláss á námskeiði fyrir dagforeldra hjá Reykjavíkurborg:
Borgin menntar dagforeldra
BÖRN Í PÖSSUN HJÁ DAGFORELDRUM Mik-
ill skortur er á dagforeldrum í Reykjavík
KJÖRKASSINN
Telurðu að skattbyrðin hafi auk-
ist hérlendis síðustu ár?
JÁ 86%
NEI 14%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Fylgistu með forkeppni Evrópu-
söngvakeppninnar?
Segðu þína skoðun á vísir.is
KJARAMÁL „Í starfslokatilboði
Öryrkjabandalags Íslands eru
atriði sem ég tel mig ekki geta
skrifað undir, en hef aftur á móti
gert því gagntilboð sem enn hefur
ekki borist svar við,“ segir Arn-
þór Helgason, fráfarandi fram-
kvæmdastjóri ÖBÍ, um stöðu
starfslokasamnings milli sín og
bandalagsins. Hann segir viðræð-
ur um starfslokasamninginn nú
standa yfir og sé verið að reyna að
ná sáttum í málinu.
Arnþór kveðst eiga rétt á
þriggja mánaða uppsagnarfresti
eins og hver annar launþegi.
Öryrkjabandalagið hafi boðið
ákveðin starfslokakjör sem hann
hafi svarað með gagntilboði og
þannig sé staða málsins.
„Í gagntilboðinu er gert ráð
fyrir að ég fái afrit af gögnum úr
tölvu ÖBÍ sem eru mér nokkurs
virði,“ segir Arnþór. „Ég býðst
að auki til þess að koma ýmsum
gögnum fyrir á almennu heima-
svæði starfsfólks, sem það þarf
að hafa not af. Þá mun ég þurfa
að athuga nokkur atriði sem varða
starfssamning minn.“
Stjórn Blindrafélagsins hefur í
yfirlýsingu harmað brottvikningu
Arnþórs frá ÖBÍ. Félagið kveðst
hafa áhyggjur af þeim skilaboð-
um sem felist í því að segja upp
fötluðum einstaklingi og ráða
annan ófatlaðan. - jss
ARNÞÓR HELGA-
SON Hefur lagt
fram gagntilboð.
Starfslok Arnþórs Helgasonar framkvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins:
Sættir sig ekki við tilboðið
SIGURSTEINN
MÁSSON Hefur lagt
fram tilboð.