Fréttablaðið - 22.01.2006, Page 10
22. janúar 2006 SUNNUDAGUR10
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
UMMÆLI VIKUNNAR,, U MÆLI VIKUN AR ,,
�����������������
������������������
����������� ����������������������������������������������������
������������������������������������������������������������������
�����������������������������������
�������������������������������
�����������������������
�������������������������
��������������
������������������
�����������
����������������������
������������������
�
��
��
��
� � ������� �� ��
������������������������� ����������������� ����������� �����������������
������������������������ ������������� �����������������
������������������������������������ ��� ���� �����������������
�������������������������������������� ���� ���� �����������������
�������������������������������������� ����������� �����������������
����������������������� ��� ��� �����������������
������������������
������������������������������������������������������������������������
����������������������������������������������
��������������������������
�������������������
���������������
��� �����������
������������������
�������������������
�������������
�� �����������
�������������
����������������������
Að frádregnum ýmsum kostnaði
gæti skilaverð fyrir hvert kíló af
eldislaxi verið um 200 krónur hér
á landi. Tekjur Norðmanna af því
að ala og slátra laxi til útflutnings
eru varla undir 100 milljörðum
íslenskra króna á ári miðað við
500 þúsund tonna framleiðslu.
Fregnir berast nú af því að
stærsti framleiðandi eldislax í
landinu, Sæsilfur hf. ætli ekki
að setja seiði í sjó á þessu ári og
hætta framleiðslu í Mjóafirði með
öllu árið 2008. Þetta á líka við um
1.500 tonna laxeldi Sæsilfurs í
Seyðisfirði. Félagið hefur leyfi
til að ala allt að 15 þúsund tonn af
laxi í eldiskvíum á þremur stöð-
um á Austfjörðum og tækist að
ná fullum afköstum hefðu tekjur
vart orðið undir þremur milljörð-
um króna á ári.
Sæsilfur er langstærsti fram-
leiðandi á eldislaxi í landinu sem
stendur. Framleiðslan er í kvíum
í Mjóafirði og er laxinum slátrað
í Neskaupstað. Framleiðslan nam
um 3.600 tonnum í fyrra, en félag-
ið hefur leyfi til að framleiða allt
að 8.000 tonnum í firðinum.
Miðað við núverandi skilaverð
gætu tekjurnar hafa numið um
720 milljónum króna í fyrra.
„Þessari grein er sýnt tómlæti.
Hágengi krónunnar plagar okkur
og ekki bætir úr skák að raforku-
verðið hefur hækkað til okkar með
breytingum á raforkulögum. Við
notum raforkuna fyrst og fremst
við seiðaframleiðsluna í Grinda-
vík. Orkureikningurinn var um 30
milljónir króna en er nú liðlega 40
milljónir króna á ári og á enn eftir
að hækka eftir tvö ár með samn-
ingi okkar við Landsvirkjun,“
segir Jón Kjartan Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sæsilfurs.
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í gær harmar Valgerður
Sverrisdóttir ákvörðun félagsins
um að hætta rekstri en bendir um
leið á, að varla verði raforkuverð-
inu kennt um. Það hafi einungis
hækkað hjá einni laxeldisstöðinni
um liðlega fjögur prósent milli
ára en ekki 30 prósent eins og Jón
Kjartan heldur fram.
Fyrirtækið sem er í eigu Sam-
herja og Síldarvinnslunnar tók til
starfa árið 2001 og hefur fram-
leiðslan aukist jafnt og þétt. Með
eldinu hefur orðið til þekking og
kunnátta á Austfjörðum. Menn
hafa fundið nýjar lausnir á ýmsum
vandamálum og leitað úrræða við
að auka vaxtarhraðann og fóður-
nýtinguna, meðal annars með því
að lýsa upp eldiskvíarnar neðan
sjávarborðs í mesta skammdeg-
inu.
Árið 2003 hlaut fyrirtækið
hvatningarverðlaun Þróunarfé-
lags Austurlands fyrir áræðni og
stórhuga framkvæmdir.
Liðlega tíu manns starfa við
laxeldið í Mjóafirði og eru þá
ótaldir hartnær tuttugu til við-
bótar sem sinna flutningum og
slátrun í Neskaupstað. Miðað við
fjögur þúsund tonna framleiðslu á
ári þarf því
Nýrnaveiki í laxaseiðum hefur
sett strik í reikning laxeldisins.
Þegar ekki er leyfilegt að flytja
inn seiði verður áfall í seiðafram-
leiðslu að flöskuhálsi og áfalli í
laxeldinu sjálfu.
En laxeldi, til að mynda i Nor-
egi, er búið undir slíkan vanda.
Áhættan er fyrir hendi. Og verð á
fóðri fer upp og niður rétt eins og
afurðaverðið.
Efasemdaraddir hafa einnig
haldið fram að sjávarkuldi hér
við land dragi svo mjög úr vexti
og þar með fóðurnýtingu að eldið
borgi sig ekki. Þessu mótmæla
þeir sem gerst þekkja og benda á
að ýmis annar kostnaður ætti að
geta verið lægri svo sem fóður-
verð í nálægð við fiskmjölsfram-
leiðslu landsmanna og raforku-
verð í landi fallvatnanna.
Gunnar Steinn Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Salar Island-
ica á Djúpavogi, tekur undir að
hátt gengi krónunnar sé afar
íþyngjandi en engan bilbug sé að
finna á fyrirtækinu. Engu að síður
ætlar félagið að draga úr laxeldi
en auka þorskeldi vegna þeirra
aðstæðna sem uppi eru.
Félagið hefur leyfi til átta þús-
und tonna framleiðslu á ári í Beru-
firði en slátraði aðeins 300 tonnum
í fyrra. Fyrirtækið er yngra en
Sæsilfur og er nú í meirihlutaeign
HB Granda hf.
Laxeldi riðar á
ný til falls
Norðmenn framleiða nálægt 500 þúsund tonnum á
ári af eldislaxi til útflutnings eða sem nemur meira
en tvöföldum árlegum þorskafla Íslendinga.
Laghentur eigandi íbúðarhúss í sveit austur á landi bjó
þannig í haginn fyrir sig og sína fyrir sex árum, að hægt
var að velja milli þess hvort húsið var hitað upp með raf-
magni, olíubrennara eða gamaldags kolakyndingu.
Þar með gat markaðsverð ráðið því hvaða tegund
orkugjafa var notaður. Fyrir fáeinum árum var rafmagns-
reikningurinn orðinn óbærilega hár og skipt var yfir í olíu,
innfluttan og mengandi orkugjafa.700 milljóna króna
niðurgreiðslur skattborgaranna á rafkyndingu samkvæmt
reglum yfirvalda gögnuðust umræddum húseiganda ekki.
Við þessar aðstæður spurði hann hvort bíða yrði þess að
álverð hækkaði á heimsmarkaði og tekjur Landsvirkjunar
af raforkusölu til stóriðju ykjust þar með svo mjög að unnt
yrði að lækka rafkyndingarkostnað íbúa þessa lands.
Álverin greiða 0,7 upp í 1,5 krónur fyrir kílówattstund
af rafmagni, allt eftir heimsmarkaðsverði á áli. Þægilegt.
Raforkufrekar laxaseiðastöðvar borga að minnsta kosti
3,3 krónur fyrir sömu einingu. Svipað á við um ylræktar-
stöðvarnar og hæstu taxtar fyrir heimili eru sjálfsagt tvö-
falt hærri. Heimsmarkaðsverð á áli eða krónu hreyfir ekki
við gjaldskránni. Óþægilegt. „Íslendingar hafa í mörgu falli
borgað með þeirri orku sem seld hefur verið álfurstun-
um,“ segir Sverrir Hermannsson fyrrverandi iðnaðarráð-
herra í Morgunblaðinu í gær.
Landsmenn munu komast að því fyrr en síðar hvort
Sverrir hefur rétt fyrir sér.
VIKA Í PÓLITÍK
JÓHANN HAUKSSON
Af guðseiginlandi raforkunnar
Ekki er sopið álið
Borgarstjórn Reykjavíkur vill að Landsvirkjun láti
af áráttu sinni að virkja helstu fallvötn landsins og
snúi sér að virkjun jarðvarmans.
Á góðri íslensku merkir þetta að Landsvirkjun og
stjórnvöldum beri að snúa sér norður í land. Í
Mývatnssveit og á Þeistareykjum hefur Landsvirkjun
nú þegar ítök í slíkum auðlindum.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra tekur þessu
áreiðanlega ekki illa en stendur frammi fyrir þeim
vanda hvort hún eigi að hvetja Alcoa til að reisa
álver á Bakka við Húsavík eða á Dysnesi í Eyjafirði.
Í bakherberginu heyrist að Alcoa vilji fremur byggja
verksmiðju í Eyjafirði enda sýni athuganir að
Dysnes sé fýsilegri kostur. Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri
og aðrir Eyfirðingar ættu að kætast
ef rétt reynist. En þá er við Reinhard
Reynisson bæjarstjóra á Húsavík og
heimamenn í Þingeyjarsveit að eiga,
sem vilja vitanlega hafa verksmiðjuna í sínu héraði.
Þeir taka ekki í mál að leyfa flutning á raforku um
sínar sveitir til Eyjafjarðar. Nei takk.
Verðmætur mengunarkvóti
Svo blasir annar vandi við stjórnvöldum þegar búið
er að koma dreggjum stóriðjustefnunnar norður í
land. Kyotokvóti Íslendinga fyrir útblástur gróður-
húsalofttegunda er nærri uppurinn og hrekkur varla
nema fyrir einni álverksmiðju.
Forsvarsmenn Alcan verða vafalaust önugir ef þeir
þurfa að sjá á eftir mengunarkvótanum norður í
land enda hafa þeir öll tilskilin leyfi til að stækka
álverið í Straumsvík og fyrirheit um raforku frá jarð-
varmaorkuverum á suðvesturhorni landsins.
Þetta skýrist allt í næsta mánuði en framundan eru
fundir Alcoa og iðnaðarráðherra með heimamönn-
um nyrðra nú um mánaðamótin.
Einhver sagði að spekúlantar væru farnir að huga
að uppkaupum á húsnæði í Eyjafirði.
Úr bakherberginu... mánudagur
Óundirbúnar fyrirspurnir á Alþingi.
Ráðherrar svara. Frumvarp um mat-
vælarannsóknir, stjórn fiskveiða og
fleira.
þriðjudagur
Frumvarp um rannsóknir á auðlindum
í jörðu, tóbaksvarnir og fleira.
miðvikudagur
Fyrirspurnir á Alþingi.
fimmtudagur
Fyrsta umræða um frumvarp um Rík-
isútvarpið og sinfóníuhljómsveitina.
laugardagur
Prófkjör Framsóknarflokksins í Reykja-
vík.
NÆSTA VIKA
„Án þess að ég telji mig vita nákvæmlega hvað ger-
ist í herbúðum ríkisstjórnarinnar þá virðist manni
brotthvarf fyrrverandi utanríkisráðherra úr ríkis-
stjórninni hafa skipt þar verulegu máli. Að minnsta
kosti voru viðbrögðin mjög fálmkennd...“
Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar á
Alþingi, síðastliðinn föstudag í umræðum um Kjaradóms-
málið.
FRAMLEIÐSLA Á ELDISLAXI Í SJÓKVÍUM 1995 TIL 2004
2.880
3.370
1.471
9.100
1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004
TÖ
LU
R
Í T
O
N
N
U
M