Fréttablaðið - 22.01.2006, Page 12
22. janúar 2006 SUNNUDAGUR12
nánar á visir.is Umsjón:
Útgáfa erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum hefur styrkt gengi
krónunnar og tafið fyrir því að
vaxandi viðskiptahalli þrýsti því
niður. Það er hugsanlega áhyggju-
efni að líftími skuldabréfanna er
stuttur, gjalddaga hárra fjárhæða
ber upp á skömmu tímabili og
dreifing útgáfunnar milli útgef-
enda er lítil en nær helmingur
skuldabréfanna er gefinn út af
tveim til þremur aðilum.
Snúnir tímar í efnahagsstjórn
Þetta kom fram í máli Gunnars
Árnasonar, sérfræðings í efna-
hagsmálum hjá Sparisjóði vél-
stjóra, á morgunverðarfundi sem
bar yfirskriftina „Er að sjóða upp
úr?“. Gunnar benti á að raungengi
íslensku krónunnar hefur ekki
mælst eins hátt í átta ár. Hátt
raungengi feli í sér versnandi
samkeppnisstöðu innlendra fyr-
irtækja því kostnaður heima fyrir
hefur aukist umfram kostnaðar-
hækkanir erlendis. Þannig hafi
dregið úr útflutningi og á sama
tíma innflutningur aukist. Svo er
nú komið að halli í viðskiptum við
útlönd, og þá sér í lagi vöruskipta-
jöfnuðurinn, er hærri en dæmi
eru um hérlendis áður og hefur
vaxið jafnt og þétt frá mánuði til
mánaðar undanfarið. Hann segir
þennan mikla halla engan veg-
inn samrýmast jafnvægisástandi
í efnahagsmálum til lengri tíma
litið því pressan á gjaldmiðilinn
hefur aukist jafnt og þétt. Gunn-
ar telur snúna tíma fram undan í
stjórn efnahagsmála á Íslandi og
ósanngirni fólgna í því að velta
þeirri stjórn alfarið á herðar
Seðlabankans. Aðhalds í ríkis-
fjármálum þurfi við á sama tíma
og innlendar fjármálastofnanir
þurfi að axla sína ábyrgð.
Lending hagkerfisins verður mjúk
Þeir Árni M. Mathiesen fjármála-
ráðherra og Jafet Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfastofu,
voru fengnir til að ræða sína sýn
á þær sviptingar sem einkennt
hafa íslenskt fjármálaumhverfi
að undanförnu. Árni tók undir að
hátt gengi krónunnar hefði orðið
til þess að starfsemi útflutnings-
fyrirtækja hefði dregist saman og
sum þeirra hefðu jafnvel gripið til
þess ráðs að færa hluta starfsemi
sinnar úr landi. Þó yrði að taka inn
í umræðuna að mörg þeirra hefðu
jafnframt séð hag sinn í því að
flytja sig um set til að vera nær
birgjum og viðskiptavinum á stór-
um alþjóðlegum mörkuðum. Hann
sagði að líklegt þætti að gengi
krónunnar lækkaði á árinu en
benti á að mjög sterk öfl tækjust
á sem gerði það að verkum að erf-
itt væri að spá nákvæmlega fyrir
um gengið.
Árni sagði að íslenska hag-
kerfið væri sterkt og ekki væri
ástæða til að óttast að það hryndi.
Á árunum 2001 og 2002 hefði
það komið alþjóðastofnunum á
óvart hversu mikla aðlögunar-
hæfni íslenska hagkerfið sýndi
eftir mikinn viðskiptahalla sem
hvarf á einu ári eins og dögg
fyrir sólu. Nú væri því jafnvel
HLUSTAÐ AF ATHYGLI Á ORÐ JAFETS ÓLAFSSONAR Atli Örn Jónsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs SPV, Árni Mathiesen fjármálaráðherra
og Gunnar Árnason, sérfræðingur efnahagsmála hjá SPV, sögðu sína skoðun á stöðu efnahagsmála við upphaf nýs árs.
Sterk öfl togast á í hagkerfinu
Mikil skuldabréfaútgáfa erlendra aðila í íslensk-
um krónum kemur í veg fyrir að viðskiptahallinn
þrýsti gengi krónunnar niður. Á morgunverðar-
fundi Sparisjóðs vélstjóra var þeirri spurningu velt
upp hvort íslenska hagkerfið væri að sjóða upp úr.
Árni sagði að íslenska hagkerfið væri sterkt og ekki væri ástæða til að óttast að það hryndi. Á árunum 2001 og 2002 hefði
það komið alþjóðastofnunum á óvart hversu mikla aðlögunarhæfni íslenska hagkerfið sýndi eftir mikinn viðskiptahalla
sem hvarf á einu ári eins og dögg fyrir sólu. Nú væri því jafnvel spáð að lending hagkerfisins yrði enn mýkri eftir meiri
uppgang og ójafnvægi en þá var.