Fréttablaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 13
SUNNUDAGUR 22. janúar 2006
SKIPT_um stíl
spáð að lending hagkerfisins yrði
enn mýkri eftir meiri uppgang
og ójafnvægi en þá var. Ef það
gengi eftir mætti þakka því miklu
aðhaldi ríkisstofnana, stjórn
peningamála og sveigjanlegri
aðlögun atvinnulífsins.
Litli hluthafinn er voldugur
Jafet Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Verðbréfastofunnar hf., fór
yfir þróun hlutabréfamarkaðar-
ins og væntanlegar breytingar á
árinu. Sagði hann mikilar breyt-
ingar hafa orðið á íslenska hluta-
bréfamarkaðnum á síðasta ári.
Veltan í skuldabréfum hefði dreg-
ist saman, hlutabréfaviðskipti
aukist um 62 prósent og dagsvelt-
an hefði að meðaltali verið 45,2
milljarðar á hverjum degi sem
kauphöllin var opin. Sagði hann
stærstu breytingu undanfarinna
ára vera að fjármálafyrirtækin
væru orðin allsráðandi. Þau hefðu
hátt í 70 prósent af markaðsvirði
þeirra fyrirtækja sem eru skráð
í Kauphöll Íslands. Í ársbyrjun
1997 stóðu sjávarútvegsfyrirtæk-
in hins vegar fyrir 70 prósentum
af markaðsvirði þeirra fyrirtækja
sem skráð voru þá. Núna væru
ekki nema tvö sjávarútvegsfyrir-
tæki eftir á markaðnum, Grandi
og Vinnslustöðin. Hann benti þó á
að ekki mætti vanmeta styrk litla
hluthafans hér á landi. Hlutabréfa-
eign væri mun almennari hér en í
löndunum í kringum okkur og um
helmingur allra landsmanna eigi
hlutabréf. Tækju litlir hluthafar
sig saman gætu þeir haft mikið
að segja, eins og sýndi sig fyrir
nokkrum árum þegar margir litlir
hluthafar hópuðust að baki Pétri
Blöndal til að koma honum að í
stjórn Íslandsbanka.
Áframhaldandi hækkanir á markaði
Jafet segir allt benda til þess að
árið 2006 verði gott þótt hækkan-
irnar verði ekki eins gífurlegar
og á fyrstu dögunum, enda hækk-
aði markaðurinn um 10 prósent
á fyrstu 13 dögunum. Hann gerir
hins vegar ráð fyrir 25 til 30 pró-
senta hækkun hlutabréfamark-
aðarins á árinu. Í fyrra hækkaði
úrvalsvísitalan um 65 prósent á
árinu og telja margir að nú hljóti
að fara að syrta í álinn. Jafet telur
ekki ástæðu til að óttast. Hluta-
bréfamarkaðir í Skandinavíu hafi
hækkað mikið líka og þess séu til
að mynda fjölmörg dæmi í Noregi
að félög hafi hækkað um 100 pró-
sent. Jafnframt benti hann á að
framboð væri mikið af peningum
í hagkerfinu um þessar mundir.
Það kæmi meðal annars til af því
að margir sem áttu skuldlausar
eignir hefðu nýtt sér möguleik-
ana, sem opnuðust með nýjum
íbúðalánum bankanna í fyrra, og
komist þannig yfir peninga til að
fjárfesta fyrir. Auk þess væru
nú að koma upp stór erfðamál í
fyrsta sinn á Íslandi enda hefði sú
kynslóð verið sérstaklega dugleg
að spara.
Í lok máls síns lýsti Jafet því
yfir að það væri miður að spari-
sjóðirnir hefðu ekki sameinað
krafta sína. Úr gætu orðið gríð-
arlega sterk fyrirtæki í ljósi þess
að samanlögð markaðshlutdeild
þeirra væri meiri en markaðshlut-
deild Íslandsbanka. Hann sagðist
sjá það fyrir sér að nokkrir spari-
sjóðir myndu sameinast á árinu
og varpaði að lokum fram þeirri
tillögu að Sparisjóður vélstjóra,
Sparisjóður Kópavogs og Spari-
sjóður Hafnarfjarðar samein-
uðust og sköpuðu þannig öfluga
einingu.
holmfridur@markadurinn.is
JAFET ÓLAFSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI
VERÐBRÉFASTOFUNNAR HF. Spáir fyrir um
25 til 30 prósenta hækkun hlutabréfamark-
aðarins árið 2006.