Fréttablaðið - 22.01.2006, Page 25
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Heimild: Almanak Háskólans
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR? MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINS
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Theodór Freyr Hervarsson er veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands. Hann
segir að starf veðurfræðinga á Íslandi
sé mjög fjölbreytt þar sem allra veðra
getur verið von.
Theodór lærði veðurfræði í Björgvin í Nor-
egi þar sem hann var í fimm ár. „Ég fór í
gegnum cand.mag og cand.science í Noregi
því að það var ekki hægt að læra þetta hér
nema eftir einhverjum krókaleiðum,“ segir
Theodór. Á meðan hann var í Noregi vann
hann við veðurþjónustu á flugvellinum í
Björgvn samhliða námi. „Sú reynsla hefur
nýst mér mjög vel,“ segir hann.
Theodór kláraði námið haustið 2001 og
kom þá heim og fór að vinna á Veðurstofu
Íslands. „Frá því að ég kom heim hef ég
unnið á spádeild Veðurstofunnar á vöktum,
en það er unnið hérna allan sólarhring-
inn.“
Á spádeild Veðurstofunnar eru gerðar
spár fyrir flug, sjóveðurspár og landspár.
„Í dag eru tölvulíkön orðin okkar helsta
hjálpartæki. Við notum þau mjög mikið og
svo greinum við líka kort og skoðum gervi-
tunglamyndir til að sannreyna hvort að
líkönin eru á réttri leið. Ef svo er ekki þurf-
um við að finna einhverja lausn á því.“
Theodór segir að reynsla skipti miklu
máli í veðurfræði. „Þrátt fyrir fimm ára
nám er maður samt nánast á núllpunkti
þegar maður byrjar. Þeir sem hafa starfað
við þetta lengi eru mjög fljótir að sjá eitt-
hvað í gögnunum sem við sem erum yngri
tökum kannski ekki eftir. Þeir hafa upplif-
að ýmislegt og eru komnir með reynslu-
banka sem þeir geta sótt í.“
Theodór segir að starfið sé mjög
skemmtilegt og engir tveir dagar séu eins.
Hann viðurkennir að það sé örugglega að
sumu leyti erfiðara að vera veðurfræð-
ingur á Íslandi þar sem allra veðra er von
heldur en víða annars staðar. „Veðrið hér
er reyndar ekkert svo frábrugðið veðrinu
í Noregi þar sem ég vann áður en sunnar
í Evrópu eru til dæmis ekki jafn miklar
sviptingar í veðri,“ segir Theodór.
emilia@frettabladid.is
Miklar sviptingar í íslensku veðri
Theodór Freyr Hervarsson segir að engir tveir dagar séu eins í vinnunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Félag opinberra starfsmanna
á Vestfjörðum hefur opnað
skrifstofu sína í nýju sérhönn-
uðu skrifstofuhúsnæði að
Aðalstræti 24 samkvæmt frétt á
bsrb.is. Nýja húsnæðið hentar
mun betur þörfum félagsins
en gamla húsnæðið, sem var
að Hafnarstræti 6, bæði hvað
varðar aðstöðu til fundahalda
og allrar annarrar starfsemi
félagsins.
Námskeiðið Með allt á
hreinu í kjaramálum verður
haldið á vegum Starfsmenntar
fræðslumiðstöðvar 2. febrúar.
Meginviðfangsefni námskeiðsins
er kjaraumhverfi þátttakenda
og er kennari Sverrir Jónsson,
hagfræðingur. Námskeiðið er
án endurgjalds fyrir félagsmenn
aðildarfélaga Starfsmenntar.
Meðallaun rafiðnaðarmanna
með sveinspróf eru 391.607
krónur á mánuði samkvæmt
frétt á rafis.is. Þetta
eru niðurstöður
könnunar sem
nær til 1. nóv-
ember 2005
og hafa launin
hækkað um
9,4% frá árinu
áður. Atvinnuleysi á
meðal rafiðnaðarmanna
mældist síðan aðeins 0,15%.
LIGGUR Í LOFTINU
[ATVINNA]
Atvinnutengt nám bls. 2
Atvinnuleysi innan við þrjú prósent bls. 2
STÖRF Í BOÐI
Bílstjóri
Lagermaður
Forstöðumaður
Sérfræðingar
Prófdómari
Ráðgjafi
Forritari
Leikskólakennarar
Grunnskólakennarar
Netumsjón
Fjármálaráðgjafi
Nuddarar
Sölumenn
Aðalbókari
Sjúkraliðar
Grafískur hönnuður
Framkvæmdastjórar
Markaðsstjóri
Tæknimaður
Vinnslustjóri
Landsbankinn er eitt stærsta
fjármálafyrirtæki landsins og
veitir alhliða fjármálaþjónustu
til einstaklinga, fyrirtækja og
stofnana.
Landsbankinn leitast við að ráða
til sín og hafa í sínum röðum
framúrskarandi starfsfólk og efla
það í störfum sínum.
Til að stuðla að vexti og arðsemi
bankans er áhersla lögð á
skemmtilegan vinnustað, starfs-
ánægju og gott starfsumhverfi,
sem og markvissa starfsþróun
og þekkingu starfsfólks.
Það er viðhorf stjórnenda
Landsbankans að starfsfólkið,
metnaður þess, kraftur og
hollusta, séu lykillinn að
farsælum rekstri bankans.
Upplýsingatæknisvið Landsbankans hefur á að skipa samhentum hópi fólks sem
sinnir áhugaverðum viðfangsefnum í lifandi starfsumhverfi. Lögð er áhersla á að
veita starfsmönnum tækifæri til að viðhalda faglegri þekkingu með skipulögðum
hætti og þróast í starfi. Við erum metnaðarfullur hópur og sækjumst eftir
einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni með okkur.
Helstu verkefni:
• Þátttaka í þróun og uppbyggingu á netinnviðum bankans, jafnt innanlands
sem utan, ásamt tengdum rekstri
• Áhersla lögð á nýtingu innviða sem byggðir hafa verið upp til að gera dreifða
starfsemi bankans einfaldari og skilvirkari
Hæfniskröfur og eiginleikar:
• Reynsla af sambærilegum verkefnum er skilyrði
• Cisco prófgráður eru kostur
• Öguð og fagleg vinnubrögð
• Þjónustulund og samskiptafærni
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar nk. Vinsamlega sendið umsókn ásamt ferilskrá
til bergsig@landsbanki.is
Nánari upplýsingar veita Guðmundur Guðmundsson framkvæmdastjóri
upplýsingatæknisviðs í síma 820 6490 og Bergþóra Sigurðardótti, forstöðumaður
á starfsmannasviði í síma 410 7907.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
LB
I
31
03
8
0
1/
20
06
Upplýsingatæknisvið Landsbankans
– Netumsjón (Network Administration)
Sjúkraliðar
Hafið þið áhuga að koma til liðs við okkur á öldrunarsviði?
Nú eru lausar til umsóknar stöður sjúkraliða á nokkrum deildum
sviðsins. Starfshlutföll samkomulag og ýmsir vaktamöguleikar.
Einnig er möguleiki á að starfa á fleiri en einni deild.
Á öldrunarsviði eru m.a bráðadeild fyrir aldraða í Fossvogi, deildir
fyrir almennar öldrunarlækningar og minnissjúkdóma á Landakoti.
Hjá okkur fáið þið tækifæri til að öðlast fjölbreytta reynslu. Góður
starfsandi á sviðinu og einstaklingshæfð aðlögun í boði.
Við leggjum áherslu á:
• fagmennsku
• umhyggju fyrir öldruðum
• samvinnu hinna ýmsu fagstétta
• öfluga endur- og símenntun starfsmanna
• tækifæri til að taka þátt í þróunarverkefnum
Umsóknir berist fyrir 6. febr. nk. til Hlífar Guðmundsdóttur, verk-
efnastjóra, sími 824 5831, netfang hlifgud@landspitali.is
og veitir hún upplýsingar ásamt Ingibjörgu Hjaltadóttur, sviðsstjóra
hjúkrunar, sími 543 9890, netfang ingihj@landspitali.is
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráð-
herra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut, skrif-
stofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www.landspitali.is. Tekið er
mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala – háskólasjúkra-
húsi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin. Landspítali – háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.Laun samkvæmt
gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Sól r Hádegi l
Reykjavík 10.37 13.39 16.42
Akureyri 10.39 13.24 16.10
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 22. janúar,
22. dagur ársins 2006.