Fréttablaðið - 22.01.2006, Síða 32
ATVINNA
8 22. janúar 2006 SUNNUDAGUR
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Menntasvið annast starfsemi og rekstur grunnskóla
og leikskóla. Í því felst þróun grunnskóla- og leik-
skólastarfs, undirbúningur stefnumörkunar, mat og
eftirlit með skólastarfi og upplýsingamiðlun fyrir
menntaráð og starfshópa á vegum ráðsins.
MENNTASVIÐ – LEIKSKÓLAR
Atferlisþjálfi í leikskóla
Laus er staða atferlisþjálfa í leikskólann Furuborg,
v/Áland.
Um er að ræða krefjandi og spennandi starf sem felur í sér
að annast þjálfun nemanda með einhverfu.
Starfsmaður fær markvissa leiðsögn við að beita aðferðum
hagnýtrar atferlisgreiningar. Unnið er í nánu samstarfi við
foreldra barnsins, atferlisráðgjafa og annað starfsfólk á
leikskólanum.
Hæfniskröfur:
• Þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða háskólamenntun á
sviði uppeldis- eða sálfræði
• Reynsla af vinnu með einstaklingum með þroskafrávik
æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfni, áreiðanleiki og nákvæmni í starfi.
Um er að ræða 90% starf. Umsóknarfrestur er framlengdur
til 2. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Sigurþórsdóttir
leikskólastjóri í síma 553-1835.
Umsóknir sendist í leikskólann Furuborg, v/Áland. Einnig
veitir starfsmannaþjónusta Menntasviðs upplýsingar í síma
411-7000. Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög. Nánari
upplýsinga um laus störf er að finna á www.menntasvid.is
4X11_Leikskólar 21.1.2006 14:42 Page 1
óskar eftir að ráða landslagsarkitekt eða aðila með
skipulagsmennun. Viðkomandi verður að hafa
staðgóða þekkingu á Autocad. Umsóknarfrestur er til
7. febrúar 2006. Sjá nánari umfjöllun á heimasíðu.
LANDFORM
e
h
f
www.landform.is
Til hugsandi fólks! Nú eru
síðustu sex stöðugildin
laus til umsóknar
Ertu heillshraustur? Og viltu verða gamall
og vitur? Komdu þá til starfa hjá okkur.
Starfið er krefjandi! Búið er að ráða einvala
starfsfólk og er mikil jákvæðni og áhugi í
starfsmannahópnum. Grunntónninn í
starfsmannastefnu leikskólans er hlýja og
faglegur stuðningur. Ábyrgð leikskólans
hvað varðar heilbrigði er mikil og er lögð
áhersla á grænmeti og ávexti.
Leikskólinn er nýr sex deilda einkarekinn skóli
og tók til stafa 1. nóvember s.l. Búið er að ráð
80% af starfsfólki, þar af eru 5 karlar. Hann er
staðsettur við Álfkonuhvarf í Vatnsendahverf-
um í Kópavogi og er rekinn af ÓB ráðgjöf.
Lausar eru til umsóknar staða umsjónarmanns
með stuðningsbarni og stöður leikskólakenn-
ara. Æskilegt er að umsjónarmaðurinn sé
leikskólakennari, þroskaþjálfi eða hafi aðra
sambærilega menntun. Einnig óskum við eftir
leikskólakennurum eða fólki með sambærilega
menntun eða reynslu. Í öllu starfi leikskólans
er haft að leiðarljósi að sinna þörfum og
tilfinningum barnanna, með áherslu á að rækta
með þeim hæfileikann að tjá sig tilfinningalega
með aldur og þroskastig barnanna að
leiðarljósi.
Nánari upplýsingar um ÓB ráðgjöf á
www.obradgjof.is.
Þeir sem hafa áhuga á að sækja um starf
vinsamlegast hafið samband við Sólveigu
Einarsdóttir leikskólastjóra í síma 570 4900
eða með því að senda tölvupóst í
leikskólinn@obradgjof.is