Fréttablaðið - 22.01.2006, Side 58
22. janúar 2006 SUNNUDAGUR
FISKELDISSTÖÐ
TIL SÖLU !!
MIKLILAX AÐ HRAUNI I. Í FLJÓTUM.
Fiskeldisstöðin Miklilax er staðsett á jörðinni
Hraun I Fljótahreppi, skammt frá Siglufirði.
Húsakostur: Vandað sláturhús úr límtré 485,3m2 stálklætt. Rafstöðvar-
hús 153,7m2, (steypt) djúpdæluhús 38,8m2 (steypt ) og skúrar.
Fiskeldisker: Steyptur. botn og hliðar úr glerjungsungshúðuðu stáli:
8 stk Ø 23,9 m og 3 stk Ø 12,9m.
Véla og tækjabúnaður: Rafstöð Cummins 820 hp, keyrð 900 klst, Rafall
Leroy-Somer 516kw, 4stk Framo djúpdælur, 4-5 stk loftdælur, krapavél
Type B105, o.m.fl.
Lausmunir: Talsvert magn af plaströrum Ø600mm og 170mm, og ýmsu
öðru efni og búnaði.
Upplýsingar verða gefnar í síma 444 - 8706 og einnig má senda fyrir-
spurnir á henry@kbbanki.is og fax 444-8709.
Óskað er eftir tilboðum í alla stöðina eða hluta.
Þ.e. byggingar, vélar eða lausamuni.
Senda skal inn formleg tilboð ásamt greiðsluskilmálum.
Tilboðsfrestur er til og með 10. febrúar 2006.
Tilboð sendist til KB banka, Sóltúni 26. 105 R c/o Henrý Þór.
Kaupþing banki hf. áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er,
eða hafna öllum.
ÁLVER Í HELGUVÍK
Mat á umhverfisáhrifum
Norðurál kynnir drög að tillögu að matsáætlun
Hafið er matsferli vegna fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Gert er ráð
fyrir að álverið verði byggt upp í áföngum þar sem stefnt er að
allt að 250.000 tonna ársframleiðslu. Endanleg ákvörðun um
áfangaskiptingu hefur þó ekki verið tekin þar sem hún ræðst af
orkuöflun til álversins.
Norðurál er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrif-
um verður unnið af HRV sf. Á vefsíðu HRV (http://www.hrv.is)
eru nú til kynningar drög að tillögu að matsáætlun framkvæmd-
arinnar. Kynningin stendur yfir til sunnudagsins 5. febrúar 2006.
Fyrir hönd framkvæmdaraðila er almenningur og aðrir hvattir til
að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri til Hauks
Einarssonar (HRV sf., Grensásvegi 1, 108 Reykjavík,
haukure@hrv.is). Í endanlegri tillögu að matsáætlun verður
gerð grein fyrir þeim ábendingum og athugasemdum sem kunna
að berast.
Alan Raphaeline er ekki hefðbundinn bisnissmaður, hann segist vera í dreifing-
arbransanum og brosir bak við
skeggið þegar hann býður gesti
bókabúðarinnar Another Count-
ry velkomna – í stofuna heima hjá
sér. Hann rekur eina óvenjulegustu
bókaverslun eða bókasafn í Berlín.
Fyrir sex árum ákvað hann að láta
drauminn rætast og hóf rekstur
með sínar eigin bækur. Opnaði
hann stofuna sína og kjallarann
fyrir áhugasama lesendur í leit að
góðum notuðum enskum bókum.
Herra Raphaeline er sagnamaður
með skrautlega fortíð og í félags-
miðstöðinni hans í Kreuzberg eru
miklar líkur á því að komast í
góðar sögur.
Felur enga fjársjóði
Kerfið er einfalt, í búðinni má finna
meira en 12.000 enskar bækur um
flest milli himins á jarðar en þar
af eru um 2000 bækur aðeins til
leigu. Bækurnar kosta flestar á
bilinu 2 til 5 evrur en ofan á það
leggst leigugjald að upphæð 1,5
evrur. Ef lesandanum líkar ekki
bókin sem hann kaupir getur hann
skilað henni og fengið hana endur-
greidda, að frádregnu leigugjaldi.
Að sögn Raphaeline virkar þetta
kerfi vel og flestir lesendur sýna
því skilning að sumar bækurnar
séu ekki til sölu.
„Ég er með fastakúnna sem
senda bækurnar til baka frá Köln,
Dusseldorf og Búdapest en ég held
að lengsta ferðlagið sem bækur frá
mér hafa farið sé til Sri Lanka og
til baka.“ Hann kveðst vera ánægð-
ur með þetta fyrirkomulag því það
kemur í veg fyrir að góðar bækur
stoppi í hillum lesenda. Markmið
hans er að góðar bækur séu lesn-
ar og góðir höfundar fái útbreiðslu
meðal lesenda. Ein mesta gleðin
fyrir mann í hans starfi sé að geta
miðlað af reynslu sinni, kynnt nýja
höfunda fyrir lesendum og aukið
á ánægju þeirra með því að miðla
sögum, bæði þessum skálduðu og
þeim sönnu.
„Helmingur gestanna kemur
frá enskumælandi löndum en
Þjóðverjar eru hinn helmingur-
inn,“ segir Raphaeline og upplýsir
að það sé alls konar fólk sem reki
inn höfuðið. Fastagestirnir hafi
flestir „sæmilega góðan smekk á
bókum“ en margir eru áhugafólk
um vísindaskáldskap sem er aðall
þessarar verslunar. Í kjallarnum
má finna „stærsta safn sinnar
tegundar í Þýskalandi, jafnvel í
Evrópu,“ segir eigandinn stoltur.
Hann er sjálfur einlægur aðdáandi
vísindaskáldskapar og duglegur að
boða fagnaðarerindi þeirrar bók-
menntagreinar.
Alætan eldar á föstudögum
„Ég les 500 bækur á ári, helming-
urinn er vísindaskáldsögur og svo
glæpasögur, sagnfræði og annað í
bland. Það mætti segja að ég væri
alæta á bækur,“ segir Raphaeline
sem ver flestum stundum sínum í
bókabúðinni. Á morgnana kemur
hann niður af efri hæðinni þar
sem hann sefur, kemur sér fyrir
bak við skrifborðið og fer yfirleitt
ekki upp aftur fyrr en kl. tíu á
kvöldin.
Hann segir að mesta fúttið sé á
föstudögum því þá eru haldin kvik-
myndakvöld og auk þess eldar Rap-
haeline fyrir gesti. Hann stendur
á haus í eldhúsinu allan daginn
og töfrar fram margrétta matseð-
il fyrir gestina sem sumir koma
meira til að spjalla og borða á sig
gat en horfa á kvikmynd. „Ég er
alltaf rosalega stressaður á föstu-
dögum þótt ég hafi staðið í þessu
lengi, að elda fyrir allt þetta fólk,“
segir kokkurinn. „Verð hrædd-
ur um að maturinn sé ekki nógu
góður, of lítið af honum eða allt of
mikið.“ Í búðinni eru líka haldnar
„ráðstefnur“ um ýmis málefni, nú
á vordögum verður t.d. fjallað um
vísindskáldskap út frá kynjahug-
takinu og þá verður væntanlega
fjörugt í kjallaranum.
Afslappað og heimilislegt
Alan Raphaeline er Lundúnabúi
sem ílengst hefur í Berlín. Hann
segist strax hafa heillast af borg-
inni á áttunda áratugnum þegar
hann flakkaði hvað mest um skyn-
heiminn. Þó að margt hafi breyst
síðan hann kom fyrst til Kreuzberg
er Berlín samt staðurinn þar sem
honum líður best. Hann er líka
búinn að koma sér upp litlu afdrepi
úti á landi þar sem hann felur sig
stundum. Það er gestkvæmt hjá
honum í búðinni enda er auðvelt
að heillast af þessum karakter og
sögunum hans og þetta er frábær
staður til þess að hitta skemmti-
legt fólk. Gestir geta fleygt sér í
sófann, fengið sér te eða bjór og
gluggað í bækur og fengið fréttir,
slúður og visku af einu eða öðru
tagi. Umhverfið er heldur ekki
dauðhreinsað eða minimalískt
heldur fyrst og fremst heimilislegt
og afslappað, engar óþarfa tuskur
á lofti, dulbúið skipulag í flútti við
eigandann.
Á aðventunni var hann að dunda
sér við að velja jólapóstkort handa
vinum og fastagestum. „Má ekki
bjóða þér eitt að skilnaði?“ spurði
hann en bætti því við að hann væri
alls ekkert jólabarn þótt hann hafi
hent í eina annarlega sort af smá-
kökum. Gestir geta því átt von á því
að fara vel nestaðir af alls kyns sál-
arfæði ef þeir kíkja inn og karlinn
er í góðu skapi. ■
Bóksalinn í Berlín
Illa bókahillan
Flokkunarkerfið í Another
Country er einfalt, í kjallaran-
um er vísindaskáldskapur en
á jarðhæðinni er allt annað,
nokkurn veginn í stafrófsröð,
auk þess örfáar hillur með sér-
valið efni. Ein þeirra er illa
bókahillan þar sem Raphaeline
hefur raðað bókum sem hann
segir að séu beinlínis fullar
illsku og eigi best heima á bóka-
brennum. Þar má meðal annars
sjá ævisögu Britney Spears
og bókina um Oliver Twist. Af
hverju er Dickens illur? „Það er
löng saga, en þú veist að hann
fékk borgað eftir orðafjölda,“
segir bóksalinn en andúð hans á
Charles Dickens hefur víst líka
eitthvað með breska skólakerfið
að gera.
ALAN RAPHALINE Á föstudögum heldur Alan bíókvöld. Þá stendur hann á haus í eldhúsinu og töfrar fram margrétta matseðil fyrir gestina.
MYND/ KRISTRÚN HEIÐA HAUKSDÓTTIR
Another Country
Búðin er staðsett í Kreuzberg,
einu af skemmtilegustu hverf-
um Berlínar. Þar má til dæmis
finna fjöldann allan af notaleg-
um kaffihúsum og verslunum
með antikvarning og notuð föt.
Fyrir bókaorma má líka benda
á að í nágrenninu er frábær
myndasöguverslun og búð þar
sem fást nýjar þýskar og ensk-
ar bækur. Another Country má
finna í Riemannstraße 7 eða á
netinu: www.anothercountry.
de.
Alan Raphaeline heitir Englendingur sem ílengd-
ist í Berlín á áttunda áratugnum og rekur bóka-
búð í stofunni hjá sér. Kristrún Heiða Hauksdóttir
tók hús á manninum sem les 500 bækur á ári.