Fréttablaðið - 22.01.2006, Side 60
22. janúar 2006 SUNNUDAGUR28
Það ríkir mikil eftirvænting í herbúðum Hollywood-kvikmyndaveranna. Fjöl-
miðlar vestra búast við óvenju
harðri samkeppni um Óskarinn
þetta árið en tilkynnt verður um
tilnefningarnar 31. janúar.
Sjaldan hafa leikarar í Holly-
wood fengið úr jafn safaríkum
handritum að moða og þetta árið.
Minnir tíðin á það sem var að
gerast í kvikmyndaborginni á átt-
unda áratugnum þegar Scorsese
og Coppola voru uppi á sitt besta.
Philip Seymour Hoffman sem
Capote – hlutirnir virðast ekki ger-
ast betri en þetta. Kvikmyndaver-
in eru farin að gera sér grein fyrir
því að ef þau eru ekki með meist-
arastykki á borð við Hringadrótt-
inssögu þá er eins gott að eyða smá
fúlgum í handrit og leikstjóra og
uppskera jafnvel nokkrar styttur
fyrir vikið.
Framleiðslan í Englaborginni
þykir benda til þess að einhverrar
vakningar sé að gæta hvað stjórn-
mál varðar. Pólitískir tryllar á
borð við The Constant Gardener,
Syriana og Munich hafa allar feng-
ið prýðilega dóma og gagnrýn-
endur spá þeim öllum velgengni í
Kodack-höllinni þegar vora tekur.
Samkynhneigðu kúrekarnir hans
Ang Lee fengu flestar tilnefning-
ar til Golden Globe en George W.
Bush hefur verið gagnrýndur af
listamönnum fyrir harða afstöðu
sína gagnvart stöðu homma og
lesbía. Það má heldur ekki útiloka
Walk The Line því ef það er eitt-
hvað sem Bandaríkjamenn elska
þá eru það látnir tónlistarmenn.
Johnny Cash er jú eins amerískur
og hugsast getur.
Breski fréttavefurinn BBC
spáir í spilin fyrir komandi átök
en um þessar mundir eru stóru
stúdíóin að kynna kvikmyndir
sínar fyrir meðlimum akademí-
unnar. Allra augu beinast að
Brokeback Mountain, hugljúfri og
dramatískri sögu tveggja kúreka
sem verða ástfangnir hvor af
öðrum. Myndin fékk sjö tilnefn-
ingar til Golden Globe-verðlaun-
anna sem hingað til hefur þótt
ágætis vísbending um það sem
koma skal. Heath Ledger hefur
fengið mjög dóma fyrir leik sinn
í myndinni en heldur sér á jörð-
inni og hefur ríka ástæðu til
þess. Kvikmyndir um samkyn-
hneigð ganga yfirleitt ekki vel á
Óskarnum og hinir frjálslyndu
blaðamenn, sem eru ábyrgir fyrir
Golden Globe, hafa tilhneigingu
til þess að kjósa myndir á borð við
hana. Hinir íhaldssömu meðlimir
akademíunnar eru ekki hrifnir af
því þegar eitt af mörgum táknum
Bandaríkjanna er tengt við þessa
kynhegðun. Sigri Brokeback
Mountain kann það að hleypa nýju
blóði í baráttu samkynhneigðra
þar vestra. Pólitíkin spilar nefni-
lega ótrúlega stóra rullu í þessu
vali og oftar en ekki er hægt að
spá fyrir um úrslitin með löngum
fyrirvara. Árið í ár virðist ætla
að vera undantekning á því. Því
má heldur ekki gleyma að ríkis-
stjórinn Arnold Schwarzenegger
er samherji Bandaríkjaforseta og
gæti beitt sér fyrir hagstæðum
úrslitum. Pólitísku tryllarnir og
samkynhneigðu kúrekarnir gætu
því þurft að bíða enn um sinn.
Breska þjóðin bíður spennt eftir
tilnefningum enda er breskum
leikkonum spáð góðri uppskeru.
Fjölmiðlar útiloka ekki að Judi
Dench fái sína fimmtu tilnefningu
fyrir Mrs. Henderson Presents.
Leikkonan var þó hógvær þegar
hún var innt eftir þessum mögu-
leika. „Hafi mér tekist að segja
söguna almennilega er ég ánægð.“
Keira Knightley þykir einig mjög
líkleg til að verða stjarnan á rauða
dreglinum en frammistaða henn-
ar sem Elizabeth Bennet í Hroka
og hleypidómum hefur orðið til
þess að margir veðja á hana. „Þú
verður bara að njóta augnabliks-
ins því þegar allt kemur til alls
þá er þetta bara augnablik og það
hverfur. Og það er bara allt í lagi,“
svaraði leikkonan unga þegar hún
var spurð hvað henni fyndist um
þessar vangaveltur.
Bandaríski leikstjórinn Rob
Marshall gæti enn fremur komið
öllum á óvörum, líkt og hann gerði
með Chicago árið 2003 þegar þau
hræðilegu tíðindi bárust að hún
hefði rænt verðlaununum frá
The Hours, Pianist og Lord of
the Rings: The Two Towers sem
allar hefðu verið betur að stytt-
unni komnar. Akademían virðist
vera eitthvað hrifin af Marshall
og nýjasta mynd hans, Memoirs
of Geisha, hefur verið orðuð sem
hugsanlegur sigurvegari. Hún er
byggð á samnefndri metsölubók
og skartar hinni þokkafullu Ziyi
Zhang í aðalhlutverki. Marshall
hefur orð á sér fyrir mjög list-
ræna sýn sem gæti slegið ryki í
augu meðlimanna en þeir hafa
alltaf verið hrifnir af lifnaðar-
háttum í hinu forna menningar-
veldi Kínverja.
Fernando Meirelles skaust
uppá stjörnuhimininn með kvik-
myndinni City of God eða Cidade
de Deus. Myndin var óvenju hrá og
ósérhlífin en vakti athygli á þess-
um unga Brasilíumanni. Kvik-
myndin The Constant Gardener
hefur ekki fengið síðri dóma en
hún fjallar um pólitískt samsæri
í Afríku. Ralph Fiennes og Rachel
Weisz þykja sannfærandi í þess-
ari spennumynd sem þykir líkleg
til afreka.
Kvikmyndir Spielbergs blanda
sér iðullega inn í umræðuna rétt
fyrir tilnefningarnar. Sem betur
fer hafði leikstjórinn vit á því að
hafa kvikmyndina Munich í bak-
höndinni því War of the Worlds
var aldrei líkleg til afreka. Hand-
rit Tonys Kushner þykir með
eindæmum gott en myndin sjálf
tekur á það eldfimu efni að fáir
hafa þorað að spá henni einhverri
velgengni. Það skyldi þó aldrei
neinn efast um markaðssérfræð-
ingana á bak við Spielberg.
Auk ofangreindra mynda eiga
Good Night and Good Luck eftir
George Clooney og Syriana heima
í þessum flokki. Clooney virðist
verða áhrifameiri með hverju
árinu sem líður og velgengni
þessara tveggja mynda er enn ein
sönnunin fyrir því.
Þegar tilnefningarnar verða
loks dregnar fram í dagsljósið á
eflaust eitthvað óvænt eftir að
koma í ljós. Það væri nú heldur
óvenjulegt ef Óskar frændi tæki
upp á því að fara algjörlega eftir
bókinni. - fgg
HEATH LEDGER OG ANG LEE Kvikmyndin um samkynhneigðu kúrekana hefur fengið frábæra dóma en spekingar velta því fyrir sér hvort
Hollywood sé tilbúið fyrir ástarsamband tveggja karlmanna.
WALK THE LINE Bæði Joaqin Phoenix og Reese Witherspoon fengu Golden Globe-verð-
launin fyrir frammistöðu sína. Hvort það nægir skal ósagt látið.
KEIRA KNIGHTLEY Nafn hennar hefur borið
á góma vegna tilnefninganna en stúlkan
segist sjálf ekki mikið velta sér mikið upp
úr slíkum vangaveltum.
THE CONSTANT GARDENER Leikur þeirra Weisz og Fiennes þykir með afbrigðum góður.
Myndin leiðir Bafta-tilnefningarnar en Rachel Weisz hefur verið hlaðin lofsyrðum fyrir leik
sinn og er sögð skyggja á stórleikarann Ralph Fiennes.
MUNICH Þessi pólitíski tryllir hefur vakið mikla athygli en Spielberg er sagður endurfæddur
með þessari mynd.
HVAÐ GERIR ÓSKAR
FRÆNDI Í LOK JANÚAR?
GEISHA Leikstjórinn Rob Marshall er í miklu uppáhaldi hjá akademíunni en síðasta mynd
hans, Chicago, rakaði til sín verðlaunum.