Fréttablaðið - 22.01.2006, Side 70
38 22. janúar 2006 SUNNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur • Borgartún 3 • 105 Reykjavík • Sími 411 3000
Reitirnir sem um ræðir eru Lögreglustöðvarreitur, Skúlagarður,
Hampiðjureitur, KB bankareitur, Tryggingastofnunarreitur og reitur sem
afmarkast af Einholti og Þverholti, en síðast taldi reiturinn hefur þegar verið
auglýstur með athugasemdafresti til 1. mars.
Auk formanns skipulagsráðs, Dags B. Eggertssonar, og embættismanna
munu skipulagsráðgjafar mæta á fundinn og kynna nýjar tillögur að
deiliskipulagi svæðisins.
Einnig mun verða stutt umfjöllun um skipulag Miklatúns.
Íbúar á svæðinu og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta og
kynna sér og ræða hinar nýju tillögur.
Fundurinn verður haldinn að Kjarvalsstöðum
á Miklatúni þriðjudaginn 24. janúar n.k.
og hefst kl. 17:00.
Hlemmur plús
kynningarfundur
Skipulagsráð og Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur boða til
almenns fundar þar sem kynntar verða tillögur að nýju deiliskipulagi á
6 reitum umhverfis Hlemm. Í tillögunum er m.a. gert ráð fyrir talsverðri
endurnýjun og uppbyggingu nýrra bygginga.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JANÚAR
19 20 21 22 23 24 25
Sunnudagur
■ ■ LEIKIR
16.15 Stjarnan og FH mætast í
DHL-deild kvenna í handbolta.
19.15 Valur og Grótta mætast í
DHL-deild kvenna í handbolta.
19.15 Víkingur og KA/Þór mætast
í DHL-deild kvenna í handbolta.
19.15 Snæfell og Njarðvík mætast
í bikarkeppni KKÍ í körfubolta.
19.15 KR og Keflavík mætast í bik-
arkeppni KKÍ í körfubolta.
19.15 Skallagrímur og Þór mætast
í bikarkeppni KKÍ í körfubolta.
19.15 Grindavík og Haukar mæt-
ast í bikarkeppni KKÍ (kvenna).
■ ■ SJÓNVARP
11.40 Spænski boltinn á Sýn.
12.45 Heimsbikarkeppnin á
skíðum á Rúv.
13.20 Ítölsku mörkin á Sýn.
13.50 Ítalski boltinn á Sýn. Leikur
Juventus og Empoli.
17.50 Spænski boltinn á Sýn.
Leikur Barcelona og Alaves.
20.30 NFL á Sýn. Leikur Denver
Broncos og Pittsburgh Steelers.
23.30 NFL á Sýn. Leikur Seattle
Seahawks og Carolina Panthers.
> Gunnar Heiðar ekki á
förum
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson, leik-
maður Halmstad í
Svíþjóð, fer líklega
ekkert frá félaginu fyrr
en samningur hans
rennur út í haust.
Verðmiðinn á
Gunnari er
rokinn upp
úr öllu valdi
og fælir
það þau
lið frá
sem bíða
í röðum
eftir því að
fá hann til
sín.
Fyrsti leikurinn
Skagamaðurinn Garðar Gunnlaugsson
spilaði í gær sinn fyrsta leik fyrir
Dunfermline þegar hann kom inn á
sem varamaður í leik gegn Hibernian.
Dunfermline tapaði leiknum 3-1. Garðar
lék síðustu sextán mínúturnar í leiknum
en lét lítið að sér kveða.
HANDBOLTI Frakkar fara fullir
sjálfstrausts á EM í Sviss eftir tvo
góða sigra á íslenska landsliðinu.
Liðin mættust á Ásvöllum í gær
í annað sinn á skömmum tíma og
Frakkar unnu annan öruggan og
mjög sanngjarnan sigur. Sigur-
inn í gær var öruggari en sá fyrri
enda unnu Frakkar stórt að þessu
sinni, 30-36.
Íslenska liðið byrjaði leikinn
mjög vel og mun betur en fyrri
leikinn. Leikmenn gengu ákveðið
til verks, spiluðu hraða miðju og
Ólafur Stefánsson lét til sín taka
en hann var ákaflega daufur í
fyrri leiknum. Þessi ágæta byrj-
un gaf lítið annað en falsvonir
því fyrr en varði fór íslenska liðið
að gera sig seka um sömu grát-
legu mistökin og í fyrri leiknum
en fjölmargir boltar töpuðust
sökum glórulausra, kæruleysis-
legra sendinga. Þrátt fyrir það
var leikurinn í jafnvægi í leikhéi
en Frakkar leiddu þá með tveim
mörkum, 15-17.
Síðari hálfleikur var nánast
ein martröð fyrir íslenska liðið.
Frakkar náðu fljótt fjögurra
marka forystu, 16-20, en þá kom
góður kippur hjá íslenska liðinu
sem minnkaði muninn í eitt mark,
19-20. Því miður reyndist þessi
kippur vera dauðakippur liðs-
ins því í stöðunni 21-23 skoruðu
Frakkar sex mörk í röð og gengu
frá leiknum. Síðustu fimmtán
mínútur leiksins fóru í lítið annað
en að bíða eftir lokaflautinu.
Það er óhætt að segja að veik-
leikar íslenska liðsins hafi opin-
berast í síðari hálfleik. Vörnin
var hreint skelfileg og áberandi
var hversu slakir íslensku leik-
mennirnir voru í stöðunni einn
gegn einum. Einnig fór lítið fyrir
hjálparvörn. Vörninni var breytt
um síðir en það skilaði engu og
Frakkar virtust skora að vild og
það sem sorglegast var að þeir
höfðu lítið sem ekkert fyrir því.
Hraðaupphlaupin hurfu í kjölfar-
ið enda fá lið engin hraðaupphlaup
ef vörnin er ekki til staðar.
Guðjón Valur var góður sem
fyrr þrátt fyrir að hafa lítið feng-
ið af hraðaupphlaupum. Þótt það
sé lítil skotógnun af Arnóri Atla-
syni verður ekki tekið af honum
að hann spilaði mjög vel fyrir
liðið og átti fjölda sendinga sem
gáfu mark eða vítakast. Góð byrj-
un Ólafs Stefánssonar í leiknum
reyndist skammgóður vermir og
hann verður að spýta í lófana ef
Ísland ætlar sér eitthvað á EM.
Markvarslan var viðunandi miðað
við varnarleikinn en hún var allt
of gloppótt en liðið þarf á jafnri
markvörslu að halda út leikinn.
Stærsta áhyggjuefnið fyrir EM
er þó það sama og fyrir HM í Túnis
í fyrra – vörnin. Sóknin er á fínu
róli og þótt landsliðið hafi sýnt
ágæta varnartakta á köflum gegn
Frökkum sáust brotalamirnar
bersýnilega í gær. Verst var að
engin svör virtust vera til staðar
þegar illa áraði í varnarleiknum
en liðið keyrir ekki heilt mót ein-
göngu á 5-1 vörn. henry@frettabladid.is
Ísland flengt á franska vísu
Frakkar sáu til þess á Ásvöllum í gær að íslenska handboltalandsliðið fer á EM með báða fætur á jörðinni.
Frakkar fóru illa með íslenska liðið í síðari hálfleik og opinberuðust veikleikar íslenska liðsins þá illilega.
Í KRÖPPUM DANSI Guðjón Valur Sigurðsson lék best íslensku leikmannanna í gær þrátt
fyrir að vera tekinn föstum tökum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Viggó Sigurðsson var
að vonum ekki sáttur við frammi-
stöðu íslenska liðsins í leiknum
gegn Frökkum. „Við erum að gera
sömu mistök og í fyrri leiknum.
Það þýðir auðvitað ekki að vera
með tíu tapaða bolta í einum og
sama hálfleiknum gegn liði eins
og Frakklandi. Þá er þér einfald-
lega refsað.“
Að mati Viggós kom breidd
franska liðsins vel í ljós í dag.
„Þeir voru ekki að keyra á sínu
allra sterkasta liði, allavega í fyrri
hálfleik og þeir fara inn í hálfleik
með tveggja marka forystu. Það
sýnir það einfaldlega hvað styrk-
leiki þessa liðs er mikill. Það var
samt sem áður mjög gott að fá
þessa leiki gegn Frökkunum og
þeir sýna okkur það að við þurfum
að taka okkur á.“
Aðspurður hvernig hann muni
undirbúa liðið seinustu dagana
áður en haldið er til Sviss sagði
Viggó að honum sýndist vera
komin þreyta í liðið. „Eftir þessa
tvo leiki er ljóst að menn eru svo-
lítið þreyttir þannig að nú slökum
við aðeins á og mætum klárir í
slaginn á fimmtudaginn eftir góða
hvíld.“ - toh
Tapaðir boltar urðu Íslandi að falli gegn Frökkum:
Frakkar refsa fyrir slíkt
VIGGÓ Segir að þreyta sé komin í mannskapinn eftir tvo erfiða leiki. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Einar Hólmgeirsson er: Hlunkur
ÍR er: Flottasta félagið
Viggó Sigurðsson er: Góður dómari
Þýskaland eða Breiðholtið: Breiðholtið
Handbolti er: list
Besti handboltamaður í heimi: Ólafur Stefánsson
Man Utd eða Liverpool: Chelsea
Hver er fallegust: Kærastan
Popp eða Rokk: Rokk
Gel eða Vax: Vax
Davíð eða Halldór: Hvorugur
Hólmgeir Einarsson er: Flippaður pabbi
Af hverju handbolti: Af því ég var of lélegur í öllum öðrum
íþróttum
MEÐ EINARI
HÓLMGEIRSSYNI60
SEKÚNDUR