Fréttablaðið - 22.01.2006, Qupperneq 74
22. janúar 2006 SUNNUDAGUR42
Ónýtar rafhlöður skaða náttúruna
Leggðu þitt af mörkum til náttúruverndar og komdu þeim
í réttar hendur. Þú getur farið með þínar rafhlöður í söfnunarílát
Efnamóttökunnar eða á móttökustaði sveitarfélaga um land allt.
Við sækjum! S. 520 2220 www.efnamottakan.is
Hættulegt
Dæmi um spilliefni
sem fara skal með til
Efnamóttökunnar:
Hreinsiefni
Slökkvitæki
Málningarafgangar
Smurefni
Leysiefni
Spillum ekki framtíðinni
FÓTBOLTI Steven Gerrard fyrir-
liði Liverpool setur vinskap sinn
við Wayne Rooney, leikmann
Manchester United, til hliðar
þegar liðin mætast á Old Traff-
ord í dag. Leiksins er beðið með
mikilli eftirvæntingu en liðin eru
í öðru og þriðja sæti deildarinnar.
Rooney sagði nýverið að honum
hefði verið flökurt þegar hann
sá Gerrard lyfta Evrópumeist-
aratitlinum í Istanbúl á síðasta
ári en Gerrard ber engan kala til
félaga síns.
„Það kemur mér ekki á óvart.
Mér hefði líklega liðið eins ef
Manchester United hefðu orðið
Evrópumeistarar, svona er rígur-
inn á milli félaganna. En það er
frábært að sjá Wayne standa sig
svona vel þar sem hann er góður
vinur minn úr landsliðinu. Hann
hefur spilað frábærlega undan-
farið. Ég held að eftir tvö ár verði
hann einn allra besti leikmaður í
heiminum.
- hþh
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool
Vinskapurinn
settur til hliðar
FÓTBOLTI Mark frá James Beattie
var nóg fyrir Everton til að leggja
Arsenal af velli í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í gær.
Heimamenn í Everton voru vel
að sigrinum komnir en bæði lið
hefðu getað skorað fleiri mörk en
það eina sem leit dagsins ljós.
„Þetta var virkilega góð
frammistaða hjá mínum mönnum.
Þetta er allt að koma,“ sagði David
Moyes stjóri Everton eftir leikinn
en kollegi hans Arsene Wenger
var ekki eins sáttur.
„Það var mjög svekkjandi
að tapa þessum erfiða leik. Við
eigum í vandræðum á útivöllum.
Við töpum alltaf 1-0 og þurfum að
finna svar við þessu til að enda í
einu af fjórum efstu sætunum í
vor,“ sagði Wenger.
Umdeilt mark frá Morten
Gamst Pederson tryggði Black-
burn sigur á Newcastle og gerði
hann þar með sínum gamla stjóra,
Graeme Souness skráveifu en
óðum styttist í að hann verði lát-
inn taka pokann sinn. „Mér fannst
við vera betri en þeir. Við hefðum
ekki átt að tapa þessum leik, ekki
frekar en fyrir Fulham í síðustu
viku. Ég er að laða fram það besta
í mínum mönnum og ég get ekki
gert meira sem knattspyrnustjóri.
Meiðsli hrjá okkur mikið og það er
mjög erfitt um þessar mundir.
- hþh
Everton lagði Arsenal
James Beattie skoraði eina mark leiks Arsenal og Everton. Enn eykst pressan á
Graeme Souness, stjóra Newcastle sem tapaði enn einum leiknum.
THIERRY HENRY Gat ekki komið í veg fyrir sigur Everton á Arsenal í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
RALL Marcus Grönholm er fyrstur
eftir annan keppnisdag í Monte
Carlo-rallinu en þessi snjalli
Finni ekur á Ford. Það var aftur
á móti heimsmeistarinn Sebastien
Loeb sem stal senunnni en hann
gerði sér lítið fyrir og vann allar
sérleiðir dagsins. Citroen-öku-
maðurinn Loeb velti bíl sínum á
fyrsta degi og tapaði miklum tíma
en vann mikið upp með frábærum
akstri í gær.
Finninn Tony Gardemeister
er annar á Peugeot en hann er
rúmum tveimur mínútum á eftir
Grönholm og Austurríkismað-
urinn Manfred Stohl fylgir fast
á eftir en hann ekur einnig á
Peugeot. - hþh
Spenna í Monte Carlo-rallinu:
Grönholm í
forystu
FÓTBOLTI KR hóf Reykjavíkurmót-
ið í knattspyrnu með stæl er þeir
lögðu 1. deildarlið Leiknis 5-1 í
Egilshöllinni í gær.
Leikurinn var varla byrjaður
þegar Rógvi Jacobsen skoraði
fyrir KR en Einar Örn Einarsson
jafnaði fyrir Leikni eftir góðan
undirbúning Steinarrs Guðmunds-
sonar. Strax í næstu sókn fékk
KR umdeilda vítaspyrnu þegar
brotið var á Grétari Ólafi Hjart-
arsyni en hann skoraði sjálfur úr
spyrnunni.
Leiknismenn sáu svo vart til
sólar í síðari hálfleik eftir ljósa
punkta í þeim fyrri og þeir skor-
uðu sjálfsmark í byrjun hálfleiks-
ins en sá óheppni var Freyr Alex-
andersson. Grétar Ólafur skoraði
svo gott mark með laglegu skoti
áður en Rógvi bætti við fimmta
marki KR og öðru marki sínu og
innsiglaði öruggan sigur KR í
fyrsta leiknum undir stjórn Teits
Þórðarsonar. - hþh
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu:
Öruggur sigur KR
RÓGVI JACOBSEN Heimþráin plagaði hann
ekki gegn Leikni.
Enska úrvalsdeildin:
EVERTON-ARSENAL 1-0
1-0 James Beattie (13.).
BIRMINGHAM-PORTSMOUTH 5-0
1-0 Jiri Jarosik (5.), 2-0 Jermaine Pennant (37.),
3-0 Matthew Upson (55.), 4-0 Mikael Forssell, víti
(90.), 5-0 David Dunn (90.).
BOLTON-MANCHESTER CITY 2-0
1-0 Jared Borgetti (37.), 2-0 Kevin Nolan (44.).
MIDDLESBROUGH-WIGAN 2-3
0-1 Jason Roberts (2.), 0-2 David Thompson (29.),
1-2 Jimmi Floyd Hasselbaink (56.), 2-2 Yakubu
(66.), 2-3 Neil Mellor (90.).
NEWCASTLE-BLACKBURN 0-1
0-1 Morten Gamst Pedersen (75.).
TOTTENHAM-ASTON VILLA 0-0
WBA-SUNDERLAND 0-1
0-1 Steve Watson (72.).
Enska 1. deildin
LEEDS-SHEFFIELD WED. 3-0
Gylfi Einarsson sat á varamannabekk Leeds allan
tímann.
LEICESTER-CARDIFF 2-1
Jóhannes Karl Guðjónsson var í banni í leiknum.
CREWE-PLYMOUTH 1-2
Bjarni Guðjónsson var ekki í leikmannahópi
Plymouth.
ÚRSLIT GÆRDAGSINS