Frjáls verslun - 01.02.1983, Blaðsíða 55
ofbeldi og misnotkun áfengis ásamt fíkniefna-
vandamálum. Prestar, félagsráðgjafar og lög-
gæslufólk hefur ekki farið varhluta af þessari
hlið vandamálsins en einhvern veginn virðist
sem stjórnmálamönnum hafi ekki fundist tilefni
til þess að þeir skiptu sér af þessum málum.
Þegar þess er gætt að ein frumþarfa einstak-
lings í nútíma þjóðfélagi er húsaskjól, og reyndar
í hvaða þjóðfélagi sem er á hvaða tíma sem er,
og að húsnæði er undirstaða heimilislífs, þá
geta stjórnvaldsaðgerðir til lengri tíma á sviði
húsnæðismála verið afdrifaríkar. Með því að
auðvelda fólki fjármögnun húsnæðiskaupa til
lengri tíma er unnt aó leysa brýnt vandamál og
um leið stuðla að því að auka efnahagslegt
öryggi einstaklingsins og fjölskyldnanna og
gera fólki kleift að láta sér líða betur á fslandi.
Eins og svo oft hefur komið fram í pólitískri
umræðu er þaó stór galli á okkar stjórnmála-
mönnum að þeim hefur ekki tekist að skapa
neina framsýn, þeim hefur ekki tekist að sam-
einast um neina heildarstefnu til lengri tíma en
fjögurra ára í senn, og reyndar gengið afar illa
aðframfylgja henni. Málefni sem líkleg eru til að
skila árangri fyrir lok kjörtímabilsins virðast
næstum undantekningarlaust vera höfuðvið-
fangsefni stjórnmálaflokka á hverjum tíma en
stefnumarkandi atriði til lengri tíma eru hins
vegar söluvara og málamiðlunargrundvöllur við
stofnun ríkisstjórna. L.M.J.
Bíll ársins frá Japan!
Nefnd 57 bílagagnrýnenda í Japan valdi hinn nýja framdrifna MAZDA 626 bíl ársins 1982/1983 úr
41 nýrri gerð bíla, sem komu á markaðinn í Japan.
Þetta er þriðja árið, sem þessi eftirsótta viðurkenning er veitt og í tvö af þessum þrem skiptum hefur
MAZDAhlotiðhana. í fyrra skiptið var það MAZDA 323, sem var kosinn bíllársins 1980/1981 í Japan.
Þetta sannar svo ekki verður um villst yfirburði MAZDA. Þar sem eftirspurnin eftir MAZDA 626 er
geysileg erlendis, munum við aðeins fá takmarkáðan fjölda bíla á þessu ári. Tryggið ykkur því bíl
sem fyrst.
Mawla fiOft / BÍLABORG HF.
/ Smiðshöföa 23, sími 812 99.
55