Frjáls verslun - 01.02.1983, Qupperneq 77
tíma og nær bandarískum les-
endum sínum um leið og þeirfá
WSJ. Frankfurtarupplaginu er
einnig dreift með flugi um
mestan hluta Evrópu, Mið--
Austurlanda og Japan.
Norðurlönd fá blaðið hins veg-
ar frá London. Selt upplag af
alþjóðaútgáfunum er samtals
39.000 eintök. Lundúnaútgáf-
an skiptist þannig að 156.000
eintök seljast íBretlandi en um
8.000 eintök víða annars
staðar. Samanlagt er upplag
Financial Times 204.000 ein-
tök.
Stofnun alþjóðaútgáfunnar í
Frankfurt hefur kostað Fin-
ancial Times mikla fjármuni og
af henni hefur verið tap und-
anfarin ár þó að blaðið sé ann-
ars rekið með hagnaði. Útgef-
endur blaðsins telja þó að
þetta muni snúast við innan
skamms meö bættu efnahags-
ástandi.
CBS hefur áhuga
Financial Times nýtur mikils
álits í Bretlandi og er alls staðar
virt fyrir vandaóan og óhlut-
drægan fréttaflutning. Inter-
national Herald Tribune, sem
hefur verið gefið út í París síð-
an 1887 hefur einnig getið sér
góðs álits fyrir hlutleysi og
málefnalega meðferð efnis á
fréttasíðum og leiðarasíðum.
Blaðið fær mikið efni meðal
annars leiðara frá Washington
Post og New York Times, sem
eiga sinn þriðjunginn hvort í
blaðinu. Hinn þriðjungurinn til-
heyrir Whitney Communi-
cations, sem sagt er að sjón-
varpsfyrirtækið CBS, sem
einnig gefur út mörg blöð, hafi
áhuga á að kaupa.
Frá því að vera smáblað fyrir
ameríkana búsetta í Evrópu
hefur International Herald
Tribune vaxið í að verða virt
alþjóðlegt vióskiptadagblaó
með breitt fréttasvið. Upplagið
er 140.000 eintök og 57% les-
enda eru kaupsýslumenn.
Tribune er prentaö í París,
London, Zurich, Hong Kong og
Singapore og er nú leitað að
a.m.k. tveimur viðbótar prent-
stöðum til að bæta dreifinguna.
f hópum blaöamanna í
Evrópu halda menn að það
verði fyrst og fremst Herald
Triþune sem verði fyrir barðinu
á samkeppninni frá WSJ
Europe. En Tribune hefur ekki
miklar áhyggjur af þessari nýju
samkeppni. Þar segja menn að
WSJ Europe muni fyrst og
fremst fjalla um bandarískt
efnahagslíf þó að blaðið hafi
aðgang að meir en 80 fréttarit-
urum um allan heim. Auk þess
telja þeir auglýsingaverð í
Evrópu vera það lágt að aug-
lýsendur geti vel auglýst í báö-
um blöðunum. Hvað auglýs-
ingar varðar sýnir rannsókn að
mörg bandarísk fyrirtæki hafa
áhuga á því að ná evrópska
markaðinum, einmitt í gegnum
Wall Street Journal — sem er
hiö sanna tákn bandarísks at-
vinnulífs. í augum þessara
auglýsenda hefur WSJ einmitt
upp á hiö ,,rétta ritstjórnarlega
andrúmsloft“ aö bjóða, en það
er atriði, sem skiptir stöðugt
meira máli þegar auglýsendur
ákveða hvar þeir ætla aö koma
boðskap sínum á framfæri.
Hljóðlátasta þota í heimi
Margir hafa efiaust
veitt athygli skrautlegri
en dálítið undarlegri þotu
á Reykjavíkurflugvelli.
Hún hefur verið hér
nokkrum sinnum, en það
eru reynsluflugmenn
British Aerospace sem
hafa verið að leita uppi
ísingarástand til að reyna
afísingarbúnað þotunnar.
Það er Capt. Peter Hop-
wood sem er aðalþjálfun-
arflugstjóri fyrir BAe 146
en reynsluflugmaður er
P. Smith.
Bae 146/100 á Reykjavíkurflugvelli
É • 1
káJÉ Mmmims,
Það sem einkum vekur at- lítil þota, sérstaklega stutt meó
hygli er að BAe 146 er fremur sveran skrokk og fjóra hreyfla.
77