Fréttablaðið - 08.02.2006, Síða 73
Rokksveitin Singapore Sling er að
leggja lokahönd á lag sem verður á
væntanlegri safnplötu með lögum
eftir bandarísku hljómsveitina
The Monks, sem var hvað þekkt-
ust á sjöunda áratugnum.
Lagið nefnist I Hate You og er
það sama og rokksveitin The Fall
tók eitt sinn upp á sína arma.
Auk Singa-
pore Sling munu
þekktar sveitir
á borð við The
White Stripes
og Jon Spencer
Blues Explosion
eiga lög á safn-
plötunni, sem
er væntanleg
í sumar. Sam-
hliða plötunni
kemur út glæný
heimildamynd um The Monks.
Hljómsveitin The Monks var
stofnuð af fimm bandarískum
hermönnum í bækistöðvum hers-
ins í Þýskalandi árið 1964. Gaf
hún út sína fyrst og einu plötu,
Black Monk Time, tveimur árum
síðar.
„Ég hef verið aðdáandi þeirra
í nokkur ár,“ segir Henrik Björn-
son, forsprakki Singapore Sling.
„Þetta er eitt af þessum „sixtís
költböndum“. Þetta er ekki fræg
hljómsveit en fólk sem hefur
áhuga á svona tónlist veit hvaða
hljómsveit þetta er,“ segir hann.
„Það er mjög skemmtilegt að fá að
taka þátt í þessu.“
Singapore Sling gaf nýver-
ið út plötuna Taste the Blood of
Singapore Sling sem hefur fengið
fínar viðtökur. Sveitin ætlar að
spilar hér heima í næsta mánuði
en hyggur einnig á tónleikahald í
Berlín og hugsanlega víðar í Evr-
ópu. -fb
Á safnplötu með The White Stripes Hefur
sé› DV
í dag?
flú
Stóra
Eurovision-
málið í hnút
Krísufundur hjá Birgittu
2x10-lesið 7.2.2006 20:59 Page 1
Gömlu hundarnir í Rolling Stones
spiluðu í hléi á hinum vinsæla Super
Bowl-úrslitaleik í Detroit í Banda-
ríkjunum á sunnudag. Framganga
þeirra þótti kraftmikil en nokkur
laganna sem þeir fluttu voru rit-
skoðuð. Sjónvarpsmenn álitu tvo af
textum sveitarinnar. Start Me Up
og Rough Justice, vera of kynferð-
islega og djarfa til að hægt væri að
sýna þá á skjánum og voru þeir því
ekki sýndir. Hins vegar voru engar
athugasemdir gerðar við texta lags-
ins, (I can´t get no) Satisfaction.
Sjónvarpsstöðin ABC segir að þess-
ar breytingar á dagskrá sveitarinn-
ar hafi verið í höndum yfirstjórnar
NFL-deildarinnar og framleiðenda
hennar. Talið er að um 65.000 manns
hafi hlýtt á hljómsveitina auk sjón-
varpsáhorfenda.
Vinsælar stórstjörnur eru gjarn-
an fengnar til að troða upp í hálfleik
og má þar nefna Janet Jackson, Sir
Paul McCartney og U2. ■
Rollingar ritskoðaðir
SINGAPORE SLING Hljómsveitin Singapore Sling á lag á nýrri safnplötu sem kemur út síðar
á árinu.
HENRIK
BJÖRNSSON.
elísabet vill bara ánægða
viðskiptavini. þess vegna
getur þú hætt hjá henni
þegar þú vilt.
hún er bara þannig skjaldbaka.
Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf.